25.8.2015 | 22:18
Óvenjuhlýr dagur á höfuðborgarsvæðinu (og víðar)
Víða var mjög hlýtt í dag (þriðjudag 25. ágúst), ekki síst á höfuðborgarsvæðinu, og komst hiti á mönnuðu stöðinni í Reykjavík í 20,7 stig. Allar tölur yfir 20 stigum teljast til tíðinda á þeim stað og gerðist það síðast fyrir 2 árum, 27. júlí 2013 að hitinn náði slíkum hæðum. Þá mældist hitinn 20,2 stig. Fyrir þremur árum, 16. ágúst 2012 komst hitinn í 21,3 stig.
Hiti dagsins er auðvitað dægurmet, fyrra met þess 25. var 17,1 stig, sett 1945. Gamla metinu var sum sé rústað. Þótt 20 stigin séu sjaldséð í Reykjavík verða þau beinlínis að teljast sárasjaldgæf eftir 20. ágúst. Fyrir utan daginn í dag hefur hiti aðeins tvisvar mælst meiri en 20 stig í Reykjavík svo seint að sumri (við staðalaðstæður). Það var 31. ágúst og 3. september 1939. Við verðum eiginlega að telja það tilvik sem eitt - það tilheyrir sömu hitabylgjunni. Dagarnir 31. ágúst, 1., 2. og 3. september 1939 eiga allir dægurmet sinna almanaksbræðra - og reyndar 6., 7. og 9. september sama ár líka.
Þess má geta að Rasmus Lievog stjörnuathugunarmeistari í Lambhúsum mældi 23,2 stiga hita þar 27. ágúst hið illræmda ár 1783 og 21,3 stig þann 24. sama mánaðar. Jón Þorsteinsson mældi 20 stiga hita við Nesstofu á Seltjarnarnesi 22. og 23. ágúst hitasumarið 1829. Þeir trúa sem vilja.
Svo er spurning hvað gerist með sólarhringsmeðalhitann í dag - hann verður mjög hár - á metslóðum og e.t.v. verður lágmarkshiti komandi nætur líka á metslóðum. Í morgun sýndi lágmarksmælirinn í Reykjavík ekki nema 10,5 stig - það var frekar svalt í rigningunni í gærkveldi, en spurning er um komandi nótt, hversu lágt lágmarkið fer.
Sjálfvirku stöðvarnar hitta hins vegar vel í þetta hitaskot. Það byrjaði nefnilega fyrir miðnætti og þegar þetta er skrifað (kl. 21 að kvöldi þriðjudags) stendur sólarhringslágmarkshitinn á stöðinni á veðurstofutúni í 15,0 stigum - rétt neðan stöðvarmetsins, sem er 15,3 stig, sett í hitabylgjunni miklu í ágúst 2004. Reyndar er hiti nú ört lækkandi. En gamalt hámarkslágmarksmet (já - svona) mönnuðu stöðvarinnar er ekki í hættu - aðfaranótt 31. júlí 1980 fór hitinn í Reykjavík lægst í 18,2 stig.
Hungurdiskar fylgjast með hita á 11 sjálfvirkum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Í dag fór hiti í 20 stig eða meira á 9 þeirra, öllum nema Hólmsheiði (19,9 stig) og Sandskeiði (18,6 stig). Á þessum stöðvum fór hitinn hæst í 21,9 stig í Straumsvík - en óvenjulegt er að sú stöð státi hæsta hita höfuðborgarsvæðisins að sumarlagi. Á Reykjavíkurflugvelli mældist hitinn hæstur 21,6 stig.
Hefðbundið uppgjör landshita birtist vonandi að venju á fjasbókarsíðu hungurdiska síðar í kvöld eða nótt.
Þótt morgundagurinn (miðvikudagur 26.) skili vart jafnháum tölum og dagurinn í dag gæti hiti á höfuðborgarsvæðinu samt orðið tiltölulega hár. Hámarksdægurmet Reykjavíkur 26. ágúst er 17,6 stig - og ekki alveg vonlaust að það geti fallið. Það er frá 1899.
Viðbót eftir miðnætti:
Lágmarkshiti sólarhringsins á sjálfvirku stöðinni á veðurstofutúni 25. ágúst reyndist 14,3 stig. Sólarhringslágmarkshiti hefur aðeins tvisvar verið hærri þar, 11. og 12. ágúst árið 2004, (15,3 og 14,4 stig). Einu sinni hefur sólarhringslágmarkið verið jafnhátt og nú, það var 14. ágúst 1997, en stöðin byrjaði samfelldar mælingar á því ári. Síðan eru 0,9 stig niður í töluna í 5. sæti, 13,4 stig sem mældust 13. september 2002.
Sólarhringsmeðalhiti mönnuðu stöðvarinnar reiknaðist 17,0 stig og hefur ellefu sinnum reiknast hærri frá og með 1942 að telja.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 26.8.2015 kl. 01:13 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.1.): 913
- Sl. sólarhring: 1117
- Sl. viku: 3303
- Frá upphafi: 2426335
Annað
- Innlit í dag: 813
- Innlit sl. viku: 2969
- Gestir í dag: 795
- IP-tölur í dag: 732
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.