23.6.2015 | 02:22
Hægfara
Hæð er nú yfir Grænlandi og hafinu fyrir norðan Ísland og breytingar hægar. Kortið hér að neðan gildir síðdegis á miðvikudag (24. júní) og sýnir hæð 500 hPa-flatarins og þykkt.
Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs - því meiri sem hún er því hærri er hitinn. Mörkin á milli gulu og grænu litanna er við 5460 metra - en það er nærri meðallagi í síðari hluta júnímánaðar. Nú er veðrahvolfið hlýrra fyrir norðan land heldur en fyrir sunnan það. Þetta er viðsnúningur á því sem venjulegt er.
Til gamans taldi ritstjórinn hversu algengt þetta hefur verið hér við land frá upphafi háloftaathugana 1949. Taflan hér að neðan sýnir að ástand sem þetta er mun algengara að sumarlagi heldur en að vetri.
mán | fjöldi | dg á ári | |
jan | 17 | 0,25 | |
feb | 17 | 0,25 | |
mar | 19 | 0,28 | |
apr | 25 | 0,37 | |
maí | 71 | 1,06 | |
jún | 121 | 1,81 | |
júl | 124 | 1,85 | |
ágú | 84 | 1,25 | |
sep | 22 | 0,33 | |
okt | 33 | 0,49 | |
nóv | 24 | 0,36 | |
des | 17 | 0,25 | |
samt | 574 | 8,57 |
Það er reyndar þannig að þegar þetta gerist er það gjarnan tvo til þrjá daga í röð - tíðni atburða er því í raun heldur lægri en hér er sýnt. En taflan sýnir okkur samt vel að langalgengast er að loft sé hlýrra sunnan við land í öllum mánuðum - 28 daga af 30 í júní en það er aðeins fjórða hvert ár að svona dagur skjóti upp kollinum í janúar. Tíðni þessara öfugsnúnu daga er sjö sinnum meiri í júlí en í janúar.
En aftur að kortinu að ofan. Mjög kalt er við Vestur-Noreg og öruggt að markir kvarta þar og kveina á miðvikudaginn. Hlýtt gæti hins vegar orðið í innfjörðum Grænlands og á stöku stað hér á landi þar sem sjávarloftið smeygir sér undir það hlýja. Yfir Baffinslandi er leiðinda kuldapollur sem á að þvælast um á norðurslóðum næstu daga - vonandi í öruggri fjarlægð frá okkur.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.3.): 4
- Sl. sólarhring: 105
- Sl. viku: 1338
- Frá upphafi: 2455664
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1198
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Takk fyrir þetta, Trausti. Mig langar til að spyja um þetta harmonie líkan sem þið notið á Íslandi. Ég sá það í þessari færslu http://trj.blog.is/blog/trj/entry/1810713/ en það er ekki hægt að skrifa athugasemdir þar lengur. Það lítur mjög fallega út. Hvað er upplausnin mikil?
Þetta er úr fjögurra kílómetra líkani sem notað er hér á Nýja Sjálandi. Þetta er úrkomu og vindaspá. Þunnu rauðu línurnar eru 200m hæðarlínur en þykku línurnar gefa til kynna að þar, og þar fyrir ofan má búast við snjó.
Hörður Þórðarson, 23.6.2015 kl. 03:55
Sæll vertu. Lárétt upplausn harmonie-líkansins er 2,5 km net en lóðrétt eru líkanfletirnir 65, sá hæsti í 10 hPa (í um 28 km hæð). Líkanið fær jaðarupplýsingar úr rekstarlíkani evrópureiknimiðstöðvarinnar (ECMWF) á 3 klukkustunda fresti. Það er gangsett með almennri greiningu reiknimiðstöðvarinnar og eigin greiningu á 2 metra hita, raka og snjóhulu fjórum sinnum á dag. Í hvert skipti er reiknað 48 klst fram í tíma. Lesa má meira um líkanið á síðunni sem visað er til hér að neðan.
Talsvert hefur verið unnið með líkanið hér - upplýsingar um landyfirborð eru batnandi. Líkanið er farið að ná vindi og vindstrengjum nokkuð vel - hitinn gæti verið aðeins betri. Enn eru ákveðin vandræði með skúraúrkomu - hún er t.d. of lítil í útsynningi. Til stendur að stækka svæðið aðeins í haust og kemur þá í ljós hvort úrkoman batnar.
Upplýsingar um líkanið: http://hirlam.org/index.php?option=com_content&view=article&id=65&Itemid=102
Kortin: http://brunnur.vedur.is/kort/spakort/
Skýringar við kort (ekki uppfærðar til nýjustu gerðar): http://brunnur.vedur.is/pub/trausti/kortatexti/
Alltaf gaman að kortum frá suðurhveli - takk fyrir.
hungurdiskar eru líka á fjasbók - og auðveldara að koma að skilaboðum þar: https://www.facebook.com/groups/hungurdiskar/
Trausti Jónsson, 23.6.2015 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.