Það hlýjasta stendur stutt við - en samt

Nú hefur hlýnað á landinu, meðalhiti í dag (mánudaginn 15. júní) var ofan meðallags síðustu tíu ára í fyrsta skipti í mánuðinum. Morgundagurinn (þriðjudagur 16. júní) gæti gert betur, sérstaklega á Norður- og Austurlandi. Þetta er fyrsti dagurinn mjög lengi með raunhæfum möguleika á yfir 20 stiga hita einhvers staðar á landinu.

Kortin hér að neðan sýna það vel.

w-blogg160615a

Hér má sjá spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um þykkt (heildregnar línur) og hita í 850 hPa-fletinum kl. 18 síðdegis á þriðjudag. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs og gefur góðar vísbendingar um hita í mannheimum. Hámarkið er hér yfir Norðausturlandi, innsta jafnþykktarlínan er 5520 metrar - tölfræði segir okkur að hæsti hiti landsins sé þá gjarnan rétt rúm 20 stig. Enn lægri þykkt getur gefið svo háan hita - en yfirleitt er þá bæði þurrt og einhver vindur af fjöllum. 

Hin almenna hámarkshitavísbendingin sem við höfum er mættishitinn í 850 hPa-fletinum. Hann segir okkur beint hvað loft í þeim fleti (á morgun í um 1300 metra hæð) yrði hlýtt komið niður í 1000 hPa - (ekki fjarri sjávarmáli á morgun).

w-blogg160615b

Spáin gildir kl.15 á morgun (þriðjudag). Þeir sem stækka kortið sjá töluna 21,5 stig yfir Norðausturlandi. Líkur á að hiti niðri við sjávarmál sé jafn mættishitanum í 850 hPa eru oftast ekki sérstaklega miklar - það fer í þessu tilviki mest eftir því hvort sólin nær að skína - hún er hátt á lofti. Sæmilegir möguleikar - sæmilegir. 

Síðan kólnar aftur - þykktin á að falla um 40 til 100 metra næstu daga - og hitinn lækkar þá til samræmist við það - en verður samt vonandi ekki fjarri meðalhita síðustu tíu ára - þar til að nýr skammtur af hlýju lofti sækir að - við vitum enn ekki hvenær það verður. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Trausti minn.

Sem betur fer er það almáttugur og alvitur góður Guð sem ræður veðrinu, því ekki værum við á lífi hér á jörðinni ef misvitrir mennirnir ættu að ráða veðurfarinu.

Nógu illa gengur mönnunum að stýra öðrum málum á jörðinni. Sumir telja sig meira að segja vera alvaldir Guðir á jörðinni?

Ja, þvílíkur sorglegur misskilningur þeirra sem telja sig vera Guði á jörðinni!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.6.2015 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg120525a
  • w-blogg080525a
  • w-blogg070525b
  • w-blogg070525a
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 239
  • Sl. sólarhring: 446
  • Sl. viku: 1812
  • Frá upphafi: 2466372

Annað

  • Innlit í dag: 228
  • Innlit sl. viku: 1668
  • Gestir í dag: 225
  • IP-tölur í dag: 223

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband