5.6.2015 | 01:31
Sex vikur af sumri
Kuldakastið sem hófst á sumardaginn fyrsta stendur enn nú þegar sex vikur eru liðnar af sumri. Fyrstu vikurnar þrjár voru þó sýnu kaldari en þær sem á eftir komu. Á sunnudag er búist við því að vindur snúist til vesturs og síðar suðvesturs. Loftþrýstingur verður nokkuð hár - svo reikna mætti við einhverjum hlýindum - en það er eins og svo verði ekki. Þó verður um stund talsvert hlýrra norðaustanlands en að undanförnu.
Við lítum á meðalhita í Stykkishólmi fyrstu sex vikur sumars allt aftur til 1846 - svona til að núllstilla okkur eftir öll hlýindin sem oftast hafa ríkt fyrstu sex vikur sumars það sem af er öldinni.
Meðalhitinn síðustu sex vikur stendur í 3,0 stigum. Daufa brúnleita strikalínan sem liggur þvert yfir myndina sýnir þá stöðu. Ef vel er að gáð má sjá að hitinn hefur ekki farið niður fyrir 4,0 stig í upphafi sumars síðan 1995 og ekki niður í 3 stig síðan 1989 - þá var hann síðast svipaður og nú. Einnig má segja að hann hafi verið svipaður 1982 og 1983, en svo miklu lægri 1979.
Hér sést vel hversu mikið áfall vorið 1949 var fyrir þá sem ekkert þekktu nema hlýju árin á undan. Á þessari mynd hófst það skeið 1925 - en vorið 1934 var þó nærri því eins kalt og nú, 1949 og 1979 eru í sérflokki - ásamt svo enn eldri árum. Kaldastar voru fyrstu sex vikur sumars árið 1882 - og litlu hlýrri 1906.
Einhver spurði um mun á milli ára. Munurinn á vorinu nú og í fyrra er -3,8 stig, á myndinni hefur hann tvisvar orðið meiri milli ára,1882 og 1979, og einu sinni jafnmikill (1906). Á hinn veginn var munurinn mestur á 1888 og 1889.
Vorið í vor er í 26. til 27. sæti kaldra vora á tímabilinu öllu.
Rauði ferillinn á myndinni sýnir 10-ára keðjumeðaltal.
Til gamans eru tölurnar að baki línuritsins í viðhenginu - já, til gamans aðeins.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.1.): 1034
- Sl. sólarhring: 1115
- Sl. viku: 3424
- Frá upphafi: 2426456
Annað
- Innlit í dag: 922
- Innlit sl. viku: 3078
- Gestir í dag: 895
- IP-tölur í dag: 828
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Við erum vestur í Dölum. Vorið 1979 var lambfé haft inni eins lengi og aðstæður leyfðu og gefið í jötum úti á túni fram í miðjan júní. Hagi var ekki áberandi grænn í lok júní en grænkaði í jílímánuði.
Anna á Höskuldsstöðum (í lautinni þar sem Láfi var/leiddur af móður sinni) sagði mér að fönnin hefði horfið úr túninu á 17. júní 1949.
Tóma Sigurgeirsson á Reykhólum sagði mér að hann hefði sleppt öllu fé á skírdag 1930 og markað lömb í haga.
Líf mannskepnunnar og hitamælarnir fylgjast nokkuð að.
Sigurbjörn Sveinsson, 5.6.2015 kl. 23:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.