Yfir Norðuríshafi

Kuldinn þessa dagana á uppruna sinn í Norðuríshafi. Þegar hlýna tekur á vorin gerist það fyrst yfir meginlöndunum og hinir stóru kuldapollar vetrarins hörfa til norðurs og setjast gjarnan að yfir Norðuríshafi. Þar skjóta þeir öngum í ýmsar tilviljanakenndar áttir - og svo vill til að þessa dagana liggur einn anginn til okkar.

Þetta sýnir kortið hér að neðan.

w-blogg070514a

Ísland er alveg neðst á myndinni - en norðurskautið nærri miðju. Kortið sýnir stöðuna í 500 hPa síðdegis á laugardag (9. maí) að mati bandaríska líkansins gfs. Litir sýna þykktina en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs.

Meginkuldapollurinn er rétt við norðurskautið - þar er vetrarkalt í miðju, smáblettur þar sem þykktin er enn undir 4980 metrum. Þrír kuldaangar liggja út frá miðju kuldapollsins - einn í átt til okkar, annar suður um Hudsonflóa og sá þriðji og öflugasti í átt til austurhluta Síberíu (er að hluta til utan við kortið).

Breytingar eru hægar - jafnhæðarlínur gisnar og fátt til bjargar. Það tekur tíma að búa til hlýjan hæðarhrygg sem beinir hlýju lofti í átt til landsins. Meiri von er til þess að eitthvert lægðardraganna stuggi við kaldasta loftinu - og við lendum á mörkum bláu og grænu litanna - það er ekki gott en þó talsvert skárra en ástandið síðustu vikuna.

Annar möguleiki er að meginkuldapollurinn fari á stjá - til þess þarf þó að aflaga hann eitthvað - þá gæti hann breytt lægðardraga og hæðarhryggjamynstrinu sem hefur verið alveg fastlæst að undanförnu. - En fari pollurinn á hreyfingu fer af stað eins konar rússnesk rúlletta - við viljum alla vega ekki fá hann eða frekari útskot úr honum til okkar -. 

Þeir sem nenna að fletta í gegnum froðuna geta fundið tölulega smámola um kuldakastið á fjasbókarsíðu hungurdiska - . 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

las athugsemd þína of seind fanst hún góð. en bætir ekki skap mit þetað var viðbúið eftir því hvernig  veturin þróaðist. hjátrúin hafði rétt fyrir sér með veturin irði úrkomusamur svo við skulum vona að sumardagurin fyrsti rætist líka. alveg merkilegt hve hátrúin hefur oft rétt fyrir sér. en þettað er svo sem ekkert óvenjulegur maí en sem komið er einhverntíman hlaut kuldin að koma híngað. þó ég vonaði að timabilð myndi ná heilum hríng úr því sem komið var. það er víst eins með stjórnmál og veður bæði stórfurðuleg fyrirbæri. þó held ég að veðrið sé fyrirsjánlegra fyrir góða greinendur. því ég trúi á að það sé regla á veðrinu það þarf bara að fynna þá reglu því er gott að skrá sem mest niður fyrir komandi veðurfræðínga. 

kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 7.5.2015 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 151
  • Sl. sólarhring: 417
  • Sl. viku: 1976
  • Frá upphafi: 2350712

Annað

  • Innlit í dag: 141
  • Innlit sl. viku: 1769
  • Gestir í dag: 140
  • IP-tölur í dag: 139

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband