Vondur landsynningur - en skárri útsynningur

Illviđri ţriđjudagsins (10. mars) verđur af landsuđri og virđist ćtla ađ ganga blessunarlega hratt hjá. Svo snýst hann eins og venjulega í suđvestur - eđa útsuđur en viđ sleppum trúlega viđ versta vestanskotiđ sem fylgir lćgđinni - ţađ fer vonandi ađ mestu vestan viđ land eins og spár gera nú ráđ fyrir. 

Ţetta má sjá á sjávarmálsspákorti evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir kl. 21 annađ kvöld (ţriđjudag). 

w-blogg100315a

Kortiđ sýnir líka ţrýstibreytingar milli kl.18 og 21, fall er litađ rautt, en ris er blátt. Svo mikill gangur er í kerfinu ađ vindsnúningurinn sem var rétt ađ verđa um landiđ suđvestanvert kl.18 er hér ţremur tímum síđar komin nćrri ţví út af landinu í norđaustri. Sjá má ađ ţrýstilínur eru mjög ţéttar í suđaustanáttinni yfir Norđausturlandi, en mun gisnari yfir landinu vestanverđu.

Svo er mikiđ og ţétt línuhneppi nokkuđ fyrir vestan land. Litlu má muna ađ viđ fáum ţađ í hausinn - en spárnar gera ţó ráđ fyrir ţví ađ viđ sleppum - en ţađ er samt ekki meira en svo. Hirlam-líkaniđ er t.d. međ strenginn sjónarmun nćr landi - og ţar ađ auki er eitthvađ drasl á ferđinni í suđvestanáttinni síđar - um nóttina eđa enn síđar. Alla vega er full ástćđa til ađ gefa spám Veđurstofunnar gaum - jafnvel ţótt veđriđ virđist gengiđ niđur. 

Svo er framhaldiđ í svipuđum dúr og veriđ hefur. Viđ veljum af tilviljun spákort sem gildir á miđvikudagskvöld (11. mars kl. 24).

w-blogg100315b

Ţarna virđast nokkuđ efnismiklir éljabakkar vera yfir landinu vestanverđu. Illviđrislćgđ ţriđjudagsins er komin í skjóliđ norđaustan viđ Hvarf á Grćnlandi en tvćr illilegar lćgđir hnykla sig í biđröđinni. Ţćr eru óţćgilega nćrri hvor annarri. Á kortinu er sú sem austar er snarpari. Hennar eđlilega leiđ vćri til norđausturs um Fćreyjar - en nćrvera síđari lćgđarinnar „lyftir“ henni til norđlćgari brautar - viđ ţađ dregur vonandi úr afli hennar (síđari lćgđin er ađ loka fyrir kalda loftiđ úr vestri) - en aldrei skyldi mađur vera viss. 

En ţessi spáruna reiknimiđstöđvarinnar segir lćgđina munu fara yfir landiđ austanvert á ađfaranótt föstudags - en hún hafi ţá grynnst ađ mun. Landsynningur síđari lćgđarinnar eigi síđan ađ skella á undir kvöld á föstudags - međ svo öđrum hnykk af sömu átt á laugardagsmorgni. 

Bandaríska veđurstofan vill hins vegar fara međ fyrri lćgđina alveg fyrir austan land - en dregur líka úr afli hennar. Ţar á bć á síđari lćgđin líka ađ koma undir kvöld á föstudag - en útsynningur ađ taka strax viđ - međ svo nýrri krappri lćgđ úr suđri á sunnudag - evrópureiknimiđstöđin sýnir hana 6 til 12 tímum síđar.

Svona er ástandiđ - 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 36
  • Sl. sólarhring: 60
  • Sl. viku: 1634
  • Frá upphafi: 2350911

Annađ

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 1431
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband