Skammvinn sumarhlýindi í háloftunum

Á morgun, fimmtudaginn 5. febrúar, er spáð óvenjulegum hlýindum í háloftum yfir landinu - hita er spáð upp í frostmark í 3 km hæð. Þessi dýrð mun þó varla ná til jarðar - til þess er of mikið af köldu lofti að þvælast fyrir í neðri lögum - sérstaklega um landið sunnan- og vestanvert. Efra var reyndar mjög hlýtt líka í dag - en mest fréttist af 12,4 stigum á Eskifirði nú í kvöld (miðvikudag) - og í 13,1 komst hitinn kl.1 þann 5. 

Og ekki stendur þetta lengi - því kalt loft ryðst að úr vestri - yfir Grænland aldrei þessu vant - á föstudaginn. En hlýindin snúa aftur (aðeins minni þó) á laugardag og sunnudag. Það er ekkert mjög langt í landsdægurhámarksmetin - dægurmet 5. febrúar er 13,5 stig. Það er aðeins hugsanlegt að hitinn slái sér upp á topplista febrúarmánaðar - en nýtt febrúarmet yrði samt óvænt. Núgildandi met mánaðarins er 18,1 stig sem mældust á Dalatanga 17. febrúar 1998. 

En það má samt vera með óskhyggju - mættishitakortið hér að neðan ýtir undir hana. 

w-blogg050215a

Það er evrópureiknimiðstöðin sem spáir. Jafnþrýstilínur eru heildregnar - við sjáum vel mikla hæð vestur af Bretlandseyjum sem beinir hlýja loftinu til okkar. Litirnir sýna mættishita í 850 hPa en það er sá hiti sem loft í þeim fleti næði ef það er dregið niður í 1000 hPa. Talan undan sunnanverðum Austfjörðum er há, 23,2 stig. Sjávarmálsþrýstingurinn á sömu slóðum er 1020 hPa - 1000 hPa-flöturinn er því í um 160 metra hæð og ef við gætum dregið loftið alveg þangað niður yrði hámarkstalan 24,8 stig. 

Jæja, - miði er möguleiki, segja auglýsingarnar, jafnvel þó líkur séu litlar. 

En seint á aðfaranótt föstudags koma kuldaskil inn á landið vestanvert og verða komin langleiðina austur af kl. 15. Rétt er að líta á mættishitaspá fyrir þann tíma líka.

w-blogg050215b

Við sjáum hér kalda tungu teygja sig í átt til Íslands - eftir að hafa fallið niður af Grænlandi suður af Kulusuk. Mörk bláu og gulu litanna eru við frostmark mættishitans. En svo sjáum við nýja og efnismikla tungu af hlýju lofti ryðjast inn á sviðið strax í kjölfarið. Hlákan heldur þá áfram. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a
  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 63
  • Sl. sólarhring: 157
  • Sl. viku: 572
  • Frá upphafi: 2351363

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 490
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband