Hláka -

Mikill gangur er nú (á þriðjudagskvöldi 3. febrúar) í veðurkerfum háloftanna - þau mega varla vera að því að sinna okkur hér í neðri heimum. Hlýindin eru miklu meiri þar efra og loftið því mjög stöðugt. Skilyrði til bylgjumyndunar yfir fjöllum eru með besta móti.

Því fengu margir íbúar á norðanverðu Snæfellsnesi að kynnast í dag (rétt einu sinni), 10-mínútna meðalvindur fór í rúma 30 m/s í Grundarfirði síðdegis. Í kvöld gekk vindur þó heldur niður því hann fór að rigna - og milli kl. 23 og 24 komu 9 mm í sjálfvirka mælinn. Ekki alveg svo óvenjulegt á þeim slóðum - en sjaldgæft í Reykjavík. 

Kuldaskil eru rétt um miðnættið að koma inn á land og rjúka austur um í nótt, fara 500 kílómetrana austur um á 6 til 7 klst. Í kjölfar skilanna kólnar lítillega og vindur snýst úr suðri í suðvestur - en enginn tími er til að búa til hefðbundinn útsynning því næsta kerfi vill komast að - með meiri hlýju. 

Kortið sýnir stöðuna á miðnætti, að mati evrópureiknimiðstöðvarinnar.

w-blogg040215c

Úrkoman (lituð) fylgir skilunum. Til að staðsetja þau verðum við að hafa í huga að það sem sést á kortinu er úrkoma undangengnar 6 klukkustundir - hið örmjóa úrkomusvæði þessara skila smyrst út á mun breiðara bil heldur en bakkinn nær yfir á hverjum tíma.

Lægðin djúpa við Labrador fer norður um fyrir vestan Grænland en við fáum bæði hlýjan geira hennar sem og kuldaskil til okkar næstu daga. Hæðin fyrir sunnan land á að styrkjast og jafnvel komast upp fyrir 1045 hPa þegar best lætur eftir nokkra daga. Veðurlag utan í svona sterkum hæðum er með öðru bragði en lægðaveðrið. 

Kuldaskilum fylgja oft brot í veðrahvörfunum. Mikið niður- eða uppstreymi fylgir slíkum brotum. Niðurstreymi í tilviki kvöldsins og sést sérlega vel á gervihnattarmynd frá miðnætti. Þetta er svonefnd vatnsgufumynd - tekin á bylgjusviði sem vatnsgufan byrgir sýn til jarðar - ekki bara ský. Á dökkum svæðum sést langt niður í lofthjúpinn - þar sem niðurstreymisloft úr neðsta hluta heiðhvolfs hefur ýtt rakara lofti í efri hluta veðrahvolfs tímabundið til hliðar. Síðan breiðist veðrahvolfsloft aftur yfir.

w-blogg040215a

Hér er örmjó ræma af lágum veðrahvörfum vestan Íslands, rétt vestan kuldaskilanna - en nýtt skýjakerfi ryðst yfir hana úr vestri og er nánast að loka af lítinn sveip suður í hafi. Það er gaman að sjá svona fyrirbrigði - þó þau séu algeng.

Evrópureiknimiðstöðin giskar á hæð veðrahvarfanna í spám sínum. Kortið að neðan sýnir ágiskun fyrir sama tíma og myndin að ofan.

w-blogg040215b

Kortið sýnir stærra svæði en myndin - en við finnum Ísland fljótt með því að bera saman kort og mynd. Bláu svæðin samsvara þeim gráu á myndinni - en dökkbrúnt, fjólublátt og hvítt samsvara dökku svæðunum. Tölurnar sýna þrýstihæð veðrahvarfanna - í hvaða þrýstifleti þeirra er helst að leita. Á bláu svæðunum eru lægri tölur en 240 (hPa). Þar eru veðrahvörfin í meir en 10 km hæð. Á hvíta blettinum vestan við Ísland er talan 870 hPa, niðri í 1200 metrum. - Trúlega eru hin raunverulegu veðrahvörf ofar en þetta - en alla vega neðarlega - nú eða þá brotin.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a
  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 59
  • Sl. sólarhring: 153
  • Sl. viku: 568
  • Frá upphafi: 2351359

Annað

  • Innlit í dag: 49
  • Innlit sl. viku: 486
  • Gestir í dag: 48
  • IP-tölur í dag: 47

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband