Sunnudagslćgđasúpa

Eftir nokkra rólega daga virđist stefna aftur í ólguna. Nú (seint á laugardagskvöldi, 3. janúar) nálgast ný lćgđ - eđa öllu heldur lćgđasúpa sem ganga mun yfir landiđ á sunnudag og mánudag. Lćgđin er mjög samsett - og telst eiginlega til tíđinda ráđi reiknilíkönin alveg viđ hana. Enda hafa ţau veriđ mjög flöktandi undanfarna daga. 

Viđ skulum hafa gervihnattamynd til hliđsjónar. Hitamynd sem tekin er kl.23:00 á laugardagskvöldi.

w-blogg040115a

Á hitamyndum eru köldustu svćđi hvítust og sýna háský. Hér má sjá nokkrar hvítar skýjarćmur - sem marka miklar vindrastir í háloftunum. Ţćr sem merktar eru međ tölustafnum 4 virđast vera víkjandi - ađalröstin liggur langt sunnan úr höfum nćrri ţví beint í norđur - en beygir snögglega til austurs fyrir sunnan land. Beygjan er á ákveđinni hreyfingu til norđurs. 

Nálćgt tölustafnum 3 má sjá rof í háskýjahulunni - ţetta er „ţurra rifan“ svokallađa. Nćrri miđju hennar er hvítleitur ţríhyrningur. Sunnan viđ og í kring er niđurstreymi. Ţessi form einkenna ört dýpkandi lćgđir. 

Ţarna sunnan viđ er skýjaflóki - ör sem merkt er međ tölustafnum 1 bendir á hann. Tölvuspár og greiningar segja okkur ađ ţarna sé ađ myndast lćgđabylgja sem á ađ yfirtaka fyrri lćgđina - ţađ á víst ađ verđa til ţess ađ landsynningshvassviđriđ sem kemur til landsins í nótt eđa snemma í fyrramáliđ missir taktinn - hvenćr, hvort og hvernig er ekki ljóst. Veđurfrćđingar munu fylgjast rćkilega međ ţróuninni á ţessum slóđum nćstu klukkustundirnar.   

Ţegar ţetta er skrifađ - á ađ verđa hlé á milli lćgđa einhvern tíma sunnudagsins - síđan skelli veđur nýju lćgđarinnar á undir kvöld. Eins og venjulega spá hungurdiskar engu um ţađ - en hvetur til skođunar á nýjustu fréttum af spám á vef Veđurstofunnar.

Nú - svo fer ţessi lćgđ hjá - fer sem fer - en ekki alveg allt búiđ enn ţví í kringum ţar sem talan 2 er á myndinni er mjög flókin skýjasúpa - samkvćmt nýjustu spám á kröpp lćgđ - orđin til úr henni ađ fara hér hjá á mánudag - nýjustu spár segja ađ ađalveđriđ sem fylgir henni fari ađ mestu fyrir sunnan land - vonandi er ţađ rétt. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Ágúst 2025
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg130825a
  • w-blogg090825e
  • w-blogg090825d
  • w-blogg090825c
  • w-blogg090825b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.8.): 5
  • Sl. sólarhring: 178
  • Sl. viku: 1836
  • Frá upphafi: 2491307

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1665
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband