Kalda strokan frá Kanada

Ţótt veđur fyrstu viku nýja ársins sé harla óljóst er ţó samkomulag um stóru drćttina. Mjög kalt loft frá Kanada streymir austur um Atlantshaf - ađallega fyrir sunnan Ísland. Ţetta sést mjög vel á 10-daga međalspákorti evrópureiknimiđstöđvarinnar. Kortiđ sýnir međalhćđ 500 hPa-flatarins, međalţykktina og vik ţykktarinnar frá langtímameđallagi ţessa daga.

w-blogg311214a

Jafnhćđarlínurnar eru heildregnar, jafnţykktarlínur strikađar og ţykktarvikin lituđ. Ţykktin mćlir hita í neđri hluta veđrahvolfs, ţví meiri sem hún er ţví hlýrra er loftiđ. Ţví ţéttari sem jafnhćđarlínurnar eru ţví meiri er vindurinn, hann liggur samsíđa línunum. 

Yfir Labrador eru feikistór neikvćđ vik - dekkri fjólublái liturinn sýnir svćđi ţar sem ţykktin er -140 til -180 metra undir međallagi - í hita eru ţađ -7 til -9 stig undir međallagi áranna 1981 til 2010. Viđ Svalbarđa (alveg efst á kortinu) má sjá svćđi ţar sem ţykktin er meir en 100 metra yfir međallagi, hiti er ţar um 5 stigum yfir međallagi.

Sé nánar litiđ á jafnţykktarlínurnar má sjá ađ sunnan viđ Grćnland og allt inn á sunnanvert Grćnlandshaf liggja ţćr undir horni viđ vindstefnu - vindurinn leitast viđ ađ bera kalt loft í átt til okkar. 

Hafiđ sér um ađ hita loftiđ á ţessu svćđi baki brotnu allan sólarhringinn og ţegar til Íslands er komiđ er hitinn kominn upp undir međallag - eđa ţar um bil. Međalhiti hér viđ land á ţessum árstíma er ekki fjarri frostmarki. Upphitun ađ neđan fćrir loftinu raka og gerir ţađ mjög óstöđugt - og úr verđur flókin keđja lóđréttra og láréttra varmaflutninga - međ tilheyrandi úrkomumyndun - og reyndar miklum lćgđagangi líka.

Međalkort eins og ţetta straujar alveg yfir hrađfara lćgđir - jafnvel ţótt ţćr séu djúpar. Ţótt allar tölvuspár séu sammála um ţessa stóru mynd er mikill ágreiningur um myndun og ţróun einstakra lćgđakerfa á ţessu tíu daga tímabili.

Svo virđist ţó sem nýjársdagur verđi tiltölulega rólegur - og flestar spár telja föstudaginn 2. verđa ţađ líka - en ţó má geta ţess ađ evrópureiknimiđstöđin segir ađ innan viđ 100 km verđi í slćma vestanhríđ undan Suđvesturlandi framan af degi. Vonandi er rétt reiknađ. Laugardagurinn gćti orđiđ rólegur líka - verđum viđ heppin.

Svo er líka sjaldan langt í norđaustanstrenginn á Grćnlandssundi.

Ritstjóri hungurdiska óskar ţrautseigum lesendum og landsmönnum öllum árs og friđar međ ţökk fyrir liđiđ.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurđsson

Já og sömuleiđis.

Hér rúllađi snögglega yfir rigning á milli 1900 og 2100. Stytti upp jafn snögglega og ţađ upphófst. Nú er blíđan ein í fararbroddi međ tilheyrandi.

Ţakka pistlana, ţeir útvíkka sjóndeildarhringinn.

Sindri Karl Sigurđsson, 31.12.2014 kl. 21:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 87
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 1836
  • Frá upphafi: 2348714

Annađ

  • Innlit í dag: 78
  • Innlit sl. viku: 1608
  • Gestir í dag: 73
  • IP-tölur í dag: 73

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband