Hraðfara helgarlægð

Lægð sem nú er vestan Grænlands á að fara yfir jökulinn á aðfaranótt laugardags (13. desember). Hún á síðan að dýpka mikið á leið til austurs yfir landið og í kjölfarið fylgir skammvinnt norðanáhlaup. Spár gera ráð fyrir talsverðri snjókomu á laugardag - en þó mismikilli. Þegar hvessir á aðfaranótt sunnudags verður því efni í mikið kóf víða um land. 

Þeir sem ferðast þurfa milli landshluta ættu að gefa spám Veðurstofunnar gaum - því eins og venjulega spáir ritstjóri hungurdiska engu - veltir sér hins vegar upp úr spám annarra.

Við lítum á tvö kort úr safni evrópureiknimiðstöðvarinnar. Það fyrra sýnir hæð 925 hPa-flatarins auk vinds og hita í fletinum kl. 18 síðdegis á laugardag. Jafnhæðarlínur eru heildregnar, vindur sýndur með hefðbundnum vindörvum og hiti með litum (kvarðinn batnar við stækkun). Lægsta jafnhæðarlínan sýnir 340 metra yfir sjávarmáli. Það má því bæta nokkrum stigum við hitann til að giska á hversu hár hann er við jörð.

w-blogg121214a

Lægðarmiðjan er hér yfir Norðurlandi - vindur svikahægur víða á landinu. Lægðin er á hraðri leið til austnorðausturs og sýnir örin hreyfingu hennar til miðnættis. Rauða L-ið sýnir okkur hvar lægð er í 500 hPa-fletinum. Sú lægð hreyfist hratt til austsuðausturs. Það þýðir að við sleppum að mestu við vestaillviðrið sunnan við lægðina. 

Af vindörvunum sjáum við að mikið veður geisar djúpt úti af Vestfjörðum og Norðurlandi. Þetta illviðri hreyfist hratt til suðurs í kjölfar lægðarinnar og skellur suður um Vestfirði strax seint á laugardagskvöld og síðan um allt Norðurland. Austurland sleppur trúlega fram undir hádegi - en ekki skulum við treysta á það - en fylgjast vel með því sem Veðurstofan segir þegar þar að kemur.

Síðdegis á sunnudag verður veður farið að ganga niður vestanlands því hæðarhryggur á undan næstu lægð vill komast að strax þá um nóttina. Evrópureiknimiðstöðin gerir talsvert úr henni í hádegisspárununni - en gerði það ekki í gær - hraðinn og atgangurinn er svo mikill í lofthjúpnum að spám er illa treystandi.

En við skulum horfa á fáein smáatriði á kortinu áður en við yfirgefum það. Fjólublái liturinn (frost meira en -16 stig í 925 hPa) er fastur vestan Grænlands. (Jökullinn er langt ofan við 925 hPa). Þessi kuldi er því ekki á leið hingað - eins og halda mætti í fljótu bragði. Smávegis sleppur þó yfir þar sem köld tunga liggur frá Grænlandsströnd til suðausturs fyrir vestan lægðina. Sömuleiðis sleppur líka mjó tunga af mjög köldu lofti til suðurs framhjá Scoresbysundi - og liggur til suðvesturs um Grænlandssund. Mikill vindur er í báðum þessum strengjum.

Við lítum líka á samskonar kort fyrir 500 hPa-flötinn - í um 5 km hæð yfir sjávarmáli. Það gildir á sama tíma - kl. 18 á laugardagskvöld, 13. desember.

w-blogg121214b

Hér er háloftalægðin vestur af Faxaflóa - á hraðri leið til austsuðausturs. Hér nær fjólublátt svæði - sem hér sýnir hvar hiti er lægri en -42 stig - til suðurs fyrir vestan lægðina. Grænlandsjökull nær ekki upp í 5 km þannig að loft að vestan á greiðari aðgang til austurs heldur en í neðri lögum. Þótt þetta loft sé kalt er það samt ekki nógu kalt til að geta fallið til sjávarmáls. Við sjáum að jafnhæðarlínan sem liggur í gegnum fjólubláa svæðið sýnir 4920 metra, sé loftið -42 stig myndi það hitna um 49 stig við að falla að sjávarmáli og hiti þar með +7 stig þegar niður er komið. Mun kaldara er við jörð og því flýtur kuldinn að vestan ofan á - um hríð. Framhaldið er efni í langa sögu - sem við sleppum að þessu sinni -. 

Alltaf þegar lægðir fara til austurs nærri landinu kemur sú spurning hversu köld norðanáttin verður í kjölfarið. Loft er þessa dagana mjög kalt við Norðaustur-Grænland - en lengra er í stórar fyllur af heimskautalofti. Við sleppum vonandi við þannig lagað - því stutt er á milli lægða - og tíma tekur að ná í þetta loft. En við látum þá framhaldssögu einnig eiga sig. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 60
  • Sl. sólarhring: 303
  • Sl. viku: 1634
  • Frá upphafi: 2350261

Annað

  • Innlit í dag: 46
  • Innlit sl. viku: 1495
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 45

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband