Skörp vindaskil við Vestfirði - fárviðri á Vestfjarðamiðum

Mikið austsuðaustanillviðri gengur nú til austurs yfir landið (mánudagskvöld 8. desember). Á eftir því fylgir mun hægari suðlæg átt sem síðan snýst aftur til austurs. Illiðrið fer alveg norður fyrir Vestfirði og kemst lengst norður af um kl. 9 á þriðjudagsmorgni (9. desember). Síðan snýr það við og nálgast land að nýju, í það sinn sem norðaustan- og norðanátt. 

w-blogg091214a

Kortið sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um hita og vind í 925 hPa-fletinum auk hæðar hans kl. 18 síðdegis á þriðjudag, 9, desember. Jafnhæðarlínur eru heildregnar, vindur er sýndur með hefðbundnum vindörvum og hiti með litum. Kortið batnar sé það stækkað. Vekja má athygli á því að 925 hPa-flöturinn er hér mun neðar í lofti en venjulega því lægðin er svo djúp, 946 hPa í miðju - þar er 925 hPa að finna í um 170 metra hæð yfir sjávarmáli. 

Vindstrengurinn milli Vestfjarða og Grænlands sést mjög vel - þar má ef vel er að gáð finna 50 m/s og vindurinn er meiri en 32 m/s (fárviðri) á stóru svæði. Orsök fárviðrisins sést vel, lægðasvæðið þrengir að köldu lofti sem vill komast suðvestur um Grænlandssund. Gríðarlegur hitabratti býr til bratta hæðarsviðsins. 

Við skilin myndast nokkrir lægðahnútar - tveir sjást vel á þessu korti. Þeir renna til suðvesturs meðfram skilunum og sveifla þeim fram og til baka - alveg upp að Vestfjörðum - aftur til baka - og enn aftur inn að Vestfjörðum og síðan virðist strengurinn eiga að falla inn á land - en um leið og rás kalda loftsins breikkar léttir á strengnum og vindhraði verður skaplegri og skaplegri eftir því sem skilin hörfa lengra til suðurs og austurs. 

Á kortinu má líka sjá stutt rautt strik sem liggur norður eftir 23 gráðum vesturbreiddar. Við lítum á háloftasnið eftir strikinu.

w-blogg091214b

Suður er til vinstri á myndinni. Tölur hafa verið settar á kortið til hægðarauka, 1 bendir á Snæfellsnes, 2 á Glámuhálendið og 3 á Hornstrandafjöll. Lóðrétti kvarðinn sýnir hæð í hPa. Sniðið nær ekki niður í 1000 hPa vegna þess að sjávarmálsþrýstingur er lægri heldur en svo. Hæst nær sniðið í 250 hPa - um 10 km hæð. 

Heildregnu línurnar eru mættishitinn - hann vex upp á við. Vindátt er sýnd með hefðbundnum vindörvum (snúa eins og á flötu veðurkorti) en vindhraði er að auki sýndur í lit. Fárviðrið sést sérlega vel lengst til hægri á myndinni og vindaskilin eru eins og lóðréttur veggur frá yfirborði upp í um 3 km hæð. Sunnan veggjar er vindur mjög hægur - minni en 6 m/s víðast hvar, en rétt þar norðan við er hann meiri en 40 m/s og reyndar meiri en 48 m/s þar sem mest er í sniðinu. 

Röð sniða sem þessa á klukkustundarfresti sýna að skilin sveiflast fram og til baka frá því um morguninn fram til þess ástands sem þetta snið sýnir - eftir það á strengurinn að fara að mjakast suður um, á að vera kominn suður á Breiðafjörð um miðnætti. 

Að vanda látum við Veðurstofuna um spádómana - en óhætt mun þó að upplýsa að allt sem lægðinni fylgir á ekki að vera komið alveg austur af landinu fyrr en um hádegi á föstudag. Svo verður lægð helgarinnar býsna spennandi - sé eitthvað að marka reiknimiðstöðvar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 251
  • Sl. sólarhring: 331
  • Sl. viku: 1337
  • Frá upphafi: 2352296

Annað

  • Innlit í dag: 219
  • Innlit sl. viku: 1205
  • Gestir í dag: 210
  • IP-tölur í dag: 209

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband