Nćsti bloti - gjöriđ svo vel?

Ţegar ţetta er skrifađ (seint á föstudagskvöldi 5. desember) er kominn bloti um landiđ sunnan- og vestanvert og sömuleiđis viđ ströndina eystra. Blotinn gengur hratt yfir og trúlega verđur aftur komiđ frost um mestallt land annađ kvöld (laugardag) - eđa jafnvel fyrr. 

Svo líđur sunnudagurinn í frosti og trúlega megniđ af mánudeginum líka. En ţá kemur nćsti bloti - ađ ţví međ býsna snörpum vindi. Lćgđin sem veldur verđur, ađ sögn reiknimiđstöđva, óvenju djúp. Viđ lítum á spákort evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir kl. 6 ađ morgni mánudags.

w-blogg061214a

Hćđarhryggur sunnudagssíđdegis er enn yfir landinu - en fariđ er ađ anda af suđri vestast á landinu. Rétt sunnan viđ Grćnland er lćgđ í foráttuvexti - reiknimiđstöđin segir ađ hún dýpki um tćp 60 hPa á 24 tímum - frá sunnudagskvöldi kl. 18 til sama tíma á mánudagskvöld. Á međan hreyfist hún frá Nýfundnalandi inn á sunnanvert Grćnlandshaf. Á ţeim tíma sem kortiđ sýnir er hún um ţađ bil hálfnuđ međ dýpkunarćđiđ. 

Ţessi dýpkun verđur vegna samskipta loftstrauma frá Kanada annars vegar (blá ör) og langt sunnan úr höfum (rauđ ör) hins vegar. Loftiđ ađ sunnan er óvenjurakabólgiđ og lendir á réttu augnabliki fyrir kuldanum ađ vestan. 

Ţađ hefur veriđ býsna skemmtilegt ađ fylgjast međ ţessu stefnumóti í spám reiknimiđstöđva undanfarna viku. Hlýja og kalda loftiđ hafa stundum fariđ á mis og lítiđ orđiđ úr - nú eđa ţá ađ dýpkunin hefur átt sér stađ miklu austar heldur en nú virđist ćtla ađ verđa úr. Viđ segjum auđvitađ „virđist“ ţví enn er ţetta mikla kerfi ekki orđiđ til nema í tölvulíkönum - og ţau eru ekki alltaf rétt.  

Í spárununni frá hádegi (föstudag 5. desember) setur evrópureiknimiđstöđin lćgđina niđur í 941 hPa - en runa bandarísku veđurstofunnar frá kl. 18 fer međ hana niđur fyrir 935 hPa.

Í ţessum runum reiknimiđstöđvanna veldur lćgđin mjög vondu veđri hér á landi á ađfaranótt ţriđjudags (tímasetningar ónákvćmar) - en síđan lendum viđ í hćgum vindi norđan viđ lćgđarmiđjuna - sem dólar austur fyrir sunnan land og grynnist. Um síđir gengur ţá í norđanátt - hvort hún verđur hvöss er ekki ljóst ennţá (ekki heldur hvort hún kemur).

Nú, japanska veđurstofan reiknar lćgđina niđur í 932 hPa - sú breska 933 hPa, sú ţýska svipađ og sú kanadíska 937 hPa. 

 

En reiknimiđstöđvarnar eru sammála um ađ ţessi eina lćgđ ráđi veđri hér á landi vinnuvikuna á enda - og ađ hún fari til austurs fyrir sunnan land. 

Hlýja loftiđ ađ sunnan bleytir í um land allt - en ţegar lćgir aftur og léttir til verđur trúlega fljótt ađ kólna. En eiginlegt heimskautaloft ađ norđan er ekki á dagskrá fyrr en hugsanlega um nćstu helgi - jafnvel verđur ađ bíđa enn lengur. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Nćsti bloti segir ţú! Ég hef ekki heyrt ţetta orđ notađ árum saman fyrr en nú. Minnir samt ađ ţađ merki hláku. En ég fletti ţví upp í orđabók til vonar og vara: bloti = lítil hláka: óţrifabloti - Snjóbleyta á jörđ.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 6.12.2014 kl. 21:41

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Jú, bloti er skammvinn eđa lítil hláka.

Trausti Jónsson, 7.12.2014 kl. 00:30

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 154
  • Sl. sólarhring: 267
  • Sl. viku: 1240
  • Frá upphafi: 2352199

Annađ

  • Innlit í dag: 142
  • Innlit sl. viku: 1128
  • Gestir í dag: 137
  • IP-tölur í dag: 137

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband