Smávegis um sumarhita á Skálafelli

Viđ lítum á sumarhita á Skálafelli í tilefni umrćđu um skaflinn í Gunnlaugsskarđi, en varla er annađ ađ sjá en hann lifi sumariđ 2014 af. 

Hitamćlingar hafa veriđ gerđar á Skálafelli austan Esju frá ţví voriđ 1996. Ţetta er erfiđur stađur til veđurmćlinga. Gríđarlegur vindur er algengur og auk ţess oft mikil ísing. Samt er mesta furđa hvađ hitamćlingarnar eru heillegar. Fáeinir vetrarmánuđir hafa ţó dottiđ alveg út og stöđin var samfellt í ólagi frá ţví í júní 2009 ţar til seint í júlí 2010. Sumur ţeirra tveggja ára vantar ţví í mćlingarnar.

Taflan hér ađ neđan sýnir međalhita mánađanna júní til ágúst (sumarh) í °C, fjölda athugana ţegar hiti var meiri en 10 stig (t>10) og hitasummu ofan 10 stiga (sum>10). Klukkustund ţegar hiti mćlist 11 stig fćr telst eitt summustig, klukkustund međ 20 stiga hita fćr 10 summustig. Neđst er lína međ međaltali tímabilsins.

árt>10sum>10sumarh
199699146,05,01
1997177448,05,47
1998104137,45,81
1999214559,95,37
2000166356,95,47
20011511,54,69
2002111203,75,20
2003229578,06,93
20042391007,46,41
2005148271,25,38
200688113,15,09
2007177235,66,04
2008213652,46,14
2009   
2010   
2011124167,35,29
2012266428,66,70
2013156537,95,10
20146165,65,95
    
međ152348,35,65

Hiti mánađanna júní til ágúst 2014 var 0,3 stigum yfir međallagi allra áranna. Aftur á móti var fjöldi athugana međ hćrri hita en 10 stigum ekki nema 61, 91 fćrri en í međalsumri. Ţetta er nćstlakasta sumar tímabilsins hvađ ţetta varđar (2001 var enn slakara). Einnig er sérlega athyglisvert hversu lág summan er, 307,7 stigum undir međallagi (líka nćstlćgst). 

Á Skálafelli var júnímánuđur hlýjastur mánađanna júní til ágúst, í Reykjavík var hann kaldastur ţeirra. Júnímánuđur 2014 var reyndar hlýjasti júní sem mćlst hefur á Skálafelli (athuga ađ 2009 og 2010 vantar). Međalhitinn var 6,2 stig.

Svo geta menn velt vöngum yfir ţessum tölum og lífi Gunnlaugsskarđsskaflsins. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Já ţetta eru mjög sérstakar tölur. Sérstaklega samanburđurinn milli 2013 og 2014.

2013 var ekki hlýtt sumar en samt er summan yfir 10 stigum ţetta miklu hćrri en 2014. Ţađ má svo kannski segja um áriđ 2014 í heild ađ ţađ hafi veriđ hlýtt en alveg án öfga.

Emil Hannes Valgeirsson, 25.9.2014 kl. 00:50

2 identicon

Af hverju skilgreinirđu tölurnar viđ 10 gráđur á ţennan hátt? Er ţađ tengt einhverri formúlu um ţá orku sem fer í bráđnun?

Ekki ţađ ađ ég bjóđi upp á einhverja betri lausn, en er hugmyndin semsagt sú ađ snjór bráđni hrađar um sumar sem einkennist af nokkrum heitum tímabilum frekar en sumri međ sama međalhita sem er jafnara? Og er ţađ ţá munur sem tengist hitanum beint en ekki t.d. magni sólskins? Ţeas. ađ nota svona summu skilgreiningu gćti náđ utan um ađrar breytur en hitastig sem sýna fylgni viđ heit tímabil, eins og meira sólskin (oftast).

Hákon S (IP-tala skráđ) 25.9.2014 kl. 16:51

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Emil - já, sumariđ var öfgalaust hvađ hita varđar - veturinn var ţađ líka. Hákon. Pistillinn er innlegg í umrćđur um skaflinn í Gunnlaugsskarđi og sýnir vel hversu lítiđ var um mjög hlýja daga síđastliđiđ sumar - ţrátt fyrir almenn hlýindi og mjög háan međalhita. Talan 10 stig er valin til ađ sýna ţetta. Ţađ er ekkert sérstakt sem gerist í bráđnun nákvćmlega viđ ţessa tölu. Reyndar var dćmiđ reiknađ fyrir fleiri tölur. En mjög sólarlítiđ var í Esjunni í sumar - og tel ég ađ sólskin í júní og júlí ráđi miklu ásamt hitanum - og fleira reyndar. Ţađ er ekki mjög mikiđ mál ađ setja upp mćlitölur sem tćkju tillit til annarra ráđandi afkomuţátta. Gaman vćri ef einhver reyndi ţađ - en gallinn er hins vegar sá ađ mćlingar skortir á skaflinum um lengri tíma til ađ kvarđa slíkt líkan.   

Trausti Jónsson, 25.9.2014 kl. 21:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1514
  • Frá upphafi: 2348759

Annađ

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 1320
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband