17.8.2014 | 00:56
Sýndarsnjór á landinu 15. ágúst
Í spálíkönum nútímans fellur snjór og bráðnar - rétt eins og í raunveruleikanum. Hann safnast fyrir á vetrum - en bráðnar síðan á vorin og yfir sumarið. Að því kemur - rétt eins og í raunveruleikanum að bráðnunarskeiðinu lýkur - fyrst á hæstu fjöllum og jöklum. Talsverðu munar auðvitað á hinum raunverulega snjó og líkansnjónum - þeim sem við höfum viljað kalla sýndarsnjó. Hver reitur í líkaninu er um 2 km á kant - ekkert minna sést. Það er svosem reynt að stika það sem minna fer fyrir með einhverjum reiknikúnstum - en sú stikun er alltaf álitamál. - Skaflar liðins vetrar geta verið mjög stórir án þess að líkanið sjái þá. Ekki meira um það.
Eitt af því sem líkanið á e.t.v. erfitt að ráða við er endurskinshlutfall snævarins. Það skiptir mjög miklu máli hvert það er. Sé snjór nýr endurkastast mun meira af stuttbylgjugeislum sólar heldur en gerir sé hann gamall - og jafnvel rykugur. Einmitt þegar þetta er skrifað (laugardaginn 16. ágúst) snjóar á jökla um landið austanvert. Þá hækkar endurskinshlutfall yfirborðs þeirra mjög - og hreinlega gæti verið að sumrinu sé einfaldlega lokið ofantil á þeim. Hefði ekkert snjóað hefði hins vegar sumarið getað haldið þar áfram. - En þetta eru vangaveltur - ritstjóri hungurdiska fylgist ekkert með rennsli í ám og veit í raun lítið um það - aðrir vita alla vega miklu betur.
En við skulum samt líta á sýndarsnjóhulu á landinu eins og hún var í líkaninu í gær, föstudaginn 15. ágúst.
Tölur og litir sýna snjómagn, í kílóum á fermetra. Hér sést að allur sýndarsnjór sem féll í vetur og vor á hina stóru skriðjökla Vatnajökuls er bráðnaður. Það sem er skemmtilegast við þessa mynd (finnst ritstjóranum) að hér sjást ákomusvæði jökulsins vel - (eins og líkanið vill hafa það). Í sumar hefur lítið sem ekkert bráðnað á hæstu og úrkomumestu fjöllunum - en ekki heldur bæst mikið við frá því sem var í vor.
Þótt ritsjórinn hafi auðvitað lítið vit á jöklafræði rennir hann í grun um að illa verði komið fyrir Vatnajökli ef og þegar ákomusvæðið hættir að tengjast saman - sem það þrátt fyrir allt gerir nú - en hörfar inn upp til fjallanna 5 til 7 (eftir því hvernig talið er).
Mýrdalsjökull og Drangajökull eru mjög vel staddir eftir sumarið og kannski Hofsjökull og Eyjafjallajökull líka.
En fyrir alla muni skoðið tölurnar - kortið batnar talsvert sé það stækkað (smella á kortið - og smella síðan aftur á þá mynd sem fyrst birtist). En munið líka að þetta er líkan - raunveruleikinn kann að vera allur annar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 90
- Sl. sólarhring: 155
- Sl. viku: 2011
- Frá upphafi: 2412675
Annað
- Innlit í dag: 87
- Innlit sl. viku: 1761
- Gestir í dag: 82
- IP-tölur í dag: 76
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.