2.8.2014 | 01:13
Norðankuldinn í hámarki (en hörfar síðan)
Þótt sæmilegur hiti hafi haldist suðvestanlands í sólinni yfir hádaginn - finna væntanlega flestir fyrir því hvað andinn er kaldur. Enda hefur kuldi langt norðan úr íshafi náð alveg til landsins. Sem dæmi má nefna að hámarkshiti á veðurstöðinni á Gagnheiði var +0,1 stig í dag.
Það er eiginlega ekki hægt að sleppa því að sýna mynd evrópureiknimiðstöðvarinnar af þykktinni og hitanum í 850 hPa-fletinum á hádegi í dag.

Jafnþykktarlínur eru heildregnar. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs - því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Litirnir gefa hita í 850 hPa-fletinum til kynna. Allt undir -2 stigum telst óvenjulegt um mánaðamótin júlí/ágúst. Enn snarpari kuldapollur var þó á ferð í kringum 25. júlí 2009 - þá urðu miklar skemmdir á kartöflugrösum í næturfrostum. Það sem bjargar málinu sennilega nú er að jörð er mjög rök - það hækkar daggarmark í neðstu 1 til 2 metrunum og kemur í veg fyrir að hitinn lendi í frjálsu falli í björtu veðri. - Auk þess er víða skýjað - það bjargar miklu.
Mjög kalt var fyrstu daga ágústmánaðar í fyrra (2013) - en sá kuldapollur var vægari hvað þykkt varðaði en hiti í 850 hPa varð ámóta lágur yfir landinu og hann er nú. Landsmeðallágmarkshiti aðfaranótt 1. ágúst í fyrra var 4,9 stig - en 4,4 nú. Það var hins vegar aðfaranótt þess 7. sem var köldust yfir landið í heild í kuldakastinu þá, meðallágmarkið var aðeins 3,4 stig. Í fyrra náði sumarið sér varla á strik eftir kuldakastið. Vonandi gengur betur í ár.
Spár gera nú ráð fyrir því að kuldinn hörfi þegar líður á helgina og hættan verði þá að mestu liðin hjá.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 122
- Sl. sólarhring: 220
- Sl. viku: 1654
- Frá upphafi: 2457209
Annað
- Innlit í dag: 101
- Innlit sl. viku: 1505
- Gestir í dag: 93
- IP-tölur í dag: 91
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Ein spurning út í bláinn, en þó ekki alveg; Getur verið að hægt sé að líkja ástandinu í sumar og því síðasta reyndar einnig, við krapastíflu. Þ.e. hún vofir yfir fyrir ofan og lætur sjá sig, á endanum?
Eru sögusagnirnar um veðrið þessa daga fyrir sumarið, Hundadaga osfrv. kannski ekki svo galnar eftir allt?
Sindri Karl Sigurðsson, 2.8.2014 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.