3.2.2014 | 01:05
Ýmislegt smálegt um jafnaðarmánuðinn janúar 2014
Nýliðinn janúar verður að teljast jafnaðarmánuður bæði hvað hita og loftþrýsting varðar. Hitaspönn mánaðarins, það er munur á hæsta hámarkshita og lægsta lágmarkshita í byggð á landinu var aðeins 26,5 stig.
Við getum notað orðið aðeins í þessu sambandi vegna þess að það þarf að fara aftur til janúarmánaðar ársins 1990 til að finna viðlíka (26,1 stig) og aftur til 1947 til að finna lægri tölu (23,8 stig). Vafasamt er reyndar að hægt sé að bera 1947 og 2014 saman vegna þess að hámark og lágmark var mælt á mun færri stöðvum 1947 en nú er gert - sérstaklega hámarkið.
Hæsti hiti í byggð í mánuðinum var 10,1 stig (Skaftafell þ. 24.) en sá lægsti mældist -16,4 stig (á Kálfhóli á Skeiðum þann 11.) Við sleppum hálendisstöðvum vegna þess að séu þær teknar með náum við ekki samanburði nema um 15 ár aftur í tímann.
Janúarhámarkið hefur ekki verið svona lágt síðan 1994, þá mældist hæsti hiti mánaðarins 9,4 stig (á Seyðisfirði). Byggðarlágmarkið hefur ekki verið svona hátt síðan 1990, þá mældist lægsti hitinn í mánuðinum -16,1 stig á Brú á Jökuldal.
Munur á hæsta hámarki og lægsta lágmarki var líka lítill í Reykjavík og á Akureyri. Í Reykjavík var spönnin nú 12,0 stig. Hún var jafnlítil í janúar 1987 - en annars aldrei að minnsta kosti frá 1924. Á Akureyri var spönnin nú 12,7 stig sem er miklu minna heldur en minnst er vitað um áður (16,3 stig í janúar 1990). Samfelldar útgildamælingar á Akureyri ná aftur til 1936 (nokkur ár á stangli fyrir þann tíma).
Staðalvik dagameðaltala er líka fádæma lítið á þessum tveimur stöðvum, aðeins 1,41 stig í Reykjavík (næstminnst 1950, 1,99 stig) og 1,70 stig á Akureyri (næstminnst 2,25 stig 1974). Þessi samanburður nær aftur til 1949. Reikningarnir fyrir árið í ár teljast til fljótaskriftarreikninga og tölurnar óstaðfestar.
Loftþrýstingur í nýliðnum janúar var langt undir meðallagi. Hann var síðast lægri en nú 1993 - en reyndar ámóta lágur í janúar 2009. Þrátt fyrir þetta var lægsti þrýstingur sem mældist í mánuðinum ekkert sérstaklega lágur - en það er ekki oft sem hæsti þrýstingur janúarmánaðar hefur verið lægri en nú. Reyndar aðeins fjórum sinnum frá upphafi samfelldra mælinga á fleiri en einum stað, 1873.
Hæsti þrýstingur janúar í ár mældist í Bolungarvík þann 29., 1014,9 hPa. Lægsti hámarksþrýstingur sem vitað er um í janúar hér á landi er 1006,0 hPa 1974. Hin þrjú tilvikin eru frá 1990, 1887 og 1930.
Vindhraði var yfir meðallagi í janúar - en ekki er ótrúlegt að áttfesta hafi verið meiri en að meðaltali. Sagt verður frá því síðar teljist ástæða til.
Febrúar fer af stað í svipuðum dúr. Þykktinni er spáð á milli 5200 og 5300 metra næstu tíu daga - mikill jöfnuður þar. Sé sú spá rétt þýðir það að hvorki verður hlýtt né kalt - og austanáttunum er líka spáð framhaldslífi allan þennan tíma, mishvössum að vísu.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 25
- Sl. sólarhring: 127
- Sl. viku: 1587
- Frá upphafi: 2452693
Annað
- Innlit í dag: 25
- Innlit sl. viku: 1467
- Gestir í dag: 24
- IP-tölur í dag: 24
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Það er jafnan erfitt fyrir leikmenn að skilja "lært" mál. Þetta tal Trausta um lágþrýsting er t.d. illskiljanlegt flestum. Er hér ekki að vera að tala um lægðasvæði yfir landinu með tilheyrandi vindi (og yfirleitt úrkomu sem reyndar var ekki raunin í síðasta mánuði)?
Ég túlka það svo a.m.k. Það kemur einnig fram í veðurlýsingu Veðurstofunnar á janúarmánuði sem birtist á vefnum þeirra (vedur.is) nú fyrr í dag.
Þar kemur fram að meðalloftþrýstingur í Reykjavík hafi verið 987,9 hPa sem er 12,4 hPa undir meðallagi. Meðalþrýstingur var nánast jafnlágur í janúar 2009 en hefur annars ekki orðið svona lágur í janúar síðan 1993.
Þetta gerði það að verkum að vindhraði á landinu var um 0,4 m/s yfir meðallagi janúarmánaða.
Þrátt fyrir þetta lágþrýstisvæði nú í janúar var úrkoma undir meðallagi vestan- og norðvestanlands.
Úrkoman mældist t.d. 64,2 mm í Reykjavík og er það um 15% minna en í meðalári.
Ég tel þessa litlu úrkomu vera höfuðástæðu þess að ekki hefur tekist að bræða klakann hér á suðvesturhorninu en ekki einhver "jafnaðarmánuður" hvað hita varðar, eða lítill munur á "hæsta hámarki og lægsta lágmarki" eins og Trausti vill meina!
Rok og rigning (en það síðarnefnda vantaði í nýliðnum mánuði) þíðir klakann best en ekki hitinn einn og sér!
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 3.2.2014 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.