2.2.2014 | 01:30
Enn af hlýjum janúarmánuðum
Landsmeðalhita má reikna á ýmsa vegu. Það má nota til þess öfluga tölfræði - eða einfalt samsafn stöðvameðaltala og allt þar á milli. Við getum með góðri vissu reiknað landsmeðalhita aftur til 1930 og með sæmilegri aftur til 1880 eða þar um bil. Allt sem er lengra aftur á bak verður mest til gamans. Sömuleiðis er tveggja aukastafa nákvæmni ekki nema leikur.
Í skemmtiskyni hefur ritstjórinn reiknað út meðalhita í janúar aftur til 1874 og búið til lista yfir hlýjustu og köldustu mánuði - topp ellefu, tölur í °C. Fyrst hlýindalistinn:
röð | ár | janúar |
1 | 1947 | 2,99 |
2 | 1973 | 2,37 |
3 | 1972 | 2,24 |
4 | 1987 | 2,10 |
5 | 1950 | 2,07 |
6 | 1946 | 2,06 |
7 | 1964 | 1,92 |
8 | 1992 | 1,90 |
9 | 2013 | 1,87 |
10 | 2014 | 1,67 |
11 | 1935 | 1,45 |
Hér er janúar 1947 í fyrsta sæti. Síðan kemur parið 1973 og 1972, en nýja parið 2013 og 2014 er í níunda og tíunda sæti. Svo er frekar langt niður í 11. sætið - þar er janúar 1935.
Við vitum eitthvað um hita allra janúarmánaða á 19. öld - nema 1802 og 1822. Sá fyrri var illræmdur illviðramánuður og ólíklegt að hann kæmist á þennan lista. Sömuleiðis er 1822 einnig ólíklegur til afreka. Það er aðeins einn mánuður fyrir 1874 sem örugglega á heima í einhverju toppsæti. Reyndar gæti hann vel hafa verið sá hlýjasti þeirra allra. Við þekkjum meðalhita sæmilega á þremur stöðvum 1847, í Reykjavík, í Stykkishólmi og á Akureyri og á öllum þessum stöðvum er mánuðurinn hlýrri en allir aðrir janúarmánuðir fyrr og síðar.
Svo kuldalistinn, 11 köldustu mánuðirnir frá 1874 að telja:
röð | ár | janúar |
1 | 1918 | -10,25 |
2 | 1881 | -9,78 |
3 | 1874 | -8,69 |
4 | 1886 | -6,22 |
5 | 1979 | -4,93 |
6 | 1936 | -4,84 |
7 | 1902 | -4,78 |
8 | 1959 | -4,44 |
9 | 1920 | -4,37 |
10 | 1971 | -4,36 |
11 | 1892 | -4,33 |
Hér eru fáeinir mánuðir sem eldri veðurnörd muna vel, 1979 og 1971, og þau síðmiðaldra líka 1959 og enn muna fáein janúar 1936.
En sé farið í eldri meðaltöl fyllist allt af köldum janúarmánuðum. Ef við förum aftur til 1823 troða svo margir mánuðir sér inn á listann að 1892 fer niður í 20. sæti og 1979 niður í það 16. Fyrstu þrjú sætin eru þó óbreytt - það eru sennilega þrír köldustu janúarmánuðir síðustu 200 ára, kannski blanda 1814 og 1808 sér í leikinn sé farið alveg aftur til aldamótanna 1800, en 1802 og 1822 vitum við ekki um eins og áður er getið.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 143
- Sl. sólarhring: 219
- Sl. viku: 1705
- Frá upphafi: 2452811
Annað
- Innlit í dag: 134
- Innlit sl. viku: 1576
- Gestir í dag: 132
- IP-tölur í dag: 131
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Vissi það að 2014 næði upp i topp ten!
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2014 kl. 12:16
Fin siða
hildur bjorg eydal (IP-tala skráð) 2.2.2014 kl. 12:21
Kærar þakkir Trausti fyrir markverða samantekt.
Þá er það staðfest að janúar 2014 er -0.2°C kaldari en janúar 2013. Enn virðist því vera að > k ó l n a < á Íslandi :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 2.2.2014 kl. 12:48
Er Vestmannaeyjarbær inn í þessu, Trausti? Ef ekki þá vantar 2 heitustu staðina. Eða breytir það kannski litlu í þessum útreikningum?
Hilmar, þessi -0,2°C er frekar léleg smámunasemis"rök" fyrir þinn málstað.
Pálmi Freyr Óskarsson, 2.2.2014 kl. 17:26
Nú vil ég auðvitað ekki efna til "lesendadeilna um páfadóm í loftslagsvísindum" enda næsta víst að síðuhaldari eyðir snemmendis umfjöllunum/ummælum sem halla á boðaða max 6°C meðalárshlýnun á Íslandi á þessari öld.
Hitt er svo ljóst að 0,2°C hitamismunur er þriðjungur af óðahnatthlýnuninni skelfilegu sem sumir segja að hafi verið að herja á jarðarbúa sl. 100 ár, af meintum manna völdum :D
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 2.2.2014 kl. 20:27
Hilmar: Af hverju ertu að rugla saman hita í janúar á Íslandi og hnattrænum hita - gerirðu ekki greinarmun þar á?
Höskuldur Búi Jónsson, 2.2.2014 kl. 20:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.