Hlýr janúar

Janúar sá sem nú er liðinn reyndist hlýr. Eiginlega ætti að segja mjög hlýr því ritstjóranum sýnist í fljótheitum að hann sé í 12. hlýjasta sæti frá upphafi samfelldra mælinga bæði í Reykjavík og á Akureyri. Það eru hins vegar ekki alveg sömu janúarmánuðirnir sem eru í 11 efstu sætunum á stöðvunum tveimur. Janúar í fyrra var hlýrri í Reykjavík heldur en nú - en ívið kaldari á Akureyri.

Þá er spurningin hvað febrúar gerir. Þegar til lengri tíma er litið er samhengi hita mánaðanna tveggja ekkert og um langa hríð á síðari hluta 20. aldar fylgdust þeir verr að heldur en t.d. janúar og mars. Í fyrra voru bæði janúar og febrúar mjög hlýir og saman tókst þeim að búa til eina allrahlýjustu ársbyrjun sem um getur hér á landi - mars olli vonbrigðum hvað hita varðar og flestir mánuðir eftir það þótt hitinn tæki vissulega góða spretti í júní og júlí.

Janúar í ár verður einnig merkilegur fyrir það að hiti skyldi ekki fara niður fyrir frostmark á Vattarnesi (milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar). Ekki var það þó hlýjasti staður landsins að meðaltali í janúar - meðalhiti var hærri á einum tíu stöðvum. Mánaðarlágmarkið var +0,4 stig. Það hefur ekki gerst áður að frostlaust hafi verið á íslenskri veðurstöð allan janúar.

Í Seley (ekki langt undan) fór lágmarkshitinn niður í frostmark, nákvæmlega. Á vegagerðarstöðinni í Hvalnesi fór hiti lægst niður í +0,1 stig. Lágmarkið á Stórhöfða (sem var með í keppninni þar til í gær - fimmtudag) fór lægst í -1,5 stig. Í fljótu bragði (allt í fljótubragðaham seint á föstudagskvöldi) sýnist það vera hæsta lágmark á Stórhöfða í janúar - fyrsti mælingajanúar þar var 1922.

Nú - en þess má líka geta að á tveimur stöðvum varð aldrei frostlaust í mánuðinum - hvar skyldi það hafa verið? Jú, á Þverfjalli í Ísafjarðarsýslu (ekki viss hvort það er Vestur-Í eða Norður-Í), þar fór hitinn hæst í -0,6 stig og í Sandbúðum þar sem mánaðarhámarkshitinn mældist -0,1 stig. Og svo fór hiti aldrei upp fyrir frostmark á Gagnheiði, hámarkið var 0,0 stig. Ef út í það er farið var lægsta lágmark á Gagnheiði furðuhátt, -8,5 stig, á Þverfjalli -9,0 - það er líka há tala.

Jafnhiti var mestur við strendur Austurlands, munur á hæsta hámarki og lægsta lágmarki minnstur á Fonti á Langanesi, 6,5 stig. Hitaspönn var mun meiri inn til landsins, mest á Þingvöllum þar sem munaði 23,3 stigum á mánaðarútgildum.

Allt í allt var janúar jafnaðarmánuður hvað hita varðar - og trúlega vindstefnu líka. En önnur saga er af úrkomunni, rosaleg eystra - meiri en 600 mm á Hánefsstöðum við Seyðisfjörð en lítil vestanlands - hversu lítil sjáum við ekki með öryggi fyrr en frumgögn berast frá þeim stöðvum sem ekki hafa náð að skila skeytum daglega.

Svo er það snjóhulan - ábyggilega óvenjulítil víða um land þótt klakar úr fyrri mánuði hafi verið sérlega þrálátir. Dýr varð spilliblotinn sem kom ofan í kuldakastið mikla snemma í desember. Að sjálfsögðu er ekki hægt að kenna honum einum um öll beinbrotin (mörg hundruð?) og trúlega þúsundir marbletta - en svona er það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hlýtur að hafa valdið þér vonbrigðum Trausti að janúar í ár hafi ekki náð á topp tíu listann eins og þú varst að gera þér vonir um - og stefndi lengi að.

En óháð því þá gera þessi "hlýindi" ekki mikið gagn.

Svellin minnka lítið þannig að ljóst er að kal verður mikið í vor hér á suðvesturhorninu a.m.k. ´

Þá hefur veðráttan í vetur leikið trjágróður illa víða. Skaflar eru miklir eftir snjókomu í nóvember og jafnvel desember, og vegna roksins sem hefur verið hefur snjóinn skafið í skafla hléveðurs og farið illa með tré.

Reyndar eru síðustu vetrar búnir að vera skógræktinni erfiðir og valdið miklum spjöllum á trjám.

Já, það er ekki allt tekið út með sældinni með þessum "hlýindum". Óskandi væri að vetur séu vetur og sumur sumur en ekki hlýindakaflar um miðjan vetur og svo kuldatíð á sumrin.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 1.2.2014 kl. 10:19

2 identicon

Hefur eitthvað farið úrskeiðis með 31.jan. í daglegu brauði?

Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 1.2.2014 kl. 10:26

3 identicon

Ástæðan fyrir hinu milda veðri hér á landi nú í janúar er hæð yfir Skandinavíu (sem er greinlega mun hagstæðari okkur, hvað vindafar varðar, en hæð fyrir norðan okkur eða norðvestan sem var raunin fyrri hluta mánaðarins með miklum strekkingi).

Í Norður-Noregi hins vegar hefur verið mjög kalt og ekki komið dropi eða snjókorn úr lofti á mörgum veðurstofum þar allan mánuðinn. Þar er þurrasti janúarmánuður sem nokkurn tímann hefur mælst.

http://www.yr.no/nyheter/1.11507060

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 1.2.2014 kl. 11:36

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það kemur nánast ekkert inn á daglega brauðið fryri 31. jan.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.2.2014 kl. 11:49

5 identicon

Sæll Trausti og alúðarþakkir fyrir upplýsingarnar.

"Topp tíu" janúarhlýindin standa þá óhögguð áfram - eftir allt saman. Svona eru fræðin hverful. En það má sjálfsagt reyna að leita að hitametum í hafdjúpunum í staðinn ;)

Ég hef áður minnst á véfréttastílinn sem starfsmenn Veðurstofu Íslands virðast hafa tileinkað sér í seinni tíð. Nú þætti mér vænt um að fá að sjá töflu yfir hlýjustu janúarmánuði á Íslandi, frá upphafi mælinga. Með því á ég að sjálfsögðu við útreiknaðan meðalhita á landinu en ekki sérvaldar stöðvar.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 1.2.2014 kl. 13:45

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Óskar og Sigurður. Það daglega brauð sem bakað er jálfvirkt þann fyrsta hvers mánaðar inniheldur aðeins metalistann fyrir 1. febrúar - en ekkert úr janúar - þess í stað kemur mánbrauð í sama ofni (í listanum dagsett 1.2.) - í því er yfirlit yfir nýliðinn mánuð. Ég baka e.t.v. brauð fyrir þ.31. síðar í dag ef ég kemst til þess.

Trausti Jónsson, 1.2.2014 kl. 15:50

7 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Janúarmánuðir hafa verið hlýir undanfarin ár og í Reykjavík sýnist mér meðalhitinn síðustu 6 ár hafa verið 1,87°C sem eru sannkölluð miðvetrarhlýindi. Athyglisvert er líka að janúar er orðinn hlýrri en desember miðað við 10 ára meðalhita.

Emil Hannes Valgeirsson, 1.2.2014 kl. 16:07

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Síðustu vetrarmánuðir hafa verið yfirleitt hlýir og sumurinn ekki síður nema það siðasta á sunnan og vestanverðu landinu og einn júní fyrir norðan fyrir skemmstu. Það er því ekki hægt að tala um neina kuldatíð á sumrin mörg síðustu ár. Mér kæmi reyndar ekki óvart þó þessi janúar komist inn á topp tíu hlýindalistann þegar allt landið kemur inn í. Slíkur mánuður einkennist auðvitað af hlýindum hvað sem líður klaka frá mánuðinum á undan. Vetrarhiti er mjög breytilegur milli ára og ekki síður milli daga. Vetrarhlákur, stundum langar, eru eitt af einkennum íslensks veðurfars og oft eru rysjótt sumur. Það er ekki hægt að búast við köldum og vetrum sem eiga að vera eins og t.d. vetur í Finnlandi eða sólríkum sumrum sem eiga að vera þá sumur, t.d. eins og þar eru líka miðað við okkur. Það er með öllu fánýtt og tóm tjara að vera með óskhyggju um að vetur eigi að vera vetur og sumur sumur á Íslandi! Við getum ekki óskað okkur út úr náttúrulegu veðurfari landsins.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.2.2014 kl. 17:22

9 identicon

Einmitt Sigurður! Það sem við erum að upplifa núna er "náttúrulegt veðurfar landsins", þ.e. þetta dæmigerða eyjaloftslag.

Þess vegna skil ég ekki alveg þetta sífellda metatal (þennan meting). Þetta er einfaldlega íslenskt veðurfar ... með ákveðnum sveiflur eins og gerist.

Mér leiðist það hins vegar enda bæði búið lengi fyrir norðan þar sem sveiflur eru miklu minni - og einnig lengi erlendis þar sem maður er blessunarlega laus við þessar öfgar í veðurfari.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 1.2.2014 kl. 18:27

10 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Nákvæmlega náttúrulegar sveiflur - en undir er hnattræn hlýnun eins og flestir vita.

Höskuldur Búi Jónsson, 1.2.2014 kl. 20:36

11 identicon

Hér má víst ekki efna til "lesendadeilna um páfadóm í loftslagsvísindum" án þess að eiga á hættu að síðuhaldari eyði umfjöllun/ummælum.

Því er rétt að leyfa þessari trúarsetningu innvígðra að standa, enda rímar hún ágætlega við boðaða max 6°C hækkun meðalhita á Íslandi á þessari öld, samkvæmt trúarriti íslensku vísindanefndarinnar um loftslagsbreytingar - sérlegri undirnefnd IPCC á Íslandi! :)

Það er bara eitt vandamál Trausti Jónsson - hvar er boðaða hlýnunin?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 1.2.2014 kl. 22:45

12 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Hilmar: má ekki bjóða þér að koma með þína spá um hnattræna kólnun eða er hún of óljós til að festast á blaði - sjá hér: http://www.loftslag.is/?p=14586

Höskuldur Búi Jónsson, 1.2.2014 kl. 23:28

13 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Og nú er bara að vona að febrúar verði hlýr því að þá er von til þess að hægt verði að nota þá aðferð sem kuldatrúarmenn töldu heppilesta til þess að finna út hvað síðasta ár var kalt; að sleppa janúar og febrúar út úr meðaltali ársins.

Ómar Ragnarsson, 2.2.2014 kl. 00:34

14 identicon

Getur ekki staðist að það hafi verið óvenjulega jafn hiti í þessum janúar, a.m.k. í Reykjavík? Mér finnst eins og það hafi eiginlega aldrei komið "alvöru" hláka (rok og rigning með 6-8 stiga hita í einhvern tíma) heldur var hitinn ótrúlega oft um 3 stig og svo komu engin kuldaköst. Þetta mundi kannski líka skýra svellalögin, þau minnka mjög hægt í 3 stiga hita og lítilli úrkomu þegar ekki er nein sólbráð. Vanalega sjást ekki mikil svellalög í svona hlýjum janúarmánuðum, a.m.k. ekki á höfuðborgarsvæðinu.

Mér dettur sem sagt í hug að það gæti verið forvitnilegt að sjá t.d. staðalfrávik hitans núna í janúar samanborið við aðra janúarmánuði.

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 2.2.2014 kl. 00:54

15 Smámynd: Trausti Jónsson

Ómar, fyrsti dagur febrúar var 4,5 stigum yfir meðallagi síðustu 10 ára - en það er víst útilokað að slíkt haldi áfram. Björn, það er rétt að hiti var óvenjujafn í janúar og rétt skýring þín á viðveru klakans. Desemberklaki vill verða sérlega þrásetinn - eftir 20. febrúar fer að muna um sólina yfir hádaginn og vinnur hún vel á síðvetrarklaka í björtu veðri (þótt hann geti svosem verið leiðinlegur líka). Það vakti eftirtekt fleiri veðurnörda hvað lítið var um hámarks- og lágmarksdægurmet í mánuðinum - jafnvel á stöðvum sem aðeins hafa athugað stuttan tíma. Um óvenju lágt landsmánaðarhámark var fjallað um á hungurdiskum fyrir nokkrum dögum og reyndar var landsmánaðarlágmarkið með hæsta móti. Mánaðarspönnin var með minnsta móti.

Trausti Jónsson, 2.2.2014 kl. 01:30

16 identicon

Ómar! Suðvestanlands var árið í fyrra það kaldasta frá árinu 2000. Í Reykjavík "aðeins" 36. hlýjast af 143 árum eða -0,6 undir meðallagi síðustu 10 ára.

Því þurfum við "kuldatrúarmenn" ekkert að sleppa tveimur fyrstu mánuðum ársins í fyrra til að fá "heppilegar" kuldatölur fyrir okkur!

Reyndar var janúar í ár hér á höfuðborgarsvæðinu mun kaldari en í fyrra eða sem munar 0,4 gráðum (2,3 nú en 2,7 í fyrra).

Þá er það einnig kaldara á landsvísu eða sem munar 0,2 gráðum.

Þannig að ef við reiknum frá mars-mars þá kemur "árið" enn mun verr út en ef við reiknum frá janúar-janúar.

Svo sýnist mér febrúar ætla að vera kaldur, ef eitthvað er að marka spána næstu daganna. Það er aðeins fyrsti dagur mánaðarins sem ætlar að vera hlýr.

"Kulda"trúin er þannig allavega mun nær raunveruleikanum þessi dægrin en "ofsahlýnunar"trúin.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 2.2.2014 kl. 10:39

17 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Veðurnördum finnst gaman að veðurmetum til allra átta alveg eins og áhugamönnum um íþróttum er dillað þegar met eru sett í íþríttum. Það bara fylgir því að vera veðurnörd með útstæð eyru! En þó íslenskt veðurfar sé breytilegt eru topp tíu met t.d. fyrst og fremst til vintis um aftaka útgildi hvers konar en ekki hversdagslegan breytileika. Þau segja því talsvert um þau mörk sem veðurfar viðkomandi svæðis er innan sem ýtrustu metin sýna að geta færst ofurlítið til en aldrei um of. Veðurmet verða að sjálfsögðu líka í löndum þar sem verðurfar er stöðugra og allt öðru vísi en hér. Hvað öfgar varða í veðri, en mjög er tísku að tala um þá,  eru  slíkir öfgar í minum huga eitthvað sem er sérlega afbrigðilegt en ekki t.d. að eftir 2 stiga janúar komi -2 stiga febrúar eða mjög þurrt sé á einum stað en vott á öðrum sem sé þá oft sama veðurfyrirbærið. Raunverulegir öfgar finnst mér aftur á móti hafa t.d. verið að eftir einvherjum hlýjasta sumri 1880 kom kuldavetur sem sló allt út strax á eftir, 1881. Að mínu viti hafa ekki verið neinir öfgar, sem hægt er að tala um, í íslensku veðrufari alla þessa öld. - Þessum orðum er ekki stefnt gegn neinum í hugmyndastríði heldur er ég bara að hugsa upphátt um atriði í veðurfari sem mér finnst skipta máli hvernig eru skilin. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2014 kl. 12:38

18 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hámarks og lágmarkshiti mönnuðu stöðvanna 31. jan. hefur í það minnsta ekki komið inn á daglega brauðið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.2.2014 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 25
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 516
  • Frá upphafi: 2343278

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 468
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband