28.1.2014 | 01:24
Þriðja (misheppnaða?) kuldaásóknin úr vestri (í þessum mánuði)
Eins og fram kom á þessum vettvangi í fyrradag er lítið um kalt loft í námunda við landið - aðallega heimatilbúið. En á fimmtudaginn koma kuldaskil úr vestri - og virðast ætla að fara svipað að og þau tvenn síðustu - að slefast í vestanátt með snjókomu en síðan tekur austanáttin furðuhlýja við aftur.
Við skulum líta á óvenjulegt kort - það sýnir sjávarmálsþrýsting eins og evrópureiknimiðstöðin spáir honum um hádegi á miðvikudag. En á kortinu má líka sjá vind í 700 hPa-fletinum (við þykjumst varla sjá hann), þykktina (svartar strikalínur) og þykktarbreytingu næstliðnar sex klukkustundir á undan gildistíma spárinnar.
Bláa flykkið er þykktarbreyting - inni í kjarnanum (fjórða bláa lit) hefur þykktin fallið um 120 metra. Þar hefur kólnað um 6 stig á 6 tímum. Heildarkólnun er meiri því það tekur blámann meir en 6 klukkustundir að fara alveg yfir. Þarna eru býsna öflug kuldaskil á leið til austurs og norðausturs.
Þau eru líka á leið til suðausturs og til að komast til Íslands verður eitthvað af þeim að geta hreyfst til norðausturs. Gliðnunin (breikkun víglínunnar) þýðir að það linast á framsókninni og skilin rétt komast til Íslands áður en þau eyðast. Spáin nú segir að þau komi inn á Suðvesturland síðdegis á fimmtudag - en aðeins 12 stundum síðar verði næsta austanáttarlægð mætt á svæðið.
Nú (á mánudagskvöldi) lifa fjórir dagar af janúar og enn lifir líka vonin um fyrsta frostlausa janúarmánuðinn hér á landi. Sömu stöðvar og fyrr eru með í keppninni, Stórhöfði, Vattarnes og Seley (en þar er stendur núll komma núll enn sem lægsti hitinn). Vestmannaeyjabær er þegar dottinn út úr keppni bæði vegna kulda (-0,5 stig) og á tæknivillu (fáeinar lágmarksathuganir vantar). Þetta verður ansi tæpt.
Mánaðarmeðalhitinn er enn í 8. sæti allra hlýjustu og á Akureyri í 10. sæti. Á topp tíu janúarlista Reykjavíkur eru nú þrjú árapör, 1946 og 1947, 1972 og 1973 og 2013 og 2014. Hvernig skyldi standa á því? (- Því er þannig varið að ritstjórinn veit ekki svarið).
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.1.): 1040
- Sl. sólarhring: 1119
- Sl. viku: 3430
- Frá upphafi: 2426462
Annað
- Innlit í dag: 927
- Innlit sl. viku: 3083
- Gestir í dag: 899
- IP-tölur í dag: 832
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Mér sýnist að síðast hafi verið frost á Stórhöfða 27. desember og enn er frostlaust.
Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 09:45
Svo spurning hvað frostdagarnir séu margir, eða á maður segja frekar fáir þennan veturinn á Stórhöfða. Svo er líka spurning hvar dagurinn í dag 28. janúar 2014 lendi ofarlega á topplista í hægvirðisdegi í janúar á Stórhöfða. Núna kl.16 er allavega búið að vera ansi litill vindur síðan frá miðnætti.
Pálmi Freyr Óskarsson, 28.1.2014 kl. 16:08
Óskar. Þetta er orðið mjög óvenjulegt - ég athugaði málið og má lesa um bráðabirgðaniðurstöðu þess í bloggpistli þeim sem fylgir á eftir þeim að ofan. Pálmi - minntu mig á að telja frostdaga í vor.
Trausti Jónsson, 29.1.2014 kl. 00:43
Ekki veit ég hvernig frostdagar eru taldir á sjálfvirkum stöðvum. Í október var frostlaust á Stórhöfða, lægsti hiti 0,0 stig þ.29. og er það útaf fyrir sig óvenjulegt. Í nóv. voru frostdagar 7 og í des. voru þeir 19 ef rétt er talið, en t.d. 5 í des. 1963. Fyrsta frost vetrarins 12. nóvember.
.
Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.1.2014 kl. 09:57
Allt í lagi Trausti, reyni að muna það í vor. Annars sýnist mér hjá föður mínum að desembermánaðarfrostdagar sé að skemma þetta.
E.s. Mikið væri ég til að fá meðaltalsformúluna hjá Veðurstofunni. Er einhversstaðar hægt að finna hana á netinu?
Pálmi Freyr Óskarsson, 29.1.2014 kl. 18:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.