Ætli hann fari ekki að ganga niður?

Nú lítur loksins út fyrir að norðaustanþráviðrið sem nú hefur staðið í meir en hálfan mánuð fari að ganga niður. Hvassviðrið hefur þó ekki verið mikið á landsvísu nema jóladagana og síðan aftur á föstudaginn var (þann 3.). En stórir hlutar af landinu vestanverðu hafa þó legið í illviðri og umtalsverðum leiðindum flesta daga. Síðan er hin mikla úrkoma sem fylgt hefur veðrinu bæði norðan til á Vestfjörðum og víða um landið norðaustan- og austanvert.

Engin langtímavindhraðamet hafa þó fallið en það kom þó á óvart að hvassara skyldi verða á sjálfvirku stöðinni á Hjarðarlandi í Biskupstungum heldur en hefur þar áður mælst. Þar fór 10-mínútna meðalvindur í 26,7 m/s kl. 6 að morgni föstudagsins (3.). Stöðin hefur verið starfrækt í níu ár. Sömuleiðis kom á óvart að vindhraðamet skyldi slegið á Flateyri síðastliðna nótt (kl. 1 aðfaranótt þess 6.), 10-mínútna vindur fór þar í 27,8 m/s sem er það mesta í 15 ára sögu stöðvarinnar. Í báðum þessum tilvikum var vindur af norðaustri.

Eins og fjallað var um í pistli í gær má fara að gefa úrkomumagni norðaustanlands gaum. Taflan (frumstæða) hér að neðan sýnir samanburð heildarúrkomunnar það sem af er mánuðinum við það sem mest hefur orðið sömu sex daga áður á stöðvunum (þrjár stöðvanna hafa ekki skilað nema fimm dögum í gagnasafnið).

stöðármántil dagsúrkeldra áreldri talafrá nafn
23120141685,7200265,51959Mjólkárvirkjun
25220141666,0199862,71994Bolungarvík
40020141651,2199929,01990Sauðanesviti
42520141626,5199815,22000Torfur
42720141526,8200917,51997Gullbrekka
43720141588,9199851,31997Þverá í Dalsmynni
47920141632,3199131,41956Mánárbakki
51520141635,6201310,21999Miðfjarðarnes
527201416233,41999206,41994Skjaldþingsstaðir
565201415107,0199962,31991Svínafell
608201416109,5199990,01998Desjarmýri
616201416100,5200753,42002Hánefsstaðir
626201415108,5200586,62002Neskaupstaður
 

 Fyrri úrkomudálkurinn sýnir úrkomusummuna nú, en sá síðari það sem mest hefur orðið áður á stöðinni sömu daga. Aftasti ártaladálkurinn sýnir hvenær stöðin byrjaði. Mánárbakki og Mjólkárvirkjun hafa athugað lengst þannig að heildarúrkoman á þeim stöðvum verður að teljast óvenjulegust. Svo er spurningin hvort þetta heldur til lengdar - auðvitað er það ólíklegt en samt þess virði fyrir veðurnördin að fylgjast með. Þurrkurinn hér suðvestanlands verður líka smám saman óvenjulegri - en ekki þarf nema einn úrkomudag til að hnika við því.

Sagt er að norðaustanáttin gangi niður á miðvikudaginn - en hætt er við því að vindaásókn næstu lægðar byrji í norðaustri - síðan gengur í austur og jafnvel suðaustur. Þessi næsta lægð er nokkuð snúin og ekki gott að segja hvað verður úr henni. Svona lægðir geta valdið töluverðri snjókomu suðvestanlands - fylgist með spám Veðurstofunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Í Montana fór frostið niður í -52°C með vindkælingu og í fylkjunum Illinois, Indiana, Iowa, Maryland, Minnesota, Nebraska og fleiri fylkjum var hitastigið á bilinu -40°C til -50°C með vindkælingu. Í slíkum kulda er til að mynda hægt að skvetta sjóðandi vatni úr bolla utandyra og fellur vatnið niður á jörðin í formi snjós.

Hitastigið á Mars undanfarna daga hefur verið á bilinu -25°C til -31°C og því er heldur kaldara í Bandaríkjunum. Að sögn veðurfræðinga mun hlýna á morgun."(!)

> http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/01/07/kaldara_i_bandarikjunum_en_a_mars/

Segðu mér Trausti, er "hnatthitun af manna völdum" líka valid vísindi á Mars?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 7.1.2014 kl. 23:11

2 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Ætlarðu virkilega að apa vitleysuna eftir "Bandaríkjamönnum" með því að bæta alltaf við vindkælingu núorðið, Hilmar?

Pálmi Freyr Óskarsson, 8.1.2014 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 67
  • Sl. viku: 645
  • Frá upphafi: 2351206

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 578
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband