15.12.2013 | 01:25
Ólíkindi?
Lægðir á Norður-Atlantshafi eru sumar hverjar mjög krappar þessa dagana - dýpka hratt og fara hratt yfir. Tölvuspám hefur ekki gengið vel að ráða við þær og sumar hafa orðið enn krappari og dýpri í spám heldur en í raunheimum. Hér að neðan er kort sem sýnir þrýstibrigði - í þessu tilviki hversu mikið þrýstingur við sjávarmál breytist á þremur klukkustundum. Af slíkum kortum kemur hreyfing þrýstikerfa mjög vel fram.
Það telst óvenjulegt ef þrýstingur stígur eða fellur um 15 til 20 hPa á þremur klukkustundum. Allt yfir 20 hPa telst til tíðinda. Svæði þar sem þrýstingur breytist þetta mikið eru oftast ekki stór um sig. Hins vegar er Atlantshafið mjög stórt þannig að ekki þarf að vera óvenjulegt þótt háar tölur sjáist einhvers staðar - og það gerist alloft á vetri hverjum. Líkurnar á að einhver ákveðinn staður upplifi mjög stórar þrýstibreytingar eru hins vegar ekki miklar. Þetta er svipað og á smáeyjum Vestur-India. Áratugir geta liðið á milli þess að einhver ákveðin þeirra verði fyrir kröftugum fellibyl þrátt fyrir að vera sífellt í skotlínunni. Kjarnar fellibylja eru litlir um sig - rétt eins og eyjarnar sjálfar.
Ísland er miklu stærra en samt er ekki vitað til þess að þrýstingur hafi hér fallið um meir en 30 hPa á þremur klukkustundum. Sennilega hefur það þó borið við - en ekki komið fram í athugunum - þær voru lengi vel gisnar. Íslandsmet í þrýstirisi er 33 hPa á 3 klst er kröpp lægð fór yfir Austurland í janúar 1949.
Í spá evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl. 6 að morgni 15. desember má sjá gríðarkrappa lægð fyrir sunnan land.
Kortið sýnir sjávarmálsþrýsting (heildregnar línur) og 3 klukkustunda þrýstibreytingu. Við sjáum gríðarkrappa lægð (ekki mjög stóra) á leið til norðausturs fyrir sunnan land. Á undan henni hefur þrýstingur fallið um 35,3 hPa á næstliðnum þremur klukkustundum. Hinu megin við lægðina er 29,1 hPa þrýstiris. Lægðin er 942 hPa í miðju og hefur þegar hér er komið sögu dýpkað um 17 hPa á 6 klukkustundum. Lægðarmiðjan er ekki fjarri þeim stað sem veðurskipið Lima hélt til á í fornöld.
Boðað þrýstifall er með ólíkindum. En verður þetta svona - eða gerist það aðeins í líkanheimum, tölvuleiknum? Aðeins 12 klukkustundum síðar á lægðin að vera farin að grynnast. Skammvinn frægð - vonandi að Færeyingar sleppi þá með skrekkinn.
Ekki sluppu þeir alveg við skaða vegna lægðarinnar sem á kortinu er fyrir norðaustan land. Norðlýsið í Færeyjum segir:
Tað hevur leikað hart á síðani seint seinnapartin í gjár og vit hava fingið umleið 30 fráboðanir um vindskaðar, sosum húsatekjur eru foknar, rútar knústir og húsaklæðningar hava skrætt seg leysar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:59 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.11.): 416
- Sl. sólarhring: 528
- Sl. viku: 2473
- Frá upphafi: 2412271
Annað
- Innlit í dag: 403
- Innlit sl. viku: 2137
- Gestir í dag: 393
- IP-tölur í dag: 383
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Sæll og takk fyrir frábært blog. Ein spurning, var Lima ekki vestur af Portúgal?
Vilhjalmur (IP-tala skráð) 15.12.2013 kl. 21:49
Það sjást hinar furðulegustu spár þessa dagana. Ég sé t.d. að skv. spá ECMWF fyrir jóladag á risastór lægð með tæplega 915 (!!) hPa í miðju að vera við suðausturströnd Íslands. En það er langt í jólin þegar veðrið er annarsvegar.
Björn Jónsson (IP-tala skráð) 16.12.2013 kl. 01:14
Veðurskip Lima (57 N, 20 V) var sett á laggirnar í sparnaðarskyni og kom í stað skipanna Indía (59 N, 19 V) og Juliett (52 N, 20 V). Þar fyrir sunnan var svo stöðin Kilo (45 N, 16 V). Á sama tíma og Lima byrjaði kom Rómeó í stað Juliett og Kilo. Veður á Indía, Alfa og Bravó voru lengi lesin með veðurfréttum hér á landi og eru því góðir og gamlir kunningjar. Síðar var einnig farið að lesa upp Metró sem var í Noregshafi og norðmenn kölluðu alltaf Polarfront og Líma var einnig lesin eftir að Indía féll út. Metró entist lengst þessara skipa. Bravó (suðvestur af Grænlandi) og Alfa duttu út um og upp úr 1970, en skip C (sem ýmist var kallað Charlie eða Cola) var einnig nokkuð lífseigt enda tóku sovétmenn það í fóstur 1975. En um stöðvarnar og sögu þeirra er ágæt grein á Wikipediu (Weather Ship).
Trausti Jónsson, 16.12.2013 kl. 01:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.