Hindranalítill hringakstur á norðurhveli

Háloftaspákortið hér að neðan gildir um hádegi á föstudag. Þar má sjá að lítið sést til mikilla hryggja norður úr heimskautaröstinni. Hún hringar sig hindranalítið um allt norðurhvelið.

w-blogg311013a 

Ísland er rétt neðan við miðja mynd, norðurskautið þar fyrir ofan. Myndin batnar mjög við stækkun. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar. Því þéttari sem þær eru því hvassari er vindurinn. Hneppi af þéttum línum liggur umhverfis blálitaða svæðið - það er röstin. Litirnir sýna þykktina en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Mörkin á milli grænu og bláu litanna er við 5280 metra - í þetta sinn skammt suður og austur af Íslandi.

Norðan við röstina er aðallega flatneskja í háloftunum, jafnhæðarlínur eru t.d. ekki mjög þéttar við Ísland. Ef vel er að gáð sést samt að þar í grennd eru tvær jafnhæðarlínur. Lega þeirra gefur til kynna að vindur sé af norðaustri í 5 km hæð yfir landinu. Á milli línanna eru 60 metrar, það samsvarar um 8 hPa bratta.

Eini kuldapollurinn sem nær að hringa sig svo heitið geti er sá fjólublái, skammt norður af Síberíu. Þéttar jafnhæðarlínur eru allt í kringum hann. Fjólublái liturinn hefur varla sýnt sig til þessa í haust en ætti að fara að leggjast í fasta búsetu - af stærð hans má ráða hvernig veturinn hefur það. En þetta er bara fyrsti fjólublái liturinn af fjórum. Hinir sýna sig síðar.

Svo virðist sem það dragi nú úr hlýindunum óvenjulegu sem verið hafa í Alaska mestallan mánuðinn. Röstin liggur enn beint úr vestri inn yfir Evrópu og þótt nú sé ekki beinlínis spáð frekari stórviðrum þar um slóðir er allur varinn góður ef röstin fer að hnykla sig. Sömuleiðis er röstin mjög sterk yfir Bandaríkjunum (er það oft) og má sjá krappa bylgju við vötnin miklu. Hún gæti valdið vandræðum.

Þeir sem ekki treysta sér til að rýna í kortið geta sér að skaðlitlu sleppt tveimur næstu málsgreinum.

En víkjum aftur að stöðunni við Ísland. Þar er eins og áður sagði hófleg norðaustanátt í háloftunum. Ef við rýnum í smáatriðin á kortinu má sjá að þykktarbrattinn er töluverður norður af landinu, þar tekur hver blái liturinn við af öðrum. Það er 60 metra bil á milli jafnþykktarlitanna og hvert þeirra samsvarar líka um 8 hPa þrýstibratta.

Ef við teljum bláu litina frá og með þeim sem er yfir Íslandi og norður á bóginn til Norðausturgrænlands fáum við út 6 liti eða 5 bil. Það eru þá um 300 metrar, safnast þegar saman kemur. Undir þessu til þess að gera flata háloftasviði er sum sé efni í töluverðan vind. Norðaustanátt hæðarsviðsins gefur þar að auki viðbót á vindinn norður af landinu. - Á móti kemur hins vegar að þar sem kaldast er við Norðausturgrænland er kuldapollur, sunnan við hann er suðvestanátt sem jafnar þykktarbrattann út (úff - dálítið snúið - en við látum ekki deigan síga).

Síðara kort dagsins (einnig frá evrópureiknimiðstöðinni) sýnir legu 925 hPa-flatarins á sama tíma og sömuleiðis hita og vind í fletinum.

w-blogg311013b 

Hæð flatarins við Vestfirði er um 600 metrar, en um 480 metrar við Langanes. Munurinn er um 120 metrar (15 hPa). Því þéttari sem jafnhæðarlínurnar eru því meiri er vindurinn. Hann „flaggar“ á stóru svæði norðan við land og úti fyrir Vestfjörðum. Þar sem flagg birtist á vindör er vindurinn 25 m/s eða meiri. Nú er vindur við sjávarmál minni en þetta (vegna núnings) - en samt er ekki hægt að segja annað en að um vonskuveður sé að ræða.

Vindur er væntanlega enn minni inni yfir landi og svo er hæðarsviðið flatt um landið sunnanvert. Litla lægðin við Norðausturland er komin úr austri og fer væntanlega suður um landið austanvert - eða eyðist við að rekast á landið. Við skulum þó hafa í huga að nærri tveir sólarhringar eru í þessa stöðu þegar skrifað er (um miðnætti á miðvikudagskvöldi) og varla hægt að búast við því að smálægðir eins og sú sem hér um ræðir skili sér í „réttri“ stærð eða verði á „réttum“ stað um hádegi á föstudag. En nútímareiknilíkönum er alveg trúandi til að hitta rétt í - alla vega er ekki hægt að ganga út frá því að rangt sé reiknað.

Takið eftir hitabrattanum - litur við lit á stormsvæðinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 38
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 529
  • Frá upphafi: 2343291

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 481
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband