10.10.2013 | 23:30
Óvenjuhlýtt
Hæðarhryggurinn sem var til umræðu í síðasta pistli er sannarlega hlýr. Hann skilaði dægurmeti fyrir landið 10. október en hiti mældist 20,3 stig á Kollaleiru í Reyðarfirði. Gamla metið, 19,2 stig, var sett á Teigarhorni 1937. Nokkuð gamalt sum sé.
Það má geta þess að talan frá Teigarhorni stóð sem opinbert met októbermánaðar alls í nokkur ár eða þar til 19,4 stig mældust á Húsavík 5. og 6. október 1944. Síðar kom í ljós að hiti hafði farið í 19,6 stig á Seyðisfirði á athugunartíma 6. október 1914 en þar var ekki hámarksmælir um það leyti. Hiti mældist í fyrsta skipti 20 stig á landinu þann 6. október 1959, líka á Seyðisfirði.
Síðan hefur hiti nokkrum sinnum náð 20 stigum í október, mestur mældist hann á Dalatanga þann 1. árið 1973, 23,5 stig. Þar sem talan er skráð kl. 6 um morguninn er þetta dæmi um mánaðamet sem smámunasömum þykja óþægileg. Fór hitinn í 23 stig fyrir eða eftir miðnætti, ef það gerðist fyrir miðnætti eiga 23,5 stigin heldur heima í september? En reglur eru reglur, í uppgjöri hámarks- og lágmarkshita byrjar október kl. 18 þann 30. september, allt eftir þann tíma heitir október.
En auðvitað vildum við helst fá hærri tölu örugglega inni í október - og bíðum enn. Annars fór hiti í 20 stig eða meira á að minnsta kosti 5 stöðvum 1. og 2. október 1973 sem þýðir að Dalatangatalan er vel studd.
Tuttugustigin (20,3) á Kollaleiru í dag eru þau fyrstu á landinu síðan 19. október 2007. Það dugir þó ekki í októbermet á staðnum, hiti hefur mælst hærri í október bæði á sjálfvirku stöðinni (21,1 stig 26. október 2003) og á þeirri mönnuðu (20,9 stig 15. október 1985).
En hlýindunum er ekki lokið. Ef trúa má spám eiga þau að endast að minnsta kosti fram á sunnudag. Mættishiti í 850 hPa verður yfir 20 stigum alla dagana yfir hluta landsins að minnsta kosti. Þegar þetta er skrifað (á fimmtudagskvöldi) er óljóst hvort sunnan- og vestanvert landið njóta góðs af - eða sitja áfram í ívið kaldara lofti undir öflugum hitahvörfum. Það er þó varla hægt að kvarta undan því. En dægurhámörk um þetta leyti árs í Reykjavík eru í kringum 14 til 15 stig.
Í viðhenginu er tafla sem sýnir hæstu hámörk hita í einstökum þrýstiflötum yfir Keflavík á árunum 1993 til 2012.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.4.): 159
- Sl. sólarhring: 197
- Sl. viku: 1625
- Frá upphafi: 2460262
Annað
- Innlit í dag: 149
- Innlit sl. viku: 1499
- Gestir í dag: 145
- IP-tölur í dag: 143
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Morgunblaðið 2. október 1973:
"24 stig í hnúkaþey.
Til þess að finna sambærilegan hita og var í fyrrinótt á Austurlandi, verður að leita allt til sunnanverðra Bandaríkjanna, þar sem í Evrópu mældist hvergi svo mikill hiti. Eitthvað á þessa leið sagði Knútur Knudsen, veðurfræðingur, er við leituðum frétta af óvenjulegum hita hér á landi á þessum tíma árs. Á Dalatanga mældist hitinn 24 stig, en fór niður i 23 stig með morgninum.
Astæðan fyrir þessum hita er suðvestlæg átt. Þegar vindurinn kemur upp að landinu, er hann 10 til 11° heitur, en þegar upp á Iandið kemur, hitnar loftið og myndast hnúkaþeyr. Getur loftið þá náð allmiklum hita. Um allt Ísland var hlýtt veður í gær, votviðrasamt á Suðvesturlandi, en þurrt á Norðausturlandi. A landinu sjálfu var ekki óvenjulegur hiti — aðeins á austurströndinni var unnt að tala um óvenjulegan hita." (http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1446800)
Var ekki kuldaskeið á Íslandi 1973? :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 11.10.2013 kl. 10:00
Smá truflun á kólnuninni hans Hilmars :)
En jú það var frekar kalt á Íslandi um 1973 og meðalhitinn það ár var 4.0°C í Reykjavík á meðan 2013 stefnir í að verða nálægt 5 stigum sem telst bara nokkuð gott þrátt fyrir allt.
Veðuröfgar í nokkra daga segja ekkert um hvað er að gerast til lengri tíma. Skammvinn hlýindi geta komið á köldum tímabilum og kuldar geta komið á hlýjum tímabilum. Ágætt t.d. að hafa það í huga næst þegar kalda norðanáttin hellist yfir.
Emil Hannes Valgeirsson, 11.10.2013 kl. 12:43
Hilmar, veður er oftast tvískipt á Íslandi, og þess vegna notast maður við meðaltal.
Trausti, hvað var meðatalshiti á Íslandi í gær þann 10. sept.? Er það óvenjulega hátt í septembermánuði?
Pálmi Freyr Óskarsson, 11.10.2013 kl. 18:12
Fimm stiga ársmeðalhiti hér í höfuðborginni telst nú alls ekki gott, Emil, nema við berum saman við kuldatímabilin undir lok 19. aldar og svo aftur frá 1965-95. Við búum jú við alheimshlýnun sem hefur verið sérstaklega mikiil frá og með 1998, eða er ekki svo?!
Undanfarið hefur meðalhitinn verið um 5,5 gráður þannig að um umtalsverða kólnun er að ræða.
Svo er októbermánuður núna en ekki september (til Pálma!)!
Torfi Kristján Stefánsson, 11.10.2013 kl. 18:36
Úps!!!! Hvernig gat ég klikkað á mánuðinum. Takk fyrir leiðréttinguna Torfi.
Þannig að spurningin til Trausta átti að vera svona: Trausti, hvað var meðaltalshiti á Íslandi í gær þann 10. október, eða þá í dag 11. október? Er það óvenjulega hátt í októbermánuði?
Pálmi Freyr Óskarsson, 11.10.2013 kl. 19:30
Ef 5 stiga meðalhiti þykir ekki gott er það bara til marks um hve mikið hefur hlýnað og hversu góðu menn eru vanir. Meðalhitinn á hlýindaárunum margrómuðu 1930-1960 var einmitt tæp 5 stig í Reykjavík.
En það er samt talsvert eftir af árinu og ekki hægt að segja hvoru megin við 5 stigin við verðum í ár.
Emil Hannes Valgeirsson, 11.10.2013 kl. 21:29
Pálmi, sjá pistil 12. okt.
Trausti Jónsson, 12.10.2013 kl. 01:54
Þú veist þetta eflaust betur en ég, Emil enda sérfræðingurinn en ekki ég. Þó vil ég benda á að samkvæmt opinberum tölum þá er meðalhiti fyrstu níu mánaða ársins hér í Reykjavík 0,6 stigum undir meðaltali síðustu 10 ára. Árið er í 31. til 32. sæti hlýindaára (miðað við mælingar frá 1871).
Þetta tel ég nú ekkert sérstakt í ljósi kenningarinnar um alheimshlýnunina.
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 12.10.2013 kl. 12:46
Torfi - yfirleitt er talað um hnattræna hlýnun, ekki "alheimshlýnun". Annað er að hitastig getur sveiflast töluvert á milli ára - sérstaklega staðbundið (veður á Íslandi t.d.). Eitt í viðbót, ef þú hefur meðaltal hita t.d. á Íslandi, þá máttu búast við að fá gildi fyrir ofan og neðan meðaltalið á milli ára - það er eðlilegt. Ég er viss um að við eigum eftir að upplifa köld ár á Íslandi áfram, hvað sem líður hnattrænni hlýnun af manna völdum (sem er rækilega skjalfest) - sjá t.d. Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra - staðan 2013
Sveinn Atli Gunnarsson, 12.10.2013 kl. 17:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.