16.9.2013 | 01:40
Veðrið gengur smám saman niður
Norðanveðrið sem plagað hefur landsmenn i dag (sunnudag) fer að ganga niður - gangi spár eftir. Það gerist að vísu ekki snögglega og víða um land verða leiðindi allan mánudaginn. En á kortinu hér að neðan má sjá að þrýstingur stígur mun meira austan við land heldur en vestan við þegar spáin gildir, það er ki. 6 á mánudagsmorgni (16. september). Við þetta fækkar jafnþrýstilínum yfir landinu.
Heildregnar línur sýna sjávarmálsþrýsting með 4 hPa bili. Blálituð svæði sýna hvar þrýstingur hefur stigið síðastliðnar þrjár klukkustundir en rauð hvar hann hefur fallið. Yfir Austurlandi hefur hann stigið um 2 til 4 hPa frá kl. 3 en lítið vestanlands.
Ef við teljum jafnþrýstilínurnar kemur í ljós að þrýstimunur á milli Austfjarða og Vestfjarða er hér um 25 hPa en var 32 hPa kl. 21 í kvöld (sunnudag) og 30 hPa á miðnætti. Þrýstibrattinn dettur þar með niður um 7 hPa og jafnaðarþrýstivindur minnkar úr rúmum 30 m/s niður í um 25 m/s. Það munar um það - þótt í reynd sé þrýstivindurinn í þessu tilviki mun meiri yfir landinu Austanverðu heldur en þessar jafnaðartölur sýna.
Kl. 21 á mánudagskvöld á þrýstimunurinn yfir landið að vera kominn niður í 18 hPa og jafnaðarþrýstivindur því niður í um 15 m/s. En þetta er bara landsmeðaltal - vindstrengir munu þrjóskast við hærri tölur en þetta.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 577
- Sl. sólarhring: 734
- Sl. viku: 2372
- Frá upphafi: 2413392
Annað
- Innlit í dag: 541
- Innlit sl. viku: 2141
- Gestir í dag: 534
- IP-tölur í dag: 521
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Og þetta gæti ekki verið meiri viðbjóður um miðjan september.
Sigurður Þór Guðjónsson, 16.9.2013 kl. 01:50
Getum við ekki verið sammála um að það sé að kólna á Íslandi Trausti? :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 16.9.2013 kl. 19:24
Já, þetta er skelfilegur viðbjóður. Það hefur hingað til alltaf kólnað á Íslandi á haustin - en segir auðvitað ekkert um kólnandi eða hlýnandi veðurfar á áratugavísu.
Trausti Jónsson, 17.9.2013 kl. 00:40
Hvernig væri þá að draga huluna af útreikningum Veðurstofunnnar á meðaltalshita á ársgrundvelli á Íslandi síðustu 100 árin a.m.k.? Þær niðurstöður ættu væntanlega að segja okkur eitthvað um kólnandi eða hlýnandi veðurfar á áratugavísu - eða hvað? :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 17.9.2013 kl. 13:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.