Frjósi saman sumar og vetur?? [Ritstjórnartuð]

Eins og fram kom í pistli gærdagsins er gert ráð fyrir svölum fyrsta sumardegi í ár (2013). Þó hefur spáin um þykktina heldur hækkað frá í gær (var 5100 metrar yfir Vestfjörðum en er nú 5120 metrar) svo munar 20 metrum. Þetta er um eins stigs hækkun. Spáin um hita í 850 hPa hefur líka hækkað ámóta.

Pistillinn í gær negldi líka niður hvenær kaldast hefur orðið á sumardaginn fyrsta. Ekki má þó taka þá neglingu allt of bókstaflega - ritstjórinn hefur ekki legið yfir þessu vikum saman og hugsanlegt að veðurspekingar hafi rekist á eitthvað annað.

Eitt af því sem sífellt er verið að tala um í kringum sumardaginn fyrsta er hvort nú frjósi saman sumar og vetur. Er frost þá tengt góðu sumri. Alloft er gott vit í gömlum veðurspádómum - en þessi verður að teljast fullkomin della eins og nú er til hans vitnað. Einföld athugun sem nær til síðustu 64 ára sýnir að vetur og sumar frusu saman á landinu 56 sinnum af þessum 64. Voru öll þau sumur góð?

Það er sérlega eftirtektarvert að á sumardaginn fyrsta 1974 var lægsta lágmark næturinnar á landinu öllu 3,5 stig. Hvergi fraus í byggðum. Þetta var eins og sumir muna enn eitt hagstæðasta sumar á Suðurlandi um langt árabil - og ekki taldist það sérlega óhagstætt nyrðra. Tveimur árum síðar, 1976, var líka frostlaust um land allt á aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Það var óminnilega hagstætt sumar um landið norðan- og austanvert - en mikið rigningasumar syðra.

En getur þetta þá ekki átt við einstaka staði á landinu? Nei, varla, koma þá aldrei hagstæð sumur í hlýjustu byggðum landsins? Nefna má að gaddfrost var í Reykjavík aðfaranótt sumardagsins fyrsta 1983 - á undan versta sumri sem um getur þar um slóðir.

En sem skemmtiatriði? Má ekki hafa gaman af þessu? Jú, auðvitað má það - en þá væri best að fara eftir fornum leikreglum. Í gömlu reglunni er talað um góða málnytu frjósi sumar og vetur saman. Það er að segja að meiri sumarmjólkur sé að vænta úr kúm og ám en annars. Ekkert er sagt um gæði sumars samkvæmt kröfu nútímamanna. Sól og þurrkur eru nú á tímum talin sérlega hagstæð að sumarlagi. Í því veðurlagi er hins vegar oft kyrkingur í gróðri og gras lélegt - heldur til baga fyrir mjólkurframleiðslu. Fyrr á árum höfðu menn ekki heldur hitamæla - heldur átti að leggja út grunnan disk eða trog með vatni. Væri á því þykkt skæni eða það heilfrosið að morgni var talað um að sumar og vetur hefðu frosið saman - annars ekki.

Þeir sem eru smámunasamir segja að ísskánin sé merki um þykkt rjóma á mjólkurtrogum á komandi sumri.

Upplýsingar um málnytu og fitumagn mjólkur liggja ekki fyrir í veðurmælingum þannig að áhugamenn hafa enn rými til varnar fyrir regluna. Ekki er endilega víst að ritstjórinn hafi hana rétt eftir í þessum pistli. Gaman væri ef uppruninn fyndist og sömuleiðis væri skemmtilegt að vita hvernig var til hennar vitnað fyrir 1950 - nú eða þá á 18. eða 19. öld?

Gamlar reynslureglur um veður eru mjög skemmtilegar - jafnvel þær vafasömu. En það er heldur sorglegt þegar þær enda í óætum olíugraut. Þá eru þær ekki lengur til ánægju heldur bara þreytandi suð. Æ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er alveg stórundarlegt að fjölmiðlar - og reyndar veðurfræðingar - skuli á hverju ári geta um þessa þjóðtrú eins og það sé einhver skylda eða þá hún sé mikill vísdómur. Ósiðir um veður geta líka skapast ef menn tönnlast sífellt á sömu tuggunni. Mjá, það held ég! Það er nú líkast til!

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.4.2013 kl. 01:38

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fjölmiðlarnir hafa aldrei verið jafn þjóðtrúa sem einmitt í dag!

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.4.2013 kl. 19:17

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Birtist þá ekki karlinn á skjánum akkúrat er ég var að lesa um málnytuna!

Emil Hannes Valgeirsson, 24.4.2013 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 405
  • Frá upphafi: 2343318

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 366
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband