6.4.2013 | 02:01
Veturinn klórar í bakkann
Veturinn á norðurslóðum klórar nú aðeins í bakkann en vonandi fer hann samt ekki að halda upp á 50 ára afmæli páskahretsins mikla 1963 á þriðjudaginn (9. apríl). Dálítill ættarsvipur er samt með stöðunni nú og þá - en nei. Við lítum samt á norðurhvelskort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir um hádegi á sunnudag (7. apríl).
Ísland er fyrir miðju rétt neðan við miðja mynd. Jafnhæðarlínur eru heildregnar. Þar sem þær eru þéttar er hvasst í 500 hPa. Þykktin er sýnd með litaflötum, fjólublái bletturinn er yfir Svalbarða - þar er þykktin minni en 4920 metrar.
Ísland er í norðvestanátt, hæðarhryggur er vestan við land og við í heldur kaldara lofti heldur en verið hefur, það er græni liturinn sem hefur verið að sleikja okkur síðustu dagana. Langt er suður í sumarið - á sumrin viljum við helst að þykktin sé meiri en 5460 metrar (sandguli liturinn). Hún er það hins vegar ekki alltaf hvorki á þeim tíma né öðrum. Við verðum samt að gera einhverjar kröfur.
Það sem við viljum ekki er að kuldapollurinn stóri fari að senda okkur lægðardrög úr norðvestri og norðri - 1963 má segja að hann hafi komið til okkar í heilu lagi. Með hjálp þó, kringlóttir kuldapollar hreyfast yfirleitt ekki langt nema að þeir séu aflagaðir af tilfallandi lægðardrögum - eða hæðarhryggjum.
Örin á kortinu bendir á mjög smáa háloftalægð sem liggur í buktinni norðantil í Baffinsflóa. Hún er (ef trúa má spánum) einmitt að myndast núna (seint á föstudagskvöldi). Það gerist þannig að lægðardrag í jaðri kuldapollsins mikla teygist með mjög kalt loft í farteskinu vestur á Norður-Grænland, þar missir kalda loftið fótanna og bókstaflega dettur fram af jöklinum.
Á þeirri eyðiströnd ganga jöklar í sjó fram og lítið er um veðurstöðvar - hvort þar gerir fárviðri hefur ritstjórinn ekki græna glóru um. Niðurstaðan er sú að loftið tekur veðrahvörfin með sér niður í fallinu - spáin segir alveg niður að sjávarmáli. Hér verður að vísu um sýndarveðrahvörf að ræða - hin einu og sönnu hrökkva til baka. Þetta er eins og veðrahvörfin slitni í sundur og verði tvöföld.
En við lítum á hið skemmtilega veðrahvarfakort evrópureiknimiðstöðvarinnar. Ísland er við Í-ið á myndinni og Baffinsland við B-ið. Litakvarði og tölur til aðstoðar sýna hversu hár þrýstingur er við veðrahvörfin. Á okkar slóðum eru þau á þessum árstíma yfirleitt á bilinu 300 til 200 hPa. Hér þarf að athuga að því lægri sem talan er því hærri eru veðrahvörfin - þrýstingur fellur með hæð.
Þetta kort gildir á morgun - laugardag 6. mars kl. 12, sólarhring á undan norðurhvelskortinu að ofan. Í lægðinni (hvítur blettur) miðri stendur talan 1004 (hPa). Svona lága tölu hefur ritstjórinn ekki séð á þessum kortum áður. Veðrahvörfin geta farið niður fyrir 900 hPa í dýpstu lægðum á vetrum - þegar þær eru í óðavexti. Hér er þó ekki um slíkt að ræða heldur er um fjallaáhrif að ræða - Grænlandsjökull sýnir afl sitt. Lægðin er ekki nema 1004 hPa djúp. Ekki er víst að líkanið hafi þetta alveg rétt eftir - líkön eiga oft bágt í námunda við fjöll.
Þessi einkennilega lægð grynnist síðan næstu daga og veðrahvörfin jafna sig að nokkru. Háloftalægðin litla verður gripin af næsta lægðardragi úr norðvestri og á það kerfi að fara suðaustur um jökulinn í átt til okkar. Mun þá kalt loft (ekki það sama og í fyrri umferð) detta aftur niður af jöklinum en núna okkar megin. Dragast þá veðrahvörfin enn niður - reiknimiðstöðin segir niður í 800 hPa um hádegi á þriðjudag. Hér greinir spár og reiknimiðstöðvar á um framhaldið - kannski gerir kuldakast þrátt fyrir allt - á afmælisdaginn sjálfan.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 44
- Sl. sólarhring: 69
- Sl. viku: 1725
- Frá upphafi: 2452602
Annað
- Innlit í dag: 40
- Innlit sl. viku: 1593
- Gestir í dag: 37
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Ógeð!
Sigurður Þór Guðjónsson, 6.4.2013 kl. 12:32
Það er hrikalegur kuldi í kortum næstu viku: http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/#teg=hiti
Ágúst H Bjarnason, 6.4.2013 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.