22.3.2013 | 00:40
Tólfhundruð útsynningsdagar (eða tæplega það)
Útsynningur - hvað er það? Hreinasta merkingin er suðvestanátt - eða frekar vindur úr öllum geiranum milli suðurs og vesturs. En þeir sem fylgjast grannt með veðri finnst þessi skilgreining of víð. Í þrengri skilningi er loft óstöðugt í útsynningi og einkennist af skúrum eða éljum, helst miklum - og með uppstyttum á milli. Suðvestanátt með súld eða suddarigningu er ekki með í menginu og ekki heldur alveg þurr suðvestanátt.
Á vetrum er útsynningur mjög hvass og sérlega hvass í éljunum. Þegar hann er öflugastur vilja él og skafbylur renna út í eitt og jafnvel gengur á með þrumum og eldingum.
Það einkennir útsynninginn að þegar hann mætir á svæðið er hann auðþekktur. Hins vegar er ekki jafnauðvelt að draga útsynningsdaga aftur í tímann út úr veðurathuganasafni á eingildan hátt. Ef veiðarfærin eru mjög nákvæm veiða þau harla fáa daga - en ef slakað er á verða dagarnir of margir. Sömuleiðis stendur útsynningur stundum aðeins hluta úr degi.
Íbúar á Norður- og Austurlandi kannast auðvitað síður við þetta veðurlag - þar er útsynningurinn oftast bjartur og klár - aftur á móti stundum vindasamur- og Öxnadalsheiðinni og fleiri fjallvegum er lítt treystandi í hvössumútsynningi.
Hér byrjar nördakafli sem stendur út pistilinn - og flestir hætta að lesa.
Í dag veiðum við úr amerísku endurgreiningunni og togum yfir allt tímabilið frá 1871 til 2012. Veiðarfærinu er beint að vindum í 500 hPa-fletinum og notuð svokölluð þriðjungagreining. Lesendur þurfa ekki að grufla í því í smáatriðum hvað það er. Gerð er krafa um að flöturinn standi frekar lágt (tæknilega í neðsta þriðjungi) en vindur sé sterkur bæði af suðri og vestri (efri þriðjungar hvors um sig). Nokkuð tillit er tekið til árstíðasveiflu vinds og hæðar.
Sterk suðvestanátt með lágum 500 hPa-fleti er uppskrift að útsynningi. Við viljum frekar lágan flöt en háan vegna þess að loft er langoftast stöðugt standi 500 hPa-flöturinn hátt. Með því að flokka þrjú atriði í þriðjunga falla allir dagar því í einn 27 veðurflokka (3x3x3). Útsynningsflokkur okkar er aðeins einn af þessum 27 og skilar 1187 dögum á tímabilinu (smásvindl er í gangi varðandi sumarið).
Þetta eru strangar kröfur - útsynningsdagarnir eru mun fleiri, því útsynningsflokkarnir eru trúlega að minnsta kosti þrír til viðbótar. En veðurnördum til ánægju er í viðhenginu listi yfir dagana 1187 og geta þeir rifjað upp minningar frá þessum dögum. Í safninu eru fáeinir dagar undir fölsku flaggi - ástandið afbrigðilegt á einhvern hátt.
Hér að neðan er hins vegar mynd sem sýnir hvernig dagarnir falla á ár.
Lóðrétti ásinn sýnir fjölda daga á ári, en sá lárétti árin frá 1873. Gildi hvers árs um sig er markað með grárri súlu, en rauða línan er 7-ára keðjumeðaltal. Árið 2010 er eina árið sem nær engum útsynningsdegi, en 2011 eru þeir hins vegar flestir (20). Árin í kringum 1990 eru flest mjög útsynningsgæf með að meðaltali 10 til 13 daga á ári. Hafísárin fyrir 1970 koma fram sem lágmark með um 6 útsynningsdaga á ári að meðaltali. Almenn útsynningsfátækt 19. aldaráranna er trúlega vanmat endurgreiningarinnar.
Janúar og febrúar 2013 skiluðu ekki útsynningsdegi í safnið. Hann var einn í nóvember 2012, sá 15.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.1.): 1012
- Sl. sólarhring: 1111
- Sl. viku: 3402
- Frá upphafi: 2426434
Annað
- Innlit í dag: 901
- Innlit sl. viku: 3057
- Gestir í dag: 877
- IP-tölur í dag: 811
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Ef að kæmu nú 1200 útsynningsdagar í röð af völdum veðurbreytinga vegna hinna ógurlegu gróðurhúsaáhrifa!
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.3.2013 kl. 13:44
Sæll Trausti og þakka þér kærlega fyrir pistlana. Þeir eru okkur veðursérvitringum lífselixír, nú þegar umfjöllun um veður og veðurfræði er að koðna niður í "sjónvarpsþvælu". Að vísu eru ekki allir eins í þeim efnum en mikið vantar á að sjónvarpsframsetningin fullnægi kröfum okkar kverúlanta. Ég skil vel að erfitt sé að lesa útsynninginn út úr gögnunum en á bágt með að trúa að enginn útsynningsdagur hafi verið 2010. Fór engin lægð yfir landið það ár? Þrátt fyrir vísindalegar kröfur finnst mér nauðsynlegt að halda í gömul heiti um veður. Mörg þeirra eru ekki hreinar bábiljur, þótt við höfum haldið svo á morgni raunvísindanna. Útsynningur er eitt þessara nafna en landsynningurinn er erfiðari til samræmingar nútíma veðurgögnum.
Sigurður G. Tómasson (IP-tala skráð) 22.3.2013 kl. 16:44
Skal botna þetta fyrir þig Sigurður: Þá værum við fyrir austan mjög sátt upp að því marki að við yrðum uppiskroppa með sólarvörn og regnvatn.
Sindri Karl Sigurðsson, 22.3.2013 kl. 18:49
Það er nú það.
Trausti Jónsson, 23.3.2013 kl. 01:08
Þakka vinsamleg orð Sigurður G. Í smáaletri pistilsins er þess getið að listinn langi innihaldi ekki nema fjórðung til þriðjung útsynningsdaganna allra. Varla er 2010 frítt við þá alla. Það er líka hægt að telja á fjölmarga aðra vegu og verður vonandi gert. Ég á á lager fjölbreytta flokkun á illviðrum - en þar eru auðvitað ekki nema verstu útsynningar auk landsynninga og landnyrðinga - útnyrðingsillviðri eru sjaldgæf nema í Þingeyjar- og Múlasýslum. En árið 2010 er afbrigðilegast allra ára sem ég hef enn upplifað.
Trausti Jónsson, 27.3.2013 kl. 01:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.