9.12.2012 | 01:26
Spákort sem sýna þykktarbreytingar
Það er hálf klúðurslegt að nota fjögur orð þar sem komast má af með eitt. Hér er vísað í fyrirsögn pistilsins - hún kemst þó nærri því að vera skiljanleg. Orðið eina er hins vegar þetta: Þykktarhneigðarkort. Hefði einhver skilið þá fyrirsögn? Við lítum á eitt kort af þessu tagi.
Reyndar er margt sýnt á kortinu, en það gildir um hádegi á mánudag, 10. desember. Svörtu heildregnu línurnar eru jafnþrýstilínur við sjávarmál og eru algengastar allra lína á veðurkortum. Þykktin er sýnd með daufum rauðleitum strikalínum. Sé kortið stækkað má sjá að 5340 metra jafnþykktarlínan þverar Ísland. Hefðbundnar vindörvar sýna vindstefnu og hraða í 700 hPa-fletinum. Við sjáum að í öllum aðalatriðum fylgja þær jafnþrýstilínunum - þó bregður út af vegna þess að 700 hPa-flöturinn er í um 3 km hæð frá jörðu.
En þykktarbreytingar eru aðalatriði kortsins og eru sýndar með breytilegum litaflötum. Hér er miðað við síðustu 6 klukkustundir. Bláu litirnir sýna þau svæði þar sem þykktin hefur minnkað mest - þar hefur loftið kólnað umtalsvert, en þau gulu og brúnu sýna vaxandi þykkt - þar hefur hlýnað.
Mest áberandi er gusa af köldu lofti sem streymir til austurs út á Atlantshaf frá Kanada. Sé kortið stækkað má sjá töluna 23,1 í miðju bláa svæðinu. Þetta er ansi há tala - þykktin hefur fallið um 231 metra á 6 klst - jafngildir nærri 12 stiga kólnun að meðaltali í neðri hluta veðrahvolfs. Á næstu dögum mun sjórinn hita þetta loft þar til jafnvægi næst milli sjávar- og lofthita. Það tekur nokkra daga - sérstaklega vegna þess að gusan fer smám saman yfir hlýrri og hlýrri sjó.
Talsvert hefur hlýnað yfir Grænlandi síðustu 6 klukkustundir spárinnar en hér við land er þykktarhneigðin minni en 30 metrar (ekki litarhæfar á litamáli kortsins). Sé farið í saumana á afstöðu vindörva og jafnþykktarlína má þó sjá að vindurinn er að bera meiri þykkt inn yfir landið úr suðvestri, en hún hefur ekki aukist nægilega til þess að fá á sig lit. Tuttugu metrar samsvara um einu stigi.
Það er ekkert úrslitaatriði að miðað sé við 6 klst þykktarhneigð á kortinu - það gæti rétt eins verið sólarhringur eða eitthvað annað.
En á mánudaginn er sum sé spáð heldur hlýnandi veðri. Aðstreymið á þó í mikilli samkeppni við miskunnarlausa útgeislun í björtu veðri. Staðan á að haldast svipuð næstu daga en lægðasvæðið á þó að styrkjast eftir því sem á líður.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 722
- Sl. sólarhring: 760
- Sl. viku: 3101
- Frá upphafi: 2435543
Annað
- Innlit í dag: 673
- Innlit sl. viku: 2783
- Gestir í dag: 646
- IP-tölur í dag: 626
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.