Máltíðinni lokið?

Nú fer að styttast í máltíðarlok - og eftirrétturinn e.t.v. ekki borinn alveg jafn hreinlega fram eins og fyrri réttirnir tveir. Við skulum samt gera tilraun til þess að kyngja honum á korti.

Þegar þetta er skrifað virðist vera farið að hægja - varla enn hægt að segja að hann sé að lægja. Þegar vindhraðinn í dag (föstudag) var borinn saman við metaskrár kom í ljós að það voru ekki margar stöðvar af þeim sem hafa athugað lengur en tvö til þrjú ár sem náðu meti. Fyrirspurnin var gerð í gagnagrunninn kl. 19 en hámarksvindhraða var ekki náð á öllum stöðvum fyrr en eftir þann tíma. Við lítum e.t.v. á endanlegar tölur eftir helgina.

En fáein merkileg vindhraðamet voru þó sett. Þar á meðal eru ný met á  Móum á Kjalarnesi (Kjalarnes, frá 1998) og Hraunsmúla í Staðarsveit (frá 1999).  Met var að minnsta kosti jafnað á Bláfeldi í Staðarsveit. Sömuleiðis var sett met á Geldinganesi í nágrenni Reykjavíkur. Veðurharkan þar kom mjög á óvart. Þar var vindur við fárviðrisstyrk í nærri 10 klukkustundir, fárviðri var enn lengur á Kjalarnesi og í Staðarsveitinni. Þetta er mjög óvenjulegt.

Mesti vindhraði sem enn hefur frést af í veðrinu mældist 40,6 m/s í Hamarsfirði rétt fyrir miðnætti á miðvikudagskvöld (1. nóv.). Þar hefur hins vegar aðeins verið mælt í tvö ár - við vitum því ekki enn hversu merkilegt það er á þessum stað. Vindhviða sem þar mældist á sama tíma, 70,5 m/s, er hins vegar mjög merkileg á landsvísu - í fljótu bragði snarpasta vindhviða sem nokkru sinni hefur mælst á Vegagerðarstöð. Smámunur er á hviðumælingu almennra sjálfvirkra stöðva og vegagerðarstöðvanna sem hleypir óvissu í samanburðinn. Ræða má það síðar.

Eins og algengt er með veður af þessu tagi - hvassast er þar sem loft steypist niður af fjöllum - var hvassviðrinu mjög misskipt. Þéttbýliskjarnar á sunnanverðum Vestfjörðum virðast hafa sloppið vel að þessu sinni. Það á t.d. við um Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal. Fárviðri var aftur á móti í Æðey við Ísafjarðardjúp - en norðaustanillviðri eru margfræg þar um slóðir. Sunnan megin í Djúpinu, á Ögri, varð aðeins allhvasst þegar mest var.

Samanburður við önnur veður og eldri verður að bíða betri tíma, en við lítum á eitt 500 hPa-kortið í viðbót - til að ljúka máltíðinni. Myndmálið er það sama, svartar línur sýna hæð 500 hPa-flatarins, en lituð svæði sýna hita í fletinum. Vindörvar eru hefðbundnar.

w-blogg031112

Ef menn bera saman þetta kort saman við kort úr sama fleti sem birtust í næstu tveimur pistlum hungurdiska á undan sést mikill munur. Kaldast er nú langt fyrir suðaustan land en hlýjast vestur við Grænland - alveg öfugt við það sem var fyrir tveimur dögum. Staðan þessa tvo daga á það þó sameiginlegt að vindur uppi og niðri er nokkurn veginn samstefna - allt öðru vísi en var í gær. Því hafa dagarnir þrír boðið upp á þrenns konar þrívítt ástand - en þó haldið uppi miklu og nær samfelldu illviðri alla dagana.

Á kortinu eru tvær gulbrúnar örvar. Sú sem er lengra til hægri á myndinni sýnir vindröstina yfir landinu - hún er ekki alveg búin að ljúka sér af þegar kortið gildir, kl. 9 á laugardagsmorgun. Vestari röstin er á austurleið í átt til landsins og verður komin austur á það sólarhring eftir að þetta kort gildir - snemma á sunnudagsmorgni. En tekur hvassviðrið sig þá upp? Nei, þessi strengur að vestan nær ekki til jarðar - ekkert dularfullt við það. Enn eitt þrívíddarástandið. Um það hefur áður verið fjallað á hungurdiskum - enginn man eftir því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samkvæmt frétt Mbl. kl. 15:13 í dag virðist veðrið lítið vera að batna á Norður- og Austurlandi og þar er ofankoma, kóf og takmarkað skyggni. Á Austurlandi er mesti snjór í manna minnum og búið að vera ófært til Seyðisfjarðar í þrjá daga!

Heilagsandahopparar kolefniskirkjunnar þurfa því væntanlega að fara að leggjast á bæn...

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 3.11.2012 kl. 15:35

2 identicon

Sæll Trausti,
takk fyrir gott blogg, ég var að velta fyrir mér veðurmetunum, þ.e. hámarks vindstyrk. Þann 30. des. 2007 gerði aftaka veður á Langjökli þar sem björgunarsveitirnar OK og Heiðar sóttu ferðafólk sem snjóaði í kaf í bílum sínum.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2007/12/30/unnid_vid_erfidar_adstaedur/

Við þetta tækifæri mældist vindstyrkurinn enn meiri en gefið var upp í fréttum. Farið var varlega í yfirlýsingar því menn trúðu hreinlega ekki þeim tölum sem  veðurstöðin var að sýna, þó svo vindstyrkur væri meiri en menn hefðu upplifað áður. Stöðin var síðan send til umboðsaðilans http://www.eico.is/ sem mældi hana og úrskurðaði í fullkomnu lagi. Hún hafði verið að sýna vindstyrk uppá 80-90 metra og allt að 120 metra hviður.

Er ástæða til að taka svona upplýsingar með þegar teknar eru saman upplýsingar um veðurhæð?

Gunnar Sigurfinnsson (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 11:50

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Langjökull er mjög líklegur staður til vindhraðameta - en til að hægt sé að tala um met verður að mæla með stöðluðum mælitækjum við staðalaðstæður. En allar upplýsingar eru að sjálfsögðu vel þegnar.

Trausti Jónsson, 6.11.2012 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 30
  • Sl. sólarhring: 60
  • Sl. viku: 966
  • Frá upphafi: 2351167

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 819
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband