Ákafasta júníúrkoman?

Fyrir nokkrum dögum minntust hungurdiskar á mikla dembu sem gerđi á Kirkjubćjarklaustri laugardaginn 16. júní. Ţá mćldist úrkoman ţar 22,4 mm á einni klukkustund, milli kl. 10 og 11 um morguninn. Ţetta er óvenjumikil ákefđ en hversu óvenjuleg er hún í júnímánuđi?

Ţótt ákefđarmćlingar hafi veriđ gerđar í Reykjavík í meir en 60 ár var ţađ ekki fyrr en sjálfvirkir úrkomumćlar komu til sögunnar ađ gögn fóru ađ safnast um ţennan ţátt veđursins á landsvísu. Úrkomumćlingar eru erfiđar og ţótt fariđ sé yfir gögnin međ skipulegum hćtti hefur ţađ veriđ regla ađ ţurrka ekki út aftök nema ađ mjög vel athuguđu máli. En mörg ţau háu gildi sem enn lifa í skránni eru örugglega ekki rétt. Okkur er ţví nokkur vandi á höndum  - og viđ skulum ţess vegna láta okkur nćgja ađ líta á júnímánuđ einan og sér.

Fljótlegt er ađ búa til lista yfir mestu klukkustundarúrkomu á öllum mćlistöđvum og tímum í skránni. Í ljós kemur ađ talan á Kirkjubćjarklaustri frá ţví á laugardaginn er sú nćsthćsta í júní í allri skránni. Sú hćsta er úr Ólafsvík ţann 7. júní 2008, 42,8 mm. Hún er nćrri ţví örugglega röng en viđ höfum samt varla vald til ađ slá hana af hér og nú.

Síđan kemur talan frá Klaustri, 22,4 mm og ţar nćst mćling úr Hellisskarđi viđ Hellisheiđi syđra frá 8. júní 2003, 21,4 mm. Ţađ getur ţví vel veriđ ađ nýja mćlingin sýni mestu úrkomuákefđ júnímánađar á sjálfvirkum stöđvum.

Hér á landi er úrkoma ađ jafnađi gerđ upp á sólarhringsgrundvelli, fćrđ kl. 9 ţann dag sem mćlitíminn endar. Úrkoman á Klaustri er ţví tilfćrđ ţann 17. Sólarhringsúrkoman á sjálfvirku stöđinni mćldist 38,2 mm - en 39,2 mm á ţeirri mönnuđu. Mjög líkar tölur.

Ţennan sama sólarhring mćldist úrkoman hins vegar 102,0 mm í Vík í Mýrdal og 90,3 mm í Kerlingardal ţar skammt frá. Sú óţćgilega spurning hlýtur ađ koma upp hvort hćstu klukkutímagildin á ţessum stöđvum hafi veriđ hćrri heldur en á Klaustri - ţađ fćst aldrei upplýst - ţví miđur.

En eftir ađ hafa haft fyrir ţví ađ búa til lista um hámarksákefđ í júní fyrir allar tiltćkilegar stöđvar skulum viđ líta á klukkan hvađ ákefđarmetin eru sett.

w-blogg200612

Lárétti ásinn sýnir klukkustundir sólarhringsins en sá lóđrétti fjölda stöđva. Stöđvarnar eru 66 og klukkustundirnar 24, ađ međaltali ćttu ađ vera um 3 stöđvar á hverri klukkustund. Svo er ekki. Áberandi hámark er kl. 16 (13 stöđvar) og mun fleiri stöđvar eiga hámörk síđdegis heldur en ađ nóttu eđa ađ morgni.

Ţetta túlkum viđ svo ađ slatti af skammvinnum dembum sé inni í gagnasafninu, líklega vilja ţćr fremur falla síđdegis heldur en á öđrum tímum sólarhrings. Loft er óstöđugast síđari hluta dags, ţá er óskastund skúraklakkanna. Úrkomu sem tengist skilakerfum eđa áhrifum fjalla ćtti ađ vera meira sama um hvađ klukkan er.

Suđausturland virđist vera eini landshlutinn ţar sem úrkoma ţađ sem af er júní er nokkurn veginn í međallagi. Í Reykjavík er hún 12% af međallagi ţađ sem af er, í Stykkishólmi ađeins 2%, 27% á Akureyri, 54% á Dalatanga, 102% á Kirkjubćjarklaustri og 30% á Stórhöfđa í Vestmannaeyjum.

Teiti Arasyni er ţökkuđ ábending.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 36
  • Sl. sólarhring: 71
  • Sl. viku: 434
  • Frá upphafi: 2343347

Annađ

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 390
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband