Fer að verða óvenjulegt

Lítið hefur rignt um landið suðvestan- og vestanvert í maí og það sem af er júní. Þetta eru mikil viðbrigði eftir alla úrkomuna í vetur. Við minnumst þess t.d. að í febrúar var aðeins einn dagur úrkomulaus í Reykjavík.

Meðalúrkoma í maí og fyrstu tíu dagana í júní er í kringum 60 mm í Reykjavík, en nú hafa aðeins um 20 mm fallið á sama tíma, þar af aðeins 0,9 mm í júní. Þetta er að jafnaði þurrasti tími ársins og enn vantar upp á að um metþurrk sé að ræða. En vert er að fara að gefa þessu gaum.

Síðustu árin hefur oft verið einkennilega þurrt seint á vorin og nokkuð fram eftir sumri, sérstaklega um landið vestanvert.

Spár sem ná viku til tíu daga fram í tímann eru aldrei sammála um úrkomumagn en lítið er að hafa í þeim flestum um þessar mundir. Evrópureiknimiðstöðin setur þó skúraveður inn á sunnanvert landið næstu dagana - en er mjög þurrbrjósta gagnvart Vesturlandi. Bandaríska langtímaspáin er með 3 til 4 mm í Reykjavík næstu tíu daga.

En heldur kaldara - og óstöðugra loft leitar nú til landsins og þá aukast líkur á skúraveðri - en engar afgerandi lægðir eru í nánd. En hér er engu spáð - en lesendum bent á vef Veðurstofunnar.

Svo í framhjáhlaupi:

RÚV bauð upp á óvænta endursýningu að afloknum fréttatíma kl. 22 í kvöld (mánudag 11. júní). Þá fengum við að sjá - í heilu lagi - veðurfréttir frá 23. ágúst 2011. Hversu margir tóku eftir þessu? Er hugsanlegt að fréttatíminn hafi verið jafngamall líka? Voru þetta allt gamlar fréttir? Væri hægt að sýna gamlan fréttatíma (eða fótboltaleik) án þess að nokkur taki eftir því? Reika gráðugar gamlar veðurfréttir um í kerfinu tilbúnar að stökkva fram og gleypa þær nýju með húð og hári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við opnuðum ekki sjónvarpstæki í gærkvöldi. Höfum hvorugt áhuga á fótbolta. Þegar svona samfellt íþróttasumar gengur yfir, eins og horfur eru á nú á þessu ári, þá opnar maður helst ekki sjónvarpstæki. Því gæti RÚV notað sömu frétta- og veðurfregnatíma dag eftir dag þessvegna án þess að maður tæki eftir því.

Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 12.6.2012 kl. 05:15

2 identicon

Já, þurkurinn er að verða alvarlegur. Þurlend tún hér í Hrútafirðinum eru farin að brenna. Lækir að þorna og mjög lítið vatn í ánum. Þetta ástand er að verða nánast árlega á þessum tíma. Núna var líka sú sérstaða að klaki í jörð eftir veturinn var nánast enginn.

Gunnar Sæmundsson (IP-tala skráð) 12.6.2012 kl. 06:48

3 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

http://www.ruv.is/sarpurinn/vedurfrettir/11062012

Pálmi Freyr Óskarsson, 12.6.2012 kl. 06:57

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Að sjálfsögðu trúir maður því að veðurfréttatíminn sé réttur þótt spáin geti verið vitlaus. Mér fannst ýmislegt atyglisvert í veðurkortunum en það var ekki fyrr en kom að fellibylnum Irene sem það runnu á mig tvær grímur.

Emil Hannes Valgeirsson, 12.6.2012 kl. 08:37

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það væri kannski til bóta í þessari þurrkatíð að birta eldgamlar  veðurfrettir um slagveðursrigningu! Og vita hvort þær rætist ekki!

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.6.2012 kl. 13:10

7 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Skondið ;)

En hefur áhrif á veðurfréttir í Ríkissjónvarpinu verið kannað sérstaklega ? Veit það einhver og þá hversu margir horfa . t.d. í samanburði við kvöldfréttir þeirra eða fótboltann ?

Svo held ég að fólk treysti þeim almennt það vel að það tekur því gott og gilt sem þar kemur fram. Svo það má líta á þetta sem hrós og traust að enginn hafi kvartað, amk ekki veður-leikmenn ;))

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 12.6.2012 kl. 16:18

8 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það yrði ekkert uppþot þótt RÚV tæki upp á að flytja gamlar fréttir. Eftir að fréttastofum útvarps og sjónvarps var slengt saman eru 10 fréttir lítið annað en upphitaðar 7 fréttir. Hins vegar hefðu símalínur RÚV líklega brunnið yfir ef frétt ykkar í fyrradag hefði verið frá því í desember.

Ragnhildur Kolka, 12.6.2012 kl. 17:04

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hef gefist upp á RUFINU, er því engu upplýstari en Þorkell Guðbrandsson um fótbolta og gamlar veðurfréttir.

Hrólfur Þ Hraundal, 12.6.2012 kl. 20:38

10 identicon

Tæknipúkinn var líka eitthvað að stríða Veðurstofunni 8.Júní, þá var veðurspáin á heimasíðu Veðurstofunar  2-3 stiga frost fyrir helgina. Þessu var síðar breytt. Hvort þetta var gömul spá eða rangt út reiknað veit ég ekki.

Kristjón Jónsson (IP-tala skráð) 12.6.2012 kl. 20:38

11 Smámynd: Trausti Jónsson

Í þessu tilviki varð veðurfréttaruglingurinn aðallega að skemmtiatriði - veðrið var í öllu falli skaðalítið. Svona lagað kemur fyrir á bestu bæjum - menn eru misvelvakandi. Hjá ríkisútvarpinu má stöku sinnum heyra klúður í næturútvarpinu. Það er eins og enginn fylgist með því hvað þar kemur eða kemur ekki. Alltaf spennandi. Eins og Kristjón bendir réttilega á gerist þetta líka á Veðurstofunni - hraðvirkur sjálfvirkur búnaður dettur stundum fram fyrir sig í matreiðslunni. Atvikið sem hann minnist á kom upp vegna hiksta í matreiðslubúnaði eftir hugbúnaðaruppfærslu. Í því tilviki var mjög mikið kvartað - fjölmargir áttuðu sig á að viðbrunnið meðlæti hefði sloppið út úr eldhúsinu.

Trausti Jónsson, 13.6.2012 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 397
  • Sl. viku: 1581
  • Frá upphafi: 2350208

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1454
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband