11.6.2012 | 00:46
Hlýjustu júnídagarnir
Hér koma listar um hlýjustu júnídaga síðustu 63 ára - það er frá og með 1949 til og með 2011. Við getum enn vonað að degi eða dögum úr núlíðandi júnímánuði takist að troða sér inn á listana. Reyndar er ekki útlit fyrir að það gerist alveg næstu vikuna - sé að marka spár. Nú vill svo til að sá dagur sem fært hefur landsmönnum hæsta hita sem vitað er um í júní (og allt árið) er utan tímabilsins. Upplýsingar um daglegan hita eru ekki enn til í tölvuskrám fyrir allt landið nema aftur til 1949. Vonandi stendur það til bóta.
En fyrsti listinn sýnir þá daga þegar meðalhiti á landinu var hæstur. Allar tölur eru í °C.
röð | ár | mán | dagur | meðalh. |
1 | 1949 | 6 | 20 | 14,61 |
2 | 1949 | 6 | 22 | 14,61 |
3 | 1949 | 6 | 21 | 14,00 |
4 | 1986 | 6 | 28 | 13,68 |
5 | 1953 | 6 | 24 | 13,61 |
6 | 1999 | 6 | 11 | 13,48 |
7 | 1974 | 6 | 23 | 13,39 |
8 | 2003 | 6 | 26 | 13,30 |
9 | 2002 | 6 | 9 | 13,21 |
10 | 2000 | 6 | 29 | 12,86 |
11 | 2009 | 6 | 29 | 12,80 |
12 | 1996 | 6 | 24 | 12,75 |
13 | 1974 | 6 | 22 | 12,73 |
14 | 1953 | 6 | 25 | 12,61 |
15 | 2003 | 6 | 25 | 12,58 |
Í ljós kemur að þrír samliggjandi dagar í sama mánuði eiga þrjú efstu sætin. Þetta var í júní 1949. Ekki man ritstjórinn svo langt aftur en man hins vegar að um þessa hita var enn mikið talað þegar áhugi hans á veðri vaknaði fyrir alvöru tíu til fimmtán árum síðar. Vorið 1949 hafði verið óvenju skítlegt - svo slæmt reyndar að rætt var um að nú væri hlýindasyrpan mikla sem byrjaði á þriðja áratugnum fyrir bí. Veður hefði aftur snúist til hallæra 19. aldarinnar. Snjór var á jörð langt fram eftir júnímánuði - en þá gerðist það á nokkrum dögum að skipti um. - En svo varð sumarið ekkert sérstakt.
Í júní 1986 var rigningasamt á Suður- og Vesturlandi en hlýtt og gott norðaustanlands. Flestir voru vissir um að nú væri enn eitt rigningasumarið í undirbúningi - en það varð ekki þrátt fyrir blauta byrjun. Hrökk nú veðurlag í þann gír að bjóða upp á hálf rigningasumur í stað heilla sem hafði verið tíska frá 1969 að telja. Flestum þótti það framför.
Sumarið 1953 sem á daginn í 5. sæti júnílistans þótti mjög hagstætt og kærkomið eftir þrjú mjög lakleg sumur á Norðausturlandi - enda var blíðan ekki á kostnað Suðvesturlands. Allir voru því ánægðir.
Nokkrir nýlegir dagar eru á listanum, sá nýjasti 29. júní 2009. Muna einhverjir eftir honum?
Þá kemur að listanum yfir hæsta meðalhámarkshita á landinu.
röð | ár | mán | dagur | meðalhám. |
1 | 1949 | 6 | 22 | 19,48 |
2 | 1949 | 6 | 20 | 19,37 |
3 | 1949 | 6 | 21 | 19,32 |
4 | 1974 | 6 | 23 | 18,43 |
5 | 1949 | 6 | 19 | 17,73 |
6 | 2002 | 6 | 9 | 17,70 |
7 | 1949 | 6 | 23 | 17,63 |
8 | 1986 | 6 | 28 | 17,43 |
9 | 2002 | 6 | 10 | 17,36 |
10 | 2009 | 6 | 29 | 17,01 |
Sömu þrír dagarnir eru á toppnum og neðar (í 5. og 7. sæti) eru tveir dagar til viðbótar úr sömu syrpu í júní 1949 - þessi eina hitabylgja tekur því helming listans. Hér er 23. júní 1974 maklega í fjórða sæti. Þá lá við að 30 stiga múrinn væri rofinn - hiti komst í 29,4 stig á Akureyri.
Hlýjustu næturnar eru áhugaverðar. Þær finnum við með því að reikna lágmarkshita allra stöðva og athuga þá daga sem hann er hæstur.
röð | ár | mán | dagur | meðallágm |
1 | 1953 | 6 | 24 | 11,04 |
2 | 1953 | 6 | 25 | 10,91 |
3 | 1999 | 6 | 11 | 10,67 |
4 | 2009 | 6 | 29 | 10,57 |
5 | 2010 | 6 | 19 | 10,53 |
6 | 2003 | 6 | 26 | 10,42 |
7 | 2003 | 6 | 27 | 10,26 |
8 | 1949 | 6 | 26 | 10,11 |
9 | 2002 | 6 | 9 | 10,09 |
10 | 1996 | 6 | 24 | 10,07 |
Þarna eru breytingar. Tveir dagar úr júní 1953 eru efstir og síðan koma sex frekar nýlegir. Þá fyrst er dagur úr júní 1949 - en það er sá 26. en enginn þeirra sem efstir voru á fyrri listum. - Ágæt tilbreyting.
Eins og áður sagði nær þessi metingur aðeins aftur til 1949. Leiða má líkur að því í hvaða júnímánuðum helst muni að leita ámóta hlýrra daga. Það er gert með því að athuga hversu hátt hlutfall veðurstöðva hefur náð 20 stiga hita í viðkomandi mánuði. Það getum við gert gróflega aftur til 1924 og reyndar lengra aftur ef við sættum okkur við ört vaxandi óvissu eftir því sem aftar dregur. En til gamans er hér listi yfir þá tíu júnímánuði sem eiga hæst 20 stiga hlutfall. Mælist 20 stig á öllum stöðvum í mánuðinum fær hann töluna 100.
röð | ár | hlutfall |
1 | 1939 | 75,00 |
2 | 2002 | 71,19 |
3 | 1949 | 70,97 |
4 | 1934 | 63,16 |
5 | 1999 | 58,73 |
6 | 1925 | 54,55 |
7 | 1936 | 52,63 |
8 | 1997 | 45,71 |
9 | 1988 | 45,00 |
10 | 1937 | 42,31 |
Hér er júní 1939 hæstur - með sitt Íslandsmet í hita. Líklegur til að eiga fulltrúa á lista hlýjustu júnídaganna. Síðan koma 2002 og 1949 - við könnumst við þá og eins 1999, en 1997 og 1988 birtast líka. Einnig sjáum við nokkur eldri ár, 1934, 1936 og 1937 - fjórði áratugurinn var mjög hlýr og einnig á júní 1925 greinilega einhverja góða daga. Vel má vera að síðar takist að negla niður hvaða dagar þetta nákvæmlega eru og hvar þeir myndu lenda á listunum þremur.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 51
- Sl. sólarhring: 146
- Sl. viku: 1972
- Frá upphafi: 2412636
Annað
- Innlit í dag: 51
- Innlit sl. viku: 1725
- Gestir í dag: 50
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Ég fór í að fletta upp í bókum mínum á 29.6. 2009, því mig rak ekki minni til neinna sérstakra hlýinda þann dag. Sem og kom á daginn. Í veðurathugun kl. 06:00 er sprittmælirinn minn í +11°C, loftvogin í 1018 hPa og fellur, hæg NNV gola (2 m/s skv. flugvallarmælinum) alskýjað, flákaský í 900 - 1000 metrum, neðan þokubakkar í hlíðum. Rigning á síðustu klukkustund fyrir athugun og dropar á athugunartíma. Ládautt og skyggni 35 km. Svo klukkan 21:00 er mælirinn enn í +11°C, loftvogin hefur heldur hækkað og er í 1019,5 hPa, VNV 4 m/s og þokuloft með botna í 50 metrum y.s. Rigning á síðustu klukkustund fyrir athugun, sjólítið og skyggni 5 km. Yfir daginn hefur verið hægur vindur framan af, síðan NV kaldi, rigning og súld. En hér er yfirleitt ekkert sérstaklega veðursælt. Til dæmis var hér ansi hvasst á tímabili seinni partinn í gær og bölvuð Skarðagolan var intensive í gærkvöldi.
Þorkell Guðbrands (IP-tala skráð) 11.6.2012 kl. 05:41
Þakka þér fyrir Þorkell. Ég fletti upp Íslandskorti þennan sama dag og sá að engin voru hlýindin í Skagafirði - og hvergi þar sem vindur stóð af hafi. En hiti var þó víða yfir 20 stigum á landinu. Oft hef ég heyrt Skarðagoluna nefnda en hef aldrei fengið nákvæmlega á hreint hvers konar vind um er að ræða - gætir þú frætt mig um það?
Trausti Jónsson, 12.6.2012 kl. 01:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.