19.5.2012 | 01:12
Sumarið mjakast nær
Enn er norðurhvelshringurinn viðfangsefni hungurdiska og að þessu sinni er litið á 500 hPa hæðar- og þykktarspá evrópureiknimiðstöðvarinnar. Hún gildir um hádegi á sunnudaginn 20. maí.
Hægt er að stækka myndina til að smáatriðin (t.d. tölurnar) sjáist betur. Ör bendir á Ísland og norðurskautið er þar beint fyrir ofan. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru svartar og heildregnar en þykktin er mörkuð með litaflötum. Eins og venjulega er mælt í dekametrum (dekametri = 10 metrar). Græn litarbrigði þykktarinnar eru þau algengustu yfir Íslandi á þessum tíma árs (milli 5280 og 5460 metrar), en sumarið byrjar í sandgula litnum (5460 til 5520 metrar).
Sá litur á nú að koma nær okkur heldur en um nokkra hríð, en sá blái snertir enn norðausturströndina og ef vel er að gáð má þar sjá lokaðan hring um litla háloftalægð (kuldapoll). Því miður á hann ekki að fara neitt - en hann hlýnar smám saman og blái litur hans hverfur. Öflugur kuldapollur er við Grænland norðvestanvert og breytist ekki mikið.
Mikil háloftalægð er beint suður af Grænlandi. Henni fylgja ákveðnar vonir fyrir okkur - fari hún hægt til suðausturs eins og reiknimiðstöðin spáir í dag getur hún e.t.v. dælt til okkar talsvert hlýrra lofti og jafnvel komið þykktinni upp fyrir 5500 metra. Við þá þykkt er 20 stiga hitinn ekki langt undan þar sem sólar nýtur. En það er enn fullsnemmt að fagna slíku - við gerum það þegar og ef að því kemur.
Þessar vikurnar fer heildarflatarmál bláu litanna á kortinu minnkandi en á meðan sullast það fram og til baka á norðurslóðum og gerir skyndiárásir á svæðin þar næst sunnan við - eins og við höfum fengið að reyna upp á síðkastið. Ísland er þannig í sveit sett að það er aldrei öruggt fyrir strandhöggum kuldans - jafnvel ekki í júlí.
Á þessu korti er kaldasta loftið (dekksti blái liturinn) með þykkt á bilinu 5100 til 5160 metrar - það er sama og við fengum yfir okkur fyrr í þessari viku og enn sést austan við land þegar þetta er skrifað (seint á föstudagskvöldi 18. maí). Sjórinn í Austuríslandsstraumnum er harla kaldur og gagnast ekki mikið við að auka þykktina, hitar loftið eins og 60 kerta pera á hvern fermetra - segir reiknimiðstöðin. Það munar samt um það á nokkrum dögum.
Hlýjasta svæði kortsins er yfir Arabíuskaga. Þar er þykktin meiri en 5880 metrar. Hlýindin teygja sig nú langt norður Rússland en kuldapollar ganga austur um Miðjarðarhaf. Þar valda þeir væntanlega þrumuveðrum og skúradembum. Hitabylgjur liggja í loftinu á Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum, jafnvel í Suður-Noregi en þær eru þó ámóta óvissar og hlýindi hér á landi.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 48
- Sl. sólarhring: 144
- Sl. viku: 1969
- Frá upphafi: 2412633
Annað
- Innlit í dag: 48
- Innlit sl. viku: 1722
- Gestir í dag: 47
- IP-tölur í dag: 46
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Hér eystra hafa nokkrir tugir Sádi Araba verið í starfskynningu undanfarnar vikur í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Alcoa er að byggja stærsta álver veraldar í heimalandi þeirra en þar er notast við gas við rafmagnsframleiðsluna.
Ég keyrði einn þessara Sáda í gær og sagðist hann vera á heimleið í næstu viku. Honum hryllti við tilhugsunina vegna veðurfarsins en þar hefur hitinn verið um 45 gráður undanfarið. Í júlí og ágúst sagði hann að hitinn væri oft um og yfir 50 gráður en þá sæist ekki nokkur maður á ferli undir beru lofti.
Honum hugnaðist betur kuldakastið á Íslandi en bakarofninn heima hjá honum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 19.5.2012 kl. 16:16
Þykktin sló í 5880 metra yfir Arabíu í dag - og sennilega verður hún enn meiri flesta daga í sumar. Við strönd Persaflóa er þar að auki oftast rakt og heitt að nóttu - en eitthvað skárra undir morgun inni í landi þar sem er gríðarleg dægursveifla í heiðríkjunni.
Trausti Jónsson, 20.5.2012 kl. 01:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.