Góður árangur reiknimiðstöðvarinnar og Veðurstofunnar

Hretið sem gengið hefur yfir landið í dag sást vel á tölvuspám. Á sunnudag fyrir viku var evrópureiknimiðstöðin búin að stinga upp á norðaustanstrekkingi að vísu ekki mjög slæmum eða köldum. Hretið birtist hins vegar nær fullskapað í reikningum sem gerðir voru á aðfaranótt þriðjudags 8. maí - fyrir fimm dögum. Við skulum líta á spákort frá því í reikningum síðdegis á þriðjudag sem gildir kl. 18  i dag - sunnudag eða 126 klst fram á við. Til samanburðar höfum við spá sem reiknuð var nú síðdegis og gildir á sama tíma. Líta má á seinni spána sem nokkurn veginn rétta.

w-blogg140512

Þriðjudagsspáin er til vinstri á myndinni - en spáin frá í dag er til hægri. Í báðum tilvikum er mjög hvasst yfir landinu - þrýstilínur eru þéttar. Þær eru sjónarmun þéttari yfir landinu í þriðjudagsspánni heldur en síðar varð raunin (30 hPa munur yfir landið á vinstri mynd - en 26 hPa á þeirri til hægri). Í þriðjudagsspánni er þrýstimunur yfir landinu vestanverðu mun meiri heldur en raunin varð, 9 hPa munur á Reykjavík og Bolungarvík í stað 17 hPa. Miklu munar því á spáðum þrýstivindi. Hefði spáin frá þriðjudeginum ræst hefði hann verið um 40 m/s á Faxaflóa en reyndist aðeins 20 til 25 m/s. Fyrri talan er harla ógnvænleg og gott að hún gekk ekki eftir.

Rauði krossinn á kortinu til hægri er settur þar sem lægðarmiðjunni var spáð á þriðjudaginn. Það munar rúmri lengd Íslands á staðsetningunni, sennilega um 600 km. Á þriðjudagsspánni er lægðin líka öðru vísi í laginu. Litlu munar á miðjuþrýstingi (975 á móti 972 hPa). Áttin er norðlægari í dag heldur en spáin á þriðjudaginn gerði ráð fyrir. Sé farið frekar í saumana á spánum fór lægðin hraðar yfir í raun heldur en spáð var á þriðjudaginn. Hún endar nú líf sitt langt norðaustur í hafi, en á þriðjudaginn gerði spáin ráð fyrir að hún bæri beinin yfir Bretlandseyjum.

Þó nokkru munar á úrkomumagni í spánum. Litlu dökkbláu blettirnir yfir Austurlandi í þriðjudagsspánni sýna meir en 15 mm úrkomu á 6 klst og 10 mm/6 klst (ljósblátt) nær yfir stórt svæði. Enginn blár litur sést yfir Íslandi í spánni á kortinu til hægri. Dökkgræni liturinn segir til um 5 mm til 10 mm/6 klst. En lítill blár blettur er reyndar á spákorti sem gildir á miðnætti (ekki sýnt hér).

Á kortunum eru einnig bláar strikalínur sem sýna hita í 850 hPa-fletinum. Ef við rýnum í þær má (með mjög góðum vilja) sjá að kaldara er nú yfir landinu heldur en spáð var á þriðjudaginn. Mínus 15 stiga línan snertir nú Vestfirði, en í þriðjudagsspánni er það mínus 10 stiga línan.

Þegar á allt er litið má segja að krossmessuhretinu 2012 hafi verið spáð með 5 daga fyrirvara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er sjálfsagt að halda því til haga þegar þið grísið á þetta

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.5.2012 kl. 09:20

2 identicon

Sumir eru jú alvitrir, en nóg um það. Árið 1922 gerði illræmt veður um Krossmessu þar sem fjöldi sjómanna fórst, m.a. held ég að tveir eða þrír kútterar hafi farist ásamt með mótorbát frá Siglufirði. Ef maður hefur skilið rétt, þá hefur þú, Trausti, aðgang að einhverju sem þú kallar að mig minnir endurgerð spákort frá USA, sem gætu þá sagt okkur hvort það veður sé eitthvað svipað og það sem núna gengur yfir?

Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 09:42

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Það er rétt Gunnar, en vel var miðað að þessu sinni. Þorkell: Fyrir nokkrum dögum birti ég svona kort að vestan sem sýndi maíhretið árið eftir (1923). Valið var ekki alveg tilviljanakennt því það hret sýndist líkara hretinu nú heldur en 1922. Ekki var það nú samt eins því þá tókst að koma niður snjó sunnanlands sem við vonandi sleppum við núna. En krossmessuhretið 1922 var enn hörmulegra því þá fórust 35 menn á 5 bátum. Flestir þeirra sukku við Vestfirði. Veðrið skall snögglega á þegar háloftalægðardrag kom yfir Grænland og bjó til krappa lægð yfir Íslandi - en þetta tók fljótt af. Þú kannast vel við vefsetrið wetterzentrale.de. Það birtir hluta af amerísku kortunum á mjög aðgengilegan hátt - mun auðveldari heldur en að ná þeim að vestan, eitt kort á dag. Slóðin er: http://www.wetterzentrale.de/topkarten/fsreaeur.html Komið er inn á valflipasíðu þar sem aðeins þarf að velja ár, mánuð og dag í flettistikum. Sé 14. maí 1922 valinn sést lægðin - og háloftalægðardragið mjög vel. Ég hef ekki athugað hversu nærri þessi greining fer því raunverulega en oftast eru þessi kort furðugóð - en reyndar verri eftir því sem lengra dregur aftur. Stöku sinnum eru þau úti að aka.

Trausti Jónsson, 15.5.2012 kl. 01:13

4 identicon

Takk fyrir þessa ábendingu, Trausti. Þarna er aldeilis fóður fyrir veðurnörd!

Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a
  • w-blogg110424b
  • w-blogg110424b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 299
  • Sl. sólarhring: 319
  • Sl. viku: 2078
  • Frá upphafi: 2347812

Annað

  • Innlit í dag: 262
  • Innlit sl. viku: 1794
  • Gestir í dag: 249
  • IP-tölur í dag: 241

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband