26.3.2012 | 00:59
Tækifærið stendur stutt
Á hádegi í dag (sunnudaginn 25. mars) mældist mættishiti í 850 hPa rúm 18 stig í háloftaathugun sem þá var gerð frá Egilsstaðaflugvelli. Þykktin á sama tíma var 5470 metrar, um tíu metrum hærri heldur en greining evrópureiknimiðstöðvarinnar. Þetta dugði í 14,6 stiga landshámark á Fáskrúðsfirði.
Á morgun fer gusa af hlýju lofti hratt yfir landið. Tækifæri til meta verður þó skammvinnt. Við sjáum hlýja loftið vel á þykktarspá evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir á hádegi á morgun (mánudaginn 26. mars).
Jafnþykktarlínur eru svartar og heildregnar, en lituðu svæðin sýna hita í 850 hPa fletinum.
Hér tekur 5480 metra jafnþykktarlínan sveig inn á landið austanvert. Tveir smáhringir 5500 metra þykktar eru yfir Austurlandi - en hvort það er raunhæft eða eitthvað líkanháð vitum við ekki. Hiti í 850 hPa er mestur 8 stig á kortinu í niðurstreyminu norðan Vatnajökuls.
En lítum líka á spá um hinn hámarkshitavísinn sem oft er notaður - mættishita í 850 hPa.
Ísland ætti að sjást nærri miðju korti austan lægðarmiðjunnar á Grænlandshafi. Þetta kort gildir þremur tímum síðar en það efra. Jafnþrýstilínur við sjávarmál eru svartar og heildregnar en litafletir sýna mættishita í 850 hPa. Hámark hans rétt austan við landið er 22,5 stig. Hungurdiskar hafa oft áður skýrt út hvað mættishiti er, síðast fyrir nokkrum dögum, 23. mars.
En nú er spurningin hvort eitthvað af þessum góða hita nær niður til jarðar. Í dag nægði 18 stiga mættishiti í 14,6 stig - ef reikningar eru réttir og blöndun svipuð gætum við þá séð 14,6 + 4,5 = 19,1 stig. En þykktin sem var 5470 metrar í dag á í besta falli að verða 5500 metrar á morgun - þrjátíu metrum meiri - það er ekki nema 1,5°C, eða 14,6 + 1,5 = 16,1 stig.
Svona reikningar falla auðvitað undir ágiskanir, hlýtt loft að ofan kemst ekki niður nema þá í öflugum vindstrengjum af fjöllum eða þá blandað saman við neðra loft, sömuleiðis í vindi. Í síðara tilvikinu skiptir þá miklu máli hversu hlýtt þetta neðra loft var áður en blöndun hófst. Margt getur haft áhrif á það, of langt mál er að telja það upp hér.
En dægurmet 26. mars er 16,2 stig - sett á Skjaldþingsstöðum árið 2005. Kannski við náum því? Hitamet marsmánaðar er hins vegar 18,8 stig sem mældust á Eskifirði kl. 7 að morgni 28. mars 2000. Það er innan seilingar á morgun og hlýindatoppurinn á morgun liggur betur í sólarhringnum heldur en þá.
Þess má geta að nýtt marsmet mun hafa verið sett í Skotlandi í dag þegar hitinn fór í 22,8 stig. Eldra met var 22,2 stig. Þykktin slefaði þó varla upp í 5500 metra en mættishitinnn í 850 hPa var 21 til 22 stig í greiningu reiknimiðstöðvarinnar - hefur staðbundið verið meiri.
Hlýjasta loftið fer yfir Reykjavík um kl. 9 á mánudagsmorgun, mættishita í 850 hPa er þá spáð 19 stigum. Ekki er nokkur leið að ná því lofti niður, neðstu loftlög eru kæld af sjó og Bláfjöll ráða ekki við þá stórfelldu blöndun sem þyrfti að eiga sér stað. Þar að auki er spáð rigningu en uppgufun hennar kælir loftið. Dægurmet Reykjavíkur þann 26. mars er orðið gamalt, hiti mældist 11,3 stig 1932. Hæsti hiti sem mælst hefur í Reykjavík í mars er 14,2 stig, þann 27. árið 1948 en þá mældist einnig hæsti hiti sem mælst hefur á mannaðri stöð í mars, 18,3 stig á Sandi í Aðaldal.
Rétt er að minna þá sem eitthvað eiga undir veðri að Veðurstofan spáir stormi á mánudag - sérstaklega um landið norðvestanvert.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:00 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.1.): 71
- Sl. sólarhring: 327
- Sl. viku: 2838
- Frá upphafi: 2427390
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 2541
- Gestir í dag: 51
- IP-tölur í dag: 51
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.