18.2.2012 | 01:05
Heldur óráðið framhald?
Kuldakastið er rétt byrjað þegar það er búið. Þykktin (eilífur mælikvarði hungurdiska) rétt slefaði að fara niður fyrir 5100 metra - helsta viðmið alvöruveturs. Jú, kannski niður í 5040 m norðaustanlands. En á 500 hPa hæðar- og þykktarspákorti sem gildir kl. 18 laugardaginn 18. febrúar sést vel að hlýtt loft sækir að úr vestri. Kortið er frá evrópureiknimiðstöðinni (ecmwf).
Heildregnar gráar línur sýna hæð 500 hPa-flatarins í dekametrum (1 dam = 10 metrar) en rauðar strikalínur þykktina. Þykktin er fjarlægðin á milli 500 hPa-flatarins (sem kortið sýnir) og 1000 hPa bróður hans (nærri sjávarmáli). Því meiri sem þykktin er því hlýrra er í neðri hluta veðrahvolfs. Því þéttari sem jafnhæðarlínurnar (þær gráu) eru því meiri er vindurinn. Á kortinu eru einnig bleik svæði sem sýna hvar iða í fletinum er mest. Við skulum ekki hafa áhyggjur af henni en þeir sem sjá vel ættu að greina að hún virðist mest í kröppum lægðarbeygjum.
Rauðum og bláum örvum hefur verið komið fyrir á kortinu til að óvanir sjái betur hvernig vindurinn liggur undir horni á þykktarlínurnar. Örvarnar liggja allar í sömu stefnu og jafnhæðarlínur á sama svæði. Vindurinn ýtir jafnþykktarlínunum fram á við í stefnu sína. Örvarnar eru rauðar þar sem þær bera hærri þykkt fram á við, en þær bláu eru dæmi um kalt loft í framsókn.
Hornið á milli örvanna og jafnþykktarlínanna er mjög misgleitt. Gleiðast er það suður af Grænlandi þar sem þykktarlínurnar eru nær hornréttar á hæðarlínurnar. Hornið verður minna og minna eftir því sem nær dregur Íslandi - en þar er samt hlýtt aðstreymi.
Kortið segir okkur frá því að hlýtt aðstreymi ríki yfir Íslandi síðdegis á laugardag. Bylgjan suður af Grænlandi er heldur stutt og aumingjaleg og hún hefur þar að auki öflugri bylgju í bakið. Hún hraðar sér því til norðausturs en grynnist - nái 5280 metra jafnþykktarlínan norður á Ísland hlánar væntanlega - heldur óráðnara er með þykkt á milli 5200 og 5280 metra.
Reiknimiðstöðin segir að 5340 metra línan eigi að snerta suðurströnd Íslands á sunnudagskvöld - ætli það þýði ekki hláku og þar með fer hiti aftur upp fyrir meðaltal þar sem hann hefur verið mestallan mánuðinn.
Eftir sunnudaginn eiga smábylgjur að koma hver af annarri til landsins - hver með sína lægð. Hvort þær fara sunnan- eða norðanvið land er ekki vitað. En þótt kuldapollurinn við Norðvesturgrænland sé ekki sérlega ógnandi í þessari stöðu verður samt að gefa honum gaum. Í kringum hann ganga líka hraðfara stuttbylgjur - sem vonandi láta okkur í friði.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 63
- Sl. sólarhring: 116
- Sl. viku: 2510
- Frá upphafi: 2434620
Annað
- Innlit í dag: 56
- Innlit sl. viku: 2230
- Gestir í dag: 55
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.