16.2.2012 | 00:50
Gagnaraðir þorna upp
Þegar hætt verður að athuga á mönnuðum veðurstöðvum þorna ýmsar gagnaraðir upp. Ef við leggjum vel við hlustir heyrum við kveinið úr framtíðinni. En lítið þýðir að fjasa um það - annað kemur í staðinn. Við lítum á hluta úr röð sem mun þorna upp á næstu árum. Veðurskeytaathuganir hafa verið gerðar eftir lítið breyttum lykli í rúm 60 ár. Árið 1982 voru gerðar smábreytingar á lyklinum - sumar til bölvunar og á síðustu árum hafa líka orðið lúmskar breytingar - en látum þau mál liggja á milli hluta.
Meinlegust fyrir framtíðina er fækkun sjónrænna athugana, t.d. á skyggni, skýjahæð og veðri. Vegna þess að að þessi atriði eru eins og nafnið bendir til nokkuð háðar mati einstakra athugunarmanna fylgir þeim talsverð óvissa. Komið er á móts við þessa óvissu með því að hafa athugunarmennina nógu marga. Skeytastöðvum hefur á undanförnum árum fækkað um rúmlega 40% - þær eru vonandi enn nægilega margar til að halda gagnaröðunum gangandi - en trúlega heldur áfram að fækka á næstu 5 til 10 árum.
Við skulum nú líta á tvær raðir - úr sama hluta veðurskeytisins, þeim hluta þar sem veðurathugunarmaðurinn fær að segja hvaða veður er hjá honum þegar athugun er gerð. Þetta er tíðni annars vegar misturs en hins vegar þoku á öllum gildistíma veðurlykilsins frá 1949. Lykilbreytingin það ár var mun meiri heldur en síðari breytingar - eldri lykill var að stofni til frá 1929 en var ekki víða notaður hér á landi fyrr en á árunum 1931 til 1935. Grunur leikur á að þessi eldri lykill hafi að einhverju leyti mengað þann yngri langt fram eftir sjötta áratugnum.
Það kemur í ljós að furðumiklar breytingar hafa átt sér stað í notkun talna sem standa fyrir mistur og þoku. Kannski eru breytingarnar að einhverju leyti skýranlegar með tískusveiflum - einhverri lensku - kannski ekki.
Lárétti kvarðinn sýnir árin frá 1949 til 2011 en sá lóðrétti tíðni iðnaðarmisturs, þurramisturs og ryks í þúsundustuhlutum allra veðurathugana viðkomandi árs. Talan 10 táknar því að tíu þúsundustuhlutar eða 1 prósent allra veðurathugana ársins hafi greint frá mistri.
Þetta er auðvitað ótrúleg breyting. Á síðari árum er tíðnin yfirleitt í kringum 3 til 5 þúsundustu en var milli 1950 og 1960 yfirleitt á bilinu 12 til 16 þúsundustu - fækkun niður í þriðjung eða fjórðung á tímabilinu. Þeir sem muna vel hvernig veður var fyrir 50 til 60 árum vita vel að tilvikum mengunarmóðu frá Evrópu hefur í raun og veru fækkað að mun - þessi sértaka blámóða sem var svo algeng sést varla lengur.
Um og fyrir 1960 var farið að grípa til verulegra ráðstafana gegn iðnaðarmengun bæði vestanhafs og austan og alvarlegum mengunartilvikum fækkaði á þeim slóðum. Síðasta mikla banvæna Lundúnaþokan var í desember 1962. Þá urðu, að því er talið var, 1000 ótímabær dauðsföll vegna þokunnar. Nákvæmlega tíu árum áður gerði enn verri þoku. Þá voru umframdauðsföllin 5 til 12 þúsund að því er talið er. Þetta hefði auðvitað haldið áfram ef ekkert hefði verið að gert. Svipað ástand var einnig víða á meginlandi Evrópu og í iðnaðarsveitum vestra. Nú er mesta mengunin af þessu tagi langt frá okkur - í austur Asíu.
Það er athyglisvert að árin 2010 og 2011 hrekkur mistrið upp í um 10 þúsundustu - tvöfalt það sem annars hefur verið á síðustu árum. Varla er nokkur vafi því að hægt sé að kenna eldgosunum tveimur og öllu öskurykinu sem þeim fylgdi um þessa aukningu. Vonandi verður öskufokið minna í ár, 2012, en það kemur ekki í ljós fyrr en snjóa leysir í vor og sumar.
Þokan (næsta mynd) sýnir líka mikinn breytileika frá einu tímabili til annars.
Þoku hefur greinilega fækkað á tímabilinu. Ekki er ótrúlegt að hin lága tíðni á allra síðustu árum sé tengd fækkun veðurstöðva - þeim hefur fækkað meira í útsveitum heldur en inn til landsins. Að öðru leyti á þokan yfirleitt á bilinu 7 til 12 þúsundustuhluta athugana. Mjög áberandi topp má sjá á hafísárunum svokölluðu 1965 til 1971. Sjávarkuldi var þá óvenjulegur við Norður- og Austurland að sumarlagi og loft niður undir sjó hefur verið mun stöðugra heldur en fyrr og síðar og þokan þar með meiri.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 56
- Sl. sólarhring: 111
- Sl. viku: 2503
- Frá upphafi: 2434613
Annað
- Innlit í dag: 50
- Innlit sl. viku: 2224
- Gestir í dag: 50
- IP-tölur í dag: 44
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Mjög athyglisverðar upplýsingar sem hér koma fram. Eins og venjulega vakna ýmsar spurningar hjá þeim sem lítið vita. Í fyrsta lagi dettur mér í hug hvort það sé rangt sem ég hef á tilfinningunni, að síðustu tvo áratugina (ekki nákvæm skilgreining) hafi sunnan og suðaustlægar áttir orðið sjaldgæfari en áður? Mér finnst til dæmis að taka að það sé orðið mun sjaldgæfara nú orðið að það komi dagar, hvað þá margir dagar, að sumrinu til með svokölluðu "Akureyrarveðri", þ.e. sunnan þey með björtu en hlýju veðri?
Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 16.2.2012 kl. 11:53
Það er rétt Þorkell að lítið hefur borið á „Akureyrarveðrinu“, sem þú kallar svo, síðustu árin. En oft hefur verið langt á milli slíkra sumra norðanlands. Það ruglar okkur sem komnir eru yfir miðjan aldur dálítið í ríminu hversu algeng þau voru að tiltölu á tímabilinu 1974 til 1991 miðað við bæði fyrr og síðar á sama tíma og rigningasumur voru algeng hér syðra. En ég tek þetta e.t.v. fyrir síðar meir.
Trausti Jónsson, 17.2.2012 kl. 01:32
Takk fyrir þetta, Trausti. Mér var nefnilega að detta í hug hvort það gæti verið samhengi í þessum "skorti" á þessum vindáttum og færri misturdögum síðasta áratug - að frátöldu öskutímabilinu, sem hlýtur að vera afbrigðilegt.
Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 17.2.2012 kl. 06:25
Ég held að vindáttarbreytingar skýri ekki þessa mistursrýrnun - en ég bara held það - veit ekki.
Trausti Jónsson, 18.2.2012 kl. 01:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.