Síðbúin færsla um nær liðið veður

Hér kemur pistillinn sem til stóð að setja inn í gær - en tókst ekki. Hann er að nokkru úreltur og er því endurskrifaður og allmikið styttur.

Fyrst var litið á gervihnattamynd, hún var tekin í gær kl. 22 og sýnir lægðina sem nú (kl.19 á mánudagskvöldi) er rétt suðvestan við land. Í gær var hún hins vegar langt suðvestur í hafi.

w-blogg090112a

Myndin sýnir dæmigerða vaxandi riðalægð. Að vísu sjást stundum öflugri kerfi en þetta en einkenni þess eru samt til staðar. Þar er fyrst að telja hlýja færibandið svonefnda. Þar er kjarni háloftarastar með vindi í stefnu rauðu örvarinnar. Hér vantar helst upp á að norðvesturbrún skýjagöndulsins sé skörp. Einnig má sjá að kerfið hefur haus - en engan sveip er enn að sjá í kerfinu (hann sést hins vegar í dag). Þó virðist vera að myndast þurr rifa á milli hauss og gönduls. Allt kerfið gengur síðan hratt í átt að éljasvæði fyrir suðvestan land.

Þetta hefði okkur á vaktinni fyrir 30 árum þótt heldur ískyggilegt - fyrir 50 árum voru varla nokkrar fréttir af skýjakerfi sem þessu. Nú er ástandið mun skárra - því nú taka tölvuspár mesta broddinn úr spennunni og þær segja að þessi lægð vaxi ekki úr öllu viti. Þegar þetta er skrifað (um kl. 19 á mánudag) dýpkar lægðin hins vegar mjög ört og vestan og sunnan við lægðarmiðjuna er mikið veður. Um það má nú lesa ágætan pistil Einars Sveinbjörnssonar og ættu áhugasamir að lesa hann.

Efnið hér að neðan er fyrst og fremst ætlað áhugasömum nemum hungurdiska - og aðrir geta sleppt því sér að skaðlausu.  

Tilefni gefst til að líta á eina iðuspá - eitt furðukortanna sem tölvur nútímans sýna okkur. Vonandi getum við svo vanist þeim að eitthvað gagn verði af - en það tekur tíma og þolinmæði.

w-blogg090112c

Spáin gildir í dag (mánudag) kl.18 og er frá því í gær eins og annað efni þessa pistils. Hér eru þrjú kort lögð ofan í hvert annað. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru svartar heildregnar og merktar í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Þar eru kunnuglegar tölur, við sjáum 4980 metra línuna skammt úti af Vestfjörðum. Vanir menn sjá að það er óvenju lág tala.

Síðan má sjá bláar og rauðar heildregnar línur (og eina græna). Þessar línur sýna hæðarbreytingu 500 hPa-flatarins síðustu 6 klst. Blátt þýðir fallandi flöt (lægð eða lægðardrag nálgast) en rautt að flöturinn sé hækkandi. Þessar tölur eru ekki sérlega háar en framrás lægðardragsins sem lægð dagsins býr í sést mjög vel. Við sjáum líka að lægðin yfir vestanverðu Grænlandshafi dýpkar líka og færist til austurs á kortinu.

Blágráir (hæðaiða) og bleikir (lægðaiða) fletir sýna síðan svonefnda iðu. Hún segir til um vindsniða í þrýstifletinum og beygju þess. Hnútar (óreglulegar eða kringlóttar klessur) fylgja lægðum en borðar bera vott um vindsniða. Röst þar sem vindur ryðst áfram á ofsahraða býr til bæði lægða- og hæðasnúning, ímyndum okkur að spaðahjól séu sett röstinni til hvorrar handar og þá má auðveldlega sjá iðuna fyrir sér, hæðabeygju hægra megin við hreyfistefnu vindsins en lægðarbeygju til vinstri handar. Lægð dagsins og iðu hennar (merkt 1 á kortinu) ber hratt framhjá hinum hnútnum (sem merktur er 2) og þeir ná ekki alveg saman.

Horfum á þessa mynd um stund.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 68
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 709
  • Frá upphafi: 2351270

Annað

  • Innlit í dag: 60
  • Innlit sl. viku: 634
  • Gestir í dag: 55
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband