Hlýju ári lokið

Árið 2011 var hlýtt - í Reykjavík það 18. hlýjasta frá upphafi samfelldra mælinga 1871. Heldur kaldara var nyrðra, á Akureyri er meðalhiti ársins í 31. sæti af 130. Nú hafa sextán ár í röð verið hlýrri en meðaltalið 1961 til 1990 í Reykjavík og þrettán í röð á Akureyri. Íhaldssamir vilja sumir að miðað sé við hið óvenju hlýja tímabil 1931 til 1960. Í Reykjavík hafa nú tíu ár í röð verið ofan við meðalhita þeirra ára og sex í röð á Akureyri. Þar var 2005 rétt við meðaltal hlýju áranna.

En meðalhitinn í Reykjavík árið 2011 var lítillega undir meðaltali áranna 2001 til 2010. Mjög hlýtt var í nágrannalöndunum austan við okkur. Langhlýjast þó að tiltölu í norðanverðri Skandinavíu þar sem árið var sums staðar það hlýjasta sem vitað er um. Sömuleiðis var hitinn einnig nærri hæstu hæðum á Bretlandseyjum. Ekki hefur enn frést af uppgjöri frá Grænlandi, en sennilega hefur árið ekki verið sérlega hlýtt þar.

En lítum á árshitann í Reykjavík frá 1871 til 2011. Þetta línurit eða önnur ámóta hafa komið oft við sögu á hungurdiskum áður og varla ástæða til að tyggja aðalatriðin enn og aftur.

arsmedalhiti_rvk_1871-2011.

Heldur verður að teljast ólíklegt að hitinn haldi áfram að rjúka jafnhratt upp á við og hann hefur gert síðustu 30 árin. Þótt hlýjustu árin upp á síðkastið (2003 og 2010) séu ekki marktækt hlýrri heldur en 1939 og 1941 er samt áberandi á myndinni hversu hlýr síðasti áratugur hefur verið - hvert einasta ár. Slíkt og þvílíkt höfum við ekki upplifað áður. Norðaustanlands á enn eftir að koma ár sem er hlýrra heldur en 1933.  

Þrátt fyrir að hafa verið hlýtt í heild var hitinn á árinu 2011 fremur öfgakenndur. Tvö mikil kuldaköst gerði - en þau voru bæði styttri og rýrari heldur en hitabylgjurnar.

Frá árinu 2009 til 2010 hækkaði loftþrýstingur meira en vitað var um áður milli ára (ekki munar þó miklu). Nú bregður svo við að þrýstingur lækkaði meira á milli áranna 2010 og 2011 heldur en dæmi eru um áður. Þrýstingur var með hæsta móti 2010 en með því lægsta árið 2011. Mánaðarmeðalþrýstingur var undir 1000 hPa alla mánuðina september til desember - það gerðist síðast 1863 en meðalþrýstingur allra mánaðanna saman er þó lægri nú en var haustið 1863.

Mikið los er greinilega á stóru bylgjunum í vestanvindabeltinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 402
  • Sl. viku: 1581
  • Frá upphafi: 2350208

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1454
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband