28.11.2011 | 00:32
Upphaf tveggja hlýskeiða - veðrafar síðustu áratuga (8)
Við lítum nú á hitafar í Reykjavík á árunum 1927 til 1943 í samanburði við tímabilið 2001 til 2011.
Blái ferillinn sýnir 12-mánaða keðjumeðaltal hita í Reykjavík 1927 til 1943, en sá rauði 2001 til 2011. Fyrsti punktur á bláa ferlinum á við 12-mánaða tímabilið febrúar 1926 til janúar 1927, en fyrst á rauða ferlinum er tímabilið febrúar 2000 til janúar 2001. Í báðum tilvikum var búið að hlýna umtalsvert áður en upphaf myndarinnar sýnir, en alls ekki var orðið ljóst að um eitthvað óvenjulegt væri að ræða.
Flestir gerðu sér þó grein fyrir því veturinn 1928 til 1929 að eitthvað hefði gerst og svipað kom upp veturinn 2002 til 2003. Ekki er marktækur munur á hlýindum þessara ára þótt myndin sýni að 2002 til 2003 hafi gert sjónarmun betur.
Eftir hlýindin 1928 til 1929 datt hitinn nokkuð niður aftur. Þótt hér sýnist fallið vera mikið var það þó ekki meira en svo að kuldakaflinn 1930 til 1931 er ámóta hlýr og hlýjustu ár áratuganna á undan höfðu verið. Aftur hlýnaði 1932 og er árið 1933 enn það hlýjasta sem vitað er um á Norðurlandi. Síðan kólnaði heldur 1935 til 1937. Að því loknu komu tveir afarmiklir hitatoppar, 1939 og 1941, sá fyrri toppaði á 12-mánaða tímabilinu mars 1939 til febrúar 1940 en sá síðari í apríl 1941 til mars 1942. Þessir tveir toppar eru ekki marktækt lægri heldur en 2002 til 2003-toppurinn.
Það hlýindaskeið sem við nú lifum hefur verið miklu jafnara heldur en það fyrra. Hitinn hefur verið ofan við 5 stig nærri því allan tímann. Á árinu 2011 hefur hann verið heldur á niðurleið en síðasta 12-mánaða tímabilið á meðaltali 5,26°C.
Við sjáum að ekki er hægt að tala um að hlýskeiðinu sé lokið eða að hiksti sé í því fyrr en hitinn fer niður fyrir 4 stig í einhvern tíma. Þessi jafni hiti frá 2002 hefur verið með ólíkindum - líka miðað við hlýskeiðið á fjórða áratugnum.
Við lítum fljótlega á það hvað var á seyði í háloftunum á fyrsta hluta stóra tuttugustualdarhlýskeiðsins, fram til 1943.
Lægðin sem fór til austsuðausturs yfir Noreg í dag (sunnudag 27. nóvember) reyndist mjög skæð eins og hungurdiskar höfðu bent á. Það má þó ekki túlka það þannig að diskarnir hafi spáð veðrinu - svo er ekki - engar spár er hér að finna - en hins vegar er gjarnan malað um möguleika.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:06 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.3.): 5
- Sl. sólarhring: 105
- Sl. viku: 1339
- Frá upphafi: 2455665
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 1199
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Ekki tekst mér fákænum manninum að skilja baun í þessu línuriti fremur en mörgu því sem veðurfræðin er að stússast í. Á því kanski ekki að vera að tjá mig um pistil, en heldur finnst mér kaldranalegt að tala um hlýskeið nú, í aðdraganda enn eins andskotans frostakaflans.
Það er svona eins og þegar veðurfræðingar segja mönnum sem eru við það að fara á hausinn, að efnahagslífið sé á uppleið!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 08:40
.... svona eins og þegar hagfræðingar..... átti þetta náttúrulega að vera!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 08:44
12 mánaða meðaltalið ætti að taka gott stökk upp á við eftir þennan mánuð, enda nóvember í fyrra frekar kaldur.
Emil Hannes Valgeirsson, 28.11.2011 kl. 19:01
Jú, það er rétt hjá þér Bjarni að kuldaköstin setja alltaf að manni hroll - jafnvel á hlýskeiðum. Það er líka rétt hjá þér Emil að 12-mánaða meðaltalið hrekkur talsvert upp þegar nóvembertalan dettur inn í það, jafnvel þótt síðustu tveir dagarnir verði kaldir.
Trausti Jónsson, 29.11.2011 kl. 01:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.