Hver er úrkomusamasti mánuđur ársins?

Mörg svör eru til viđ spurningu fyrirsagnarinnar. Hún er satt best ađ segja ekki mjög skýr. Á höfundurinn viđ landiđ allt, einstaka hluta ţess eđa sérstakar stöđvar? Er hann á höttunum eftir ţví í hvađa mánuđi ársins međalúrkoma er mest eđa jafnvel hvađa mánuđur er oftast sá úrkomusamasti á árinu? Ţessari spurningafjöld verđur auđvitađ ekki svarađ hér - en svörum einhverjum ţeirra.

Ţegar litiđ er á áratugameđaltöl er október ábyggilega úrkomusamasti mánuđur ársins á landinu í heild. Til eru mánađameđaltöl úrkomu fyrir 1971 til 2000 á 134 veđurstöđvum. Ţau eru ekki alveg öll áreiđanleg - en látum samt ađ svo sé. Október er úrkomusamastur á 77 stöđvanna (57%), febrúar er í öđru sćti međ 22 stöđvar (16%). Apríl og maí eru hvergi úrkomumestir, desember er međ 10 stöđvar, janúar, ágúst og september međ 5 hver, nóvember međ fjórar, mars ţrjár og júní og júlí eina stöđ hver.

Ţegar fariđ er í saumana á ţví hvernig stöđvarnar dreifast á landsvćđi og hvađa stöđvar ţađ eru sem skera sig úr kemur ýmislegt í ljós. Febrúarstöđvarnar eru allar á Suđvestanverđu landinu frá Ţykkvabć í austri vestur ađ Gufuskálum á Snćfellsnesi. Ţar á međal er Reykjavík. Nóvember- og desemberstöđvarnar eru á svipuđum slóđum, en grunsamlega margar ţeirra athuguđu ekki allt tímabiliđ.

Fáeinar stöđvar inn til landsins á Norđur- og Austurlandi eru međ hámörk í sumarmánuđum, ţar međ t.d. Grímsstađir á Fjöllum (júlí), Möđrudalur (ágúst) og Mýri í Bárđardal (ágúst). Ţetta er trúverđugt.

Hin túlkunin á spurningunni í fyrirsögninni er sú ađ veriđ sé ađ spyrja um hver sé oftast úrkomusamasti mánuđur ársins. Ţađ hafa hungurdiskar athugađ fyrir Reykjavík og Akureyri. Í Reykjavík er ţađ janúar međ 20% tilvika (ótrúlega mikiđ - fimmta hvert ár). Október og nóvember eru í öđru til ţriđja sćti međ 15% hvor mánuđur. Apríl og maí hafa aldrei veriđ úrkomusömustu mánuđir ársins í Reykjavík.

Í Reykjavík var júní 1960 úrkomusamasti mánuđur ársins. Gćđasumariđ ţađ var nefnilega eins og flestir vilja helst, nćgar úrkomur fyrir gróđurinn snemmsumars en síđan ţurrt. Harla sjaldgćft. Júlí 1955 var úrkomusamastur allra mánađa ţađ áriđ - rigningasumariđ frćga.

Á Akureyri er október oftast úrkomusamastur, í 25% tilvika (fjórđa hvert ár), desember er í öđru sćti međ 20% og nóvember 18%. Maí og júní hafa aldrei veriđ úrkomusömustu mánuđir ársins á Akureyri. Ţađ var apríl 1932 sem náđi ţví ađ verđa úrkomusamasti mánuđur ţess árs - merkilegt ţađ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 226
  • Sl. viku: 1928
  • Frá upphafi: 2350797

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1722
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband