17.10.2011 | 01:18
Illiviðri í október - nokkrir topp listar
Til að geta ákveðið hver eru verstu októberveðrin þarf fyrst að skilgreina mælikvarða. Þegar minnst er á illviðri er oftast átt við þau sem eru tengd miklum vindhraða. Auðvitað gætu úrkoma eða flóð (ofanflóð eða sjávarflóð) einnig komið við sögu, nú eða þá sérlegir kuldakaflar.
En hvernig á að raða veðrum ef við tökum eingöngu mið af vindhraða? Er það útbreiðsla veðursins eða tímalengd þess? Og svo framvegis. Kannski væri betra að miða við tjónið? Þá væri veður sem gengi yfir höfuðborgarsvæðið áberandi verra heldur en jafnmikið eða sterkara veður sem eingöngu gætti um landið suðaustanvert. Sömuleiðis hefur tjónnæmi mikið breyst í tímans rás.
Á seinni árum eru efnisleg verðmæti sem lenda í veðrum meiri heldur en áður var þannig að heildartjón verður oft tiltölulega mikið í nútímaveðrum. Hins vegar hefur tekist að verja líf og limi mun betur en áður, ekki síst á sjó.
En við skulum nú eingöngu miða við útbreiðslu illviðra á landinu öllu. Tvær meginskilgreiningar eru notaðar. Annars vegar er talið á hversu háu hlutfalli veðurstöðva vindur hefur náð 20,5 m/s (9 vindstigum) á hverjum sólarhring. Töflu af þessu tagi má búa til fyrir veður allt aftur til 1912. Til hagræðis köllum við þennan talningarhátt t1. Hins vegar er talið hversu hlutfall þeirra athugana á landinu með vindhraða yfir 17 m/s miðað við allar athuganir sama dag. Við köllum þann háttinn t2 til aðgreiningar frá t1.
Þessir tveir listar verða ekki eins. Mjög snarpt og skammvinnt veður nær auðveldlega inn á t1-listann, en veður sem stendur lengi er líklegra til að ná inn á t2. Í ljós kemur að kerfisbundinn munur kemur fram á vindáttum. Sunnan- og vestanveður eru oftast mun styttri heldur en norðaustanveðrin. Þau fyrrnefndu eiga því auðveldara með að skora hátt á t1, en norðaustanveðrin gera að jafnaði betur á t2.
En lítum nú á listana, fyrst t1. Dálkarnir eru ár, mánuður, dagur og hlutfall stöðva sem ná 9 vindstigum eða meir (í þúsundustuhlutum). Við sleppum 11 veðrum inn á listann því 23. og 24. október 1963 eru í raun sama veðrið. Það varð verst að kvöldi þess 23. og stóð fram á nótt. Hungurdiskar hafa áður fjallað um það og tjón í því, nú síðast í pistli 3. október en þar var fjallað um mesta vindhraða sem mælst hefur á landinu í október.
ár | mán | dagur | hlutf |
1963 | 10 | 23 | 588 |
1954 | 10 | 9 | 558 |
1995 | 10 | 25 | 552 |
1991 | 10 | 3 | 545 |
1964 | 10 | 21 | 536 |
1996 | 10 | 7 | 530 |
2009 | 10 | 9 | 526 |
1963 | 10 | 24 | 500 |
2004 | 10 | 18 | 480 |
1952 | 10 | 5 | 451 |
1982 | 10 | 26 | 444 |
Efstu tvö veðrin á listanum voru bæði af suðvestri, en í þriðja sæti er veðrið ógurlega sem olli snjóflóðinu á Flateyri (flóðið féll reyndar aðfaranótt þess 26.), það var af norðri og norðaustri. Öll veðrin á listanum ollu talsverðum sköðum. Þau eru fjölbreyttrar gerðar. Gaman væri að fjalla um þau öll en það er vikuvinna - ég vona að lesendur afsaki þrekleysi mitt í þeim efnum.
Mörg sömu veðrin eru á t2-listanum.
ár | man | dagur | hlutfall |
1995 | 10 | 25 | 429 |
1964 | 10 | 21 | 381 |
1954 | 10 | 9 | 350 |
2004 | 10 | 18 | 341 |
1982 | 10 | 26 | 328 |
1991 | 10 | 3 | 315 |
1952 | 10 | 5 | 294 |
1987 | 10 | 9 | 294 |
1967 | 10 | 27 | 292 |
1995 | 10 | 24 | 276 |
1980 | 10 | 7 | 274 |
En hér er Flateyrarveðrið á toppnum og dagurinn áður kemst líka á blað - í 10. sæti. Hlutfallsdálkurinn (þúsundustuhlutar) sýnir að vindhraði var 17 m/s eða meira í 43% athugana þennan slæma dag. Þarna sést veðrið 1963 ekki (er í 14. sæti). Það eru langvinnu veðrin sem vinna.
Einnig er til t1-listi yfir illviðri á tímabilinu 1912 til 1948.
ár | mán | dagur |
1913 | 10 | 20 |
1948 | 10 | 29 |
1934 | 10 | 27 |
1925 | 10 | 31 |
1941 | 10 | 23 |
Það er mikið norðan- og norðaustanveður 1913 sem lendir í 1. sæti. Til þess var tekið hversu mikið sjórok gerði í Reykjavík þennan dag. Mikið tjón varð á bátum á höfninni. Veðrið 1948 var einnig sérlega slæmt í Reykjavík og í Hveragerði varð mjög mikið tjón á gróðurhúsum. Veðrið 1934 var talsvert líkt Flateyrarveðrinu 61 ári síðar, m.a. urðu mannskaðar í snjóflóði í Önundarfirði. Í veðrinu 1934 varð gríðarmikið tjón af völdum brims og sjávarflóða norðanlands. Í sjónvarpsþættinum Landanum nú fyrr í kvöld (sunnudaginn 16. október) var minnst á tjón sem veðrið olli í Haganesvík í Fljótum. - Hefur nú verið tvisvar minnst á veðrið sama kvöldið í fjölmiðlum (hungurdiskar eru einskonar fjölmiðill) - enda merkilegt.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.1.): 193
- Sl. sólarhring: 505
- Sl. viku: 2462
- Frá upphafi: 2433187
Annað
- Innlit í dag: 169
- Innlit sl. viku: 2087
- Gestir í dag: 163
- IP-tölur í dag: 155
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.