Heiđasti októberdagurinn (- ekki heldur í dag)

Ţessi pistill er úr flokknum „heiđustu dagar“ mánađanna. Reiknuđ er út međalskýjahula á öllum veđurstöđvum frá 1949 til 2010 og heiđasti dagur fundinn. Í október fćr sá 23. áriđ 1966 ţann sess, en međalskýjahulan var ađeins 1,93 áttunduhlutar. Ekki eru gervihnattamyndir ađgengilegar úr ţeirri fortíđ. Ţá voru ađeins nokkur ár frá ţví ađ fariđ var ađ taka slíkar myndir. Ţćr breyttu miklu fyrir veđurspár hér á landi. Gćđatíđ var á Suđur- og Vesturlandi í október 1966 og ekki óhagstćđ heldur norđaustanlands. Talsvert snjóađi norđanlands í upphafi mánađarins* - en ţann snjó tók fljótt upp aftur. Um mánađamótin október/nóvember 1966 skipti eftirminnilega um tíđarfar.

En viđ lítum í stađinn á mynd sem tekin var upp úr miđjum nćstheiđasta októberdeginum. Hún er úr safni gervihnattamóttökustöđvarinnar í Dundee í Skotlandi. Ţessi góđi dagur var 16. október 1998.

w-blogg181011a

Hér er Vesturströndin alveg hrein. Mjóir bólstraslóđar liggja frá Suđurlandi og ekki er langt í smálćgđaróvćru úti af Suđausturlandi. Minniháttar skýjabakkar eru undan Austurlandi norđanverđu og á Húnaflóa. Áttin í háloftum var af norđvestri, frá Grćnlandi, eins og algengast er ţegar bjart veđur er um allt land. Október 1998 var talinn rysjóttur. Milt var framan af mánuđinum en uppúr honum miđjum versnađi tíđ og snjóađi ţá mikiđ norđanlands. Mikiđ norđaustanillviđri gerđi dagana 22. og 23. Ţađ var ţó ekki nćgilega slćmt til ađ komast á topplistana sem viđ litum á í gćr (17. október).

Skýjađasti októberdagurinn á ţessu sama tímabili var sá 10. áriđ 2007. Til gamans reiknum viđ einnig skyggniđ - en lítiđ mark er á ţeim reikningum takandi. Best var skyggniđ 19. október 1997, en verst 25. október 1995 - enn og aftur kemur Flateyrarveđriđ viđ sögu. Merkilegt veđur ţađ.

* Ţađ er minnisstćtt ađ nemendur Menntaskólans á Akureyri voru settir í ţađ ađ moka snjónum af knattspyrnuvelli skólans. Ţađ var ágćt hreyfing - en tilgangslítil fannst mér. Síđar komst ég ađ ţví ađ samskipti knattspyrnuvalla og veđurs eru mjög áhugaverđ, töluverđ frćđigrein meira ađ segja.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 50
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 1799
  • Frá upphafi: 2348677

Annađ

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 1577
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 47

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband