Enn af afbrigđilegum septembermánuđum (austan- og vestanáttir)

Viđ rifjum enn upp fáeina afbrigđilega septembermánuđi. Í ţetta sinn eru ţađ ţrálátustu austan- og vestanáttamánuđir. Ađ vanda fer flokkunin fram á nokkra vegu. Útskýringar fylgja. Austanáttarmánuđir eru ađ jafnađi mjög úrkomusamir austanlands og vestanáttarmánuđir ćttu ţví ađ vera úrkomusamir vestanlands. Ţó er ţađ nú ţannig međ vestanáttina ađ komi hún beint frá Grćnlandi getur hún veriđ ţurr. Sannleikurinn er sá ađ suđvestan- og vestanlands rćđur sunnanáttin mun meiru um úrkomuna heldur en vestanáttin.

Vestan og austanáttirnar eru ţannig ekki spegilmynd hvor af annarri - síđur en svo. Ísland er nefnilega í austanvindabelti heimskautaslóđa í lćgstu lögum lofthjúpsins en inni í vestanvindabelti háloftanna. Tíđni austanáttar er ađeins helmingur tíđni vestanáttarinnar viđ veđrahvörfin auk ţess sem hún er yfirleitt hćgari. Austanáttamánuđir einkennast gjarnan af stórum hćgfara lágţrýstisvćđum suđur og suđaustur af landinu. Vestanáttarmánuđir einkennast af hrađfara veđurkerfum sem hvert um sig stendur stutt viđ.

Viđ notum enn fimm flokkunarţćtti.

 1. Mismunur á loftţrýstingi sunnanlands og norđan. Ţessi röđ nćr sem stendur aftur til 1881. Gengiđ er út frá ţví ađ sé ţrýstingur hćrri norđanlands heldur en syđra séu austlćgar áttir ríkjandi. Líklegt er ađ ţví meiri sem munurinn er ţví ţrálátari hafi austanáttin veriđ. Samkvćmt ţessum mćlikvarđa er september 1935 mestur austanáttarmánađa. Enda er hann ţurrasti september sem ţekktur er á Vesturlandi. Úrkoma í Reykjavík mćldist ađeins 12,6 mm og 1,6 í Stykkishólmi - ótrúlegt en satt. Í öđru sćti er september 1998, ţá var tíđ vestanlands talin góđ, 1987 er síđan í ţriđja sćti mikill berjamánuđur vestanlands - einn ţeirra bestu sem ég man eftir. Fyrstu daga mánađarins voru miklir vatnavextir á Ströndum og á Snćfjallaströnd.

Mestur vestanáttarseptembermánađa er 1931. Ţá hittist svo á ađ fram eftir mánuđinum var vestanáttin af Grćnlandi og loftţrýstingur hár. Síđan kom úrkomugusa ţegar vindur snerist meir til suđvesturs.  Fćr mánuđurinn ţessi ummćli: Hagstćđ og hćgviđrasöm tíđ, ţó brá til verulegra votviđra á S- og V-landi eftir miđjan mánuđ. Nokkuđ ţurrt na-lands. Nćstmest var vestanáttin 1938, sá mánuđur taldist líka hagstćđur. Fáir muna nú ţessa mánuđi. Hvort fleiri muna september 2009 veit ég ekki, en hann er í fjórđa sćti.

2. Styrkur austanáttarinnar eins og hún kemur fram ţegar reiknuđ er međalstefna og styrkur allra vindathugana á öllum (mönnuđum) veđurstöđvum. Ţessi röđ nćr ađeins aftur til 1949. Mest var austanáttin í september 1981. Ţá féllu margar aurskriđur á Seyđisfirđi og Eskifirđi. Tjón varđ ţó ekki mjög mikiđ. Hér er 1987 líka í öđru sćti austanáttar.

September 1986 er mestur vestanáttarmánađa samkvćmt ţessu viđmiđi og síđan 1990. September 2009 skorar einnig hátt, hann er hér í ţriđja  - enda ţarf hann ekki hér ađ keppa viđ vestanáttarmánuđi fyrir 1949.

3. Gerđar hafa veriđ vindáttartalningar fyrir ţćr veđurstöđvar sem lengst hafa athugađ samfellt og vindathugunum skipt á 8 höfuđvindáttir og prósentur reiknađar. Síđan er tíđni norđaustan-, austan, suđaustan og sunnanáttar lögđ saman. Ţá fćst heildartala austlćgra átta. Hér lendir öndvegismánuđurinn 1968 á toppi listans. Ţá var fádćma góđ tíđ - nema allra síđustu dagana - sannkallađir spillidagar. Í nćstu tveimur sćtum eru fornir gćđamánuđir, 1901 í öđru sćti og 1915 í ţví ţriđja.

Mestur vestanáttarseptembermánađa eru hér 1952 og 1940 sá síđarnefndi hefur komiđ viđ sögu áđur á hungurdiskum í hlutverki snjóamánađar norđaustanlands (ef hćgt er um slíkt ađ tala í september).

4. Fjórđi mćlikvarđinn er fenginn úr endurgreiningunni amerísku og nćr hann aftur til 1871. Fyrstu 20 til 30 árin verđum viđ ţó ađ taka niđurstöđum greiningarinnar međ varúđ. Hér kemur 1935 aftur sem mesti austanáttarmánuđurinn og 1998 er í öđru sćti. Vestanáttin 1986 er í ţriđja sćti á eftir tveimur fornum mánuđum, 1900 og 1910 sem deila fyrsta til öđru sćti.

Fimmti kvarđinn er einnig úr endurgreiningunni nema hvađ hér er reiknađ í 500 hPa-fletinum. September 1935 er hér međ langmestu austanáttina. Hann hlýtur ţví ađ dćmast mesti austanáttarmánuđur allra tíma (eđa eins langt og séđ verđur). Mestur vestanáttarmánađa í 500 hPa í september er 1888 og síđan koma 1910 og 1900, 1986 er í fjórđa sćti. Ţetta ţýđir ađ viđ fáum varla eindreginn sigurvegara í vestanáttarkeppninni. Viđ gefum 1986 samt aukaverđlaun.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

September 1968 er mér einna veđurminnisstćđastur allra mánađa enda bara búinn ađ fylgjast daglega međ veđri í rúmt  og fannst september 1939 vera snúinn aftur, 18,5 stig tvo daga í röđ og 14 stig um hánótt. Hey Jude alltaf í útvarpinu. Svo hrundi allt í lokin og kom ekki gott haustveđur í ţrjátíu ár!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 21.9.2011 kl. 10:58

2 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Rúmt ár.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 21.9.2011 kl. 10:58

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 342
  • Sl. sólarhring: 354
  • Sl. viku: 1916
  • Frá upphafi: 2350543

Annađ

  • Innlit í dag: 259
  • Innlit sl. viku: 1708
  • Gestir í dag: 245
  • IP-tölur í dag: 244

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband