Meira um óvenjulega þurrt loft

Nú hefur gefist tóm til að líta betur á tölur um lágt rakastig um landið sunnan- og vestanvert síðastliðna helgi. Samanburður hefur verið gerður við eldri mælingar. Eins og áður hefur verið minnst á eru rakamælingar tiltölulega óáreiðanlegar og erfitt að komast fyrir tilviljanakenndar villur. Rakastig reikar oft um sem svarar tugum prósenta á mjög stuttum tíma. En látum slíkt ekki á okkur fá.

Septembermet voru slegin eða jöfnuð á um það bil 45 sjálfvirkum stöðvum og 24 stöðvum vegagerðarinnar. Það er auðvitað ekkert vit í að telja með stöðvar sem athugað hafa í aðeins mjög fá ár. Met féllu á 17 stöðvum sem athugað hafa í 10 ár eða meira og sjö vegagerðastöðvum sem sömuleiðis hafa athugað svo lengi.

Flestar mönnuðu stöðvarnar hafa starfað lengur - en þeim hefur hins vegar fækkað mjög. Ný lágmarksrakastigsmet fyrir september voru þó slegin á fimm stöðvum sem athugað hafa í meira en 10 ár. Merkast þeirra meta er það frá Keflavíkurflugvelli, lægsta septemberakastig í 59 ára sögu mælinga þar, 30%. Nýtt met var einnig sett á Eyrarbakka en þar hefur rakastig verið athugað meir en 50 ár. Hins vegar hafa rakamælingar þar verið eilítið stopular - þannig að vissara er að athuga málið nánar.

Rakastig fór niður fyrir 25% á fjölmörgum stöðvum. Þegar þetta loft kemur inn í hús og er þar hitað upp í 25°C verður þurrkurinn beinlínis óþægilegur og bætist ofan á óþægindin sem ryk- og öskufok hefur valdið undanfarna daga.

Eins og bæði hungurdiskar og Einar Sveinbjörnsson hafa fjallað um áður ýtir þurrkur lofts og jarðvegs mjög undir stóra dægursveiflu hita. Á þessum árstíma munar mest um nánast frjálst fall hitans í logni og heiðskíru að nóttu.

Gríðarlegur fjöldi dægurmeta á einstökum stöðvum hefur verið sleginn. Flest er það lítið marktækt vegna þess að athuganir hafa staðið svo stutt en það má samt nefna tölurnar.

Á sjálfvirku stöðvunum (vegagerðarstöðvar hér ekki taldar með) höfðu 523 dægurmet verið slegin í september til hádegis í dag (miðvikudaginn 14. september). Á sama tíma höfðu ekki verið slegin nema 62 dægurhámörk. Þetta ætti að sýna að næturkuldinn hefur haft undirtökin í fyrri hluta september. Hér ber auðvitað að athuga að síðustu ár hafa verið mjög hlý og erfitt er t.d. að toppa hitabylgjuna miklu í fyrstu viku september í fyrra (2010).

Á mönnuðu stöðvunum er hlutfallið þannig að 25 dægurlágmarksmet hafa verið slegin, en ekki nema tvö dægurhámarksmet (hér er miðað við síðustu 60 árin).

Þurrkurinn nú í fyrri hluta september á Suður- og Vesturlandi er óvenjulegur - t.d. hefur varla komið deigur dropi í Stykkishólmi og úrkoma hér í Reykjavík er líka sáralítil til þessa. En hver veit nema að suðlægir vindar beri hingað regn og raka á næstu dögum.

Af stafrófsstorminum Maríu  er það að frétta að hann hefur nú sveigt til norðurs og á að fara hjá Nýfundnalandi á föstudagskvöld. Frekari framtíð er óviss en hann hittir vel á lægð sem þá ber að úr vestri og á að valda rigningu hér á landi á sunnudaginn. En engu spá hungurdiskar um það.

Nú er vetur loks byrjaður á norðurslóðum - lítið fer fyrir honum ennþá - við lítum á norðurhvelskort á næstu dögum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir mjög fróðlegt blogg Trausti, sem ég les alltaf upp til agna.

Manni hefur varla staðið á sama að fá öskurykið ofan í allan þurrkinn undanfarið og óhjákvæmilega velt því fyrir sér hvort þetta sé það sem koma skal.

Þeim spurningum er sjálfsagt ekki hægt að svara frekar en ýmsu í þessu sambandi, en aftur takk fyrir fróðlegt blogg.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.9.2011 kl. 00:56

2 identicon

Mest uppblástur sunnan Langjökuls en ekki aska? Það dugir lítið að planta trjám á láglendi til að sefa samvizkubitið yfir  eyðingu hálendisns.

Guðmundur (IP-tala skráð) 15.9.2011 kl. 08:32

3 identicon

......ástarmakk Maju og vestanlægðarinnar virðist fæða af sér afkvæmi

sem mun hrella hjólhýsafara undir Hafnarfjalli á sunnudag , ef að líkum

lætur . Mig grunaði þetta og bókfærði raunar í fyrradag á þessu bloggi , -

besta og fróðlegasta blogginu að mati margra , en það er víst

svo margsagt , að lækur bakkafullur er. En sjaldan er góðvísa of oft kveðin , -

eða eins og kerlinging sagði :  , " sjaldan er góð ýsa of oft freðin".......

óli Hilmar Briem Jónsson (IP-tala skráð) 15.9.2011 kl. 22:46

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Guðrún María. Öskufallið í fyrra og í ár er auðvitað óvenjulegt en veðurfarið mun fyrr eða síðar komast út úr þessum þurrkagír aftur og fyrr en varir verðum við sjálfsagt plöguð af rigningum. Guðmundur, mér skilst að um þessar mundir minnki jöklar um um það bil 30 ferkílómetra á ári og skilji eftir sig leir sem síðan blæs og blæs. Óli Hilmar. Jú, ætli hjólhýsadráttarmenn verði ekki að hafa varann á sér - fari vindhviður í 20 - 25 m/s á mælistöðvum eru líkur á því að einhver þeirra fái á sig talsvert sterkari hnúta séu þeir nægilega margir á ferð. Menn gera sér ekki alltaf grein fyrir því að það er ólíklegt að sterkustu vindhviður dagsins á svæðinu fari einmitt yfir vindhraðamælinn. Þegar við sjáum hviður upp á 25 m/s á mæli eru stakar 40 m/s hviður alveg mögulegar.

Trausti Jónsson, 16.9.2011 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 348
  • Sl. sólarhring: 357
  • Sl. viku: 1922
  • Frá upphafi: 2350549

Annað

  • Innlit í dag: 265
  • Innlit sl. viku: 1714
  • Gestir í dag: 251
  • IP-tölur í dag: 250

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband