Köldustu septemberdagarnir

Við lítum nú á köldustu septemberdagana frá og með 1949 - að meðaltali yfir landið í heild. Það kemur ekki á óvart að þeir eru allir seint í mánuðinum.

Fyrst koma þeir dagar sem eru kaldastir að meðaltali:

ármándagurmeðalhiti
1969930-1,27
1954927-0,71
1969929-0,41
1954925-0,22
1994929-0,06
1975929-0,01
19819300,16
20059240,31
19549260,35
19749230,37
19549290,38
19699280,40
19549280,42
19949300,43
19689300,44

Hálendisstöðvar eru ekki með í meðaltalinu. Við sjáum að 6 dagar síðustu 61 árin hafa endað með meðalhita neðan frostmarks. Eftirminnilegur dagur er í efsta sæti lístans, 30. september 1969. Á hann hefur áður verið minnst á hungurdiskum - daginn áður var hríð um mikinn hluta landsins og mikil röskun á umferð.

Síðasta vika september 1954 var einnig óvenjuleg fyrir kulda sakir. Þann 27. mældist mesta frost sem mælst hefur í þessum mánuði, -19,6 stig í Möðrudal. Vonandi verður slíkt ekki endurtekið á næstunni. Á listanum er aðeins einn dagur á nýrri öld, 24. september 2005. Þá segir í annálum að hjólhýsi hafi fokið heilan hring á tjaldstæði við Skagaströnd.

Listinn yfir lægsta meðallágmark er ekki alveg eins.

ármándagurmeðalhiti
1994930-3,52
1954927-3,17
1994929-2,98
1969930-2,90
1954926-2,88
1975929-2,87
1954929-2,86
1982922-2,35
1954928-2,33
1975930-2,29

Hér skýtur 30. september 1994 öðrum ref fyrir rass, en sá 27. 1954 er enn í öðru sæti. Fáeinar veðurstöðvar eiga sín lágmarksmet þennan dag 1994 (sjá listann í viðhenginu).

Og alltaf er áhugavert að líta á lista yfir lægstu hámörk.

ármándagurmeðalhiti
19699301,59
19699291,80
19749232,49
19909202,64
19549282,66
19889262,72
19889292,87
19549262,90
20059252,92
19549272,94

Þar fer 1969 aftur á toppinn og 2005 er aftur á listanum, en þarna koma inn bæði 1988 með tvo afspyrnukalda daga og 1974 með einn.

En listi yfir septemberlágmörk allra stöðva er í viðhenginu. Hann er þrískiptur, fyrst koma allar sjálfvirku stöðvarnar - þar koma kuldaköst síðustu 15 ára vel fram. Þar fyrir neðan er listi yfir mönnuðu stöðvarnar 1961 til 2010 og loks listi yfir lágmarkshita mannaðra stöðva 1924 til 1960.

Ástæða er til að geta þess að lægsti hiti sem mælst hefur í september í Reykjavík er -4,8 stig. Mældist í miklu kuldakasti þann 29. 1899. Í þeim mánuði varð alhvítt í Reykjavík þann 22.

Fellibylurinn Katia er ekki fellibylur í augnablikinu heldur hitabeltisstormur. Heldur þó áfram leið sinni til vestnorðvesturs. Hann er nú á leið undir háloftavindstreng sem tætir ofan af uppstreymiskerfinu. Tölvuspár eru enn ósammála um framhald stormsins (eða fellibylsins) og gera ýmist ekkert úr honum eða þá mikið hér á norðuslóðum. Við fylgjumst með svo lengi hann lifir.

En nördin ættu að kíkja á viðhengið. Það má afrita og líma inn í töflureikni og raða á ýmsa vegu. Varið ykkur þó á því að met sem sett eru á stöðvum sem aðeins hafa athugað í eitt til þrjú ár eru afskaplega veigalítil. Mesti kuldi sýnir ekki tennur sínar nema á margra ára fresti.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var mikið frost víða um land aðfaranótt 27.sept. 1954. Hér skrifað í veðurdagbók, auk Möðrudals, Grímsstaðir 14 stig, Síðumúli 11 stig og Þingvellir 8 stig. Það sem gerði þessa nótt eftirminnilega var að þá rigndi 20,4 mm á Stórhöfða. Kl. 9:30 að morgni þann 26. var alhvítt á Stórhöfða eftir él, snjódýpt tæpur sentimetri.

Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 4.9.2011 kl. 21:44

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka þér fyrir fróðlega athugasemd Óskar. Ég sé fyrir mér litla kuldalægð sem valdið hefur rigningunni. Ætli snjódýptin sem þú nefnir sé ekki sú mesta í september á Stórhöfða ásamt snjónum þann 29. september 1969? Dálitið gat er í tölvuskrám Veðurstofunnar um snjódýpt á árunum 1956 til 1964. Við þurfum að fara að fylla upp í það.

Trausti Jónsson, 5.9.2011 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg170325a
  • w-blogg160325a
  • Slide16
  • Slide15
  • Slide14

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.3.): 551
  • Sl. sólarhring: 692
  • Sl. viku: 1741
  • Frá upphafi: 2453761

Annað

  • Innlit í dag: 521
  • Innlit sl. viku: 1603
  • Gestir í dag: 494
  • IP-tölur í dag: 482

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband