Mesti vindhraði í ágúst

Bylting varð í vindhraðamælingum hér á landi með tilkomu sjálfvirku stöðvanna fyrir 15 til 20 árum. Fyrir þann tíma voru vindhraðamælar aðeins á fáeinum veðurstöðvum og fæstir þeirra mældu vindhviður. Vindur var víðast hvar áætlaður. Það var yfirleitt ekki illa gert og upplýsingar um dagsetningar og afl mestu illviðra eru furðugóðar. En samt er nákvæmnin ekki mikil í einstökum áætlunum.

Við lítum til gamans á mesta vindhraða í ágústmánuði. Fyrst er horft á 10-mínútna meðalvind. Ég hef hér sett allar sjálfvirkar stöðvar í eina hrúgu hafa ber í huga að mælar Vegagerðarinnar eru flestir í 6 metra hæð, en aðrir mælar langflestir í 10 metrum. Vegagerðarstöðvarnar mæla hins vegar ívið snarpari hviður, 1 til 2 sekúndur, en aðrar stöðvar flestar um 3 sek. Ekki er vitað með vissu hverju munar.

Hér koma 10 efstu 10-mínútna gildin (allt metrar á sekúndu):

byrjarnær til metármetdagurmet nafn
1996201020022241,1Skálafell
2000201020082937,1Vatnsskarð eystra
1994201020082935,1Þverfjall
2004201020082934,2Stórhöfði sjálfvirk stöð
1994201020082930,4Kolka
1994201020002429,4Sandbúðir
2006201020082929,3Skarðsmýrarfjall
2003201020082929,2Þyrill
1994201020072229,2Gagnheiði
1999201020092029,1Hraunsmúli

Fyrstu tveir dálkarnir sýna hvaða tímabil stöðin nær yfir, síðan koma metárið og metdagur (alltaf í ágúst). Mjög hvasst varð um landið suðvestanvert þann 22. ágúst 2002 og er getið um foktjón. Þetta veður nær þó ekki hátt á illviðralistum þar sem miðað er við útbreiðslu eða umfang veðra.

Veðrið 29. ágúst 2008 á hins vegar sex af tíu tölum listans. Þetta veður telst vera eitt hið versta sem vitað er um í ágúst og varð talsvert foktjón. Það telst hafa verið austanveður í sjálfvirkri áttaflokkun.

Tvö hæstu gildin á mönnuðum stöðvum eru:

byrjarnær til metármetdagurmet nafn
1949201019551837,1Stórhöfði
197419771976836,0Sandbúðir

Tölurnar eru orðnar gamlar, Stórhöfðatalan frá rigninga- og illviðrasumrinu mikla 1955 og Sandbúðatalan er úr öðrum rigningamánuði á Suðurlandi Báðir ágústmánuðir þessir voru hlýir og góðir á Norðausturlandi - eins og oft hefur verið minnst á hér á hungurdiskum að undanförnu.

Og nú hviðurnar:

byrjarnær til metármetdagurmet nafn
1996201020022251,1Skálafell
1995201020082951,0Hafnarfjall
2000201020082950,0Vatnsskarð eystra
1994201020082949,9Þverfjall
1999201020043148,8Lómagnúpur
2005201020063046,1Seljalandsdalur - skíðaskáli
2000200520043145,3Kolgrafafjörður
2003201020082943,2Þyrill
2002201020082942,5Skrauthólar
2002201020082942,4Hvammur

Skálafell á hér einnig metið, sama dag og 10-mínútna talan. Hér eru líka sex tölur úr veðrinu 29. ágúst 2008, en aðrar stöðvar koma við sögu. Flestallar á frægum hviðustöðum.

Tvö hæstu gildin frá mannaðri stöð eru bæði frá Stórhöfða í Vestmannaeyjum:

byrjarnær til metármetdagurmet nafn
1949201019892044,3Stórhöfði
1949201019902144,3Stórhöfði

Tölurnar eru mældar nærri því með nákvæmlega eins árs millibili.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í mínu veðurminni er 18. ágúst 1955 mjög ofarlega. Þá fauk mikið af heyinu okkar. Hviðumælingar byrjuðu ekki  á Stórhöfða fyrr en í júlí 1968 og því er ágúst 1955 ekki þar með.

Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 22.8.2011 kl. 16:56

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka þér fyrir Óskar. Gaman að sjá að einhver skuli enn muna þetta. Hviðumælingar voru nærri því hvergi 1955. Þó var síriti á Reykjavíkurflugvelli og hviðumælingar voru einnig á Keflavíkurflugvelli, en ég held að þar hafi bara verið skífa sem menn gátu fylgst með.

Trausti Jónsson, 23.8.2011 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 404
  • Frá upphafi: 2343317

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 365
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband