8.7.2011 | 00:55
Af norðurvígstöðvunum
Nokkur liðssafnaður kulda er nú á norðurvígstöðvunum milli Grænlands og Svalbarða - en beinist þó lítið hingað til lands. Þetta sést vel á mynd sem sýnir stöðuna kl. 18 á morgun (föstudaginn 8. júlí) - spá frá dönsku veðurstofunni.
Kortið sýnir hæð 500 hPa-flatarins með heildregnum, svörtum línum, einingin er dekametrar (1 dam = 10 metrar). Það er 5580 metra línan sem liggur við vesturströndina. Mjóu, rauðu strikalínurnar sýna þykktina, einnig í dekametrum. Hún er því meiri eftir því sem loft í neðri hluta veðrahvolfs er hlýrra. Landið liggur á milli 5400 og 5460 metra jafnþykktarlínanna. Það er út af fyrir sig viðundandi eins og íbúar syðri hluta landsins og reyndar víðar máttu reyna í dag. Norðanlands stingur kalt sjávarloft að norðan sér undir hlýja loftið og spillir talsvert fyrir, sérstaklega þar sem skýjað er.
Almennt er lítil næturfrosthætta meðan þykkt er yfir 5400 metrum, nema þar sem nærri því alltaf er hætta á næturfrosti í heiðskíru veðri.
Við norðausturhorn Grænlands er nokkuð snarpur kuldapollur, innsta jafnþykktarlínan sem við sjáum er 5280 metrar - kæmi hún hingað suður frysi víða um sveitir. En svo virðist sem kuldinn blási ekki til sóknar að ráði - slengir þó 5400 metra þykktarlínunni talsvert suður á landið aðra nótt (aðfaranótt laugardags) - vonandi kólnar þó ekki að mun.
Þykka, rauða línan á kortinu sýnir hæðarhrygg sem virðist eiga að stjórna veðri hér á landi næstu daga. Honum fylgir tiltölulega hlýtt loft eins og vant er í háloftahryggjum. Alla vega virðist hann eiga að halda norðankuldanum í skefjum að mestu og á síðan að hleypa næstu tveim lægðardrögum að vestan í gegnum sig svo lítið beri á. Fari svo koma lægðir þessar lítið við sögu hér á landi.´
Útlit er því fyrir að við verðum næstu daga í dæmigerðu sumarástandi - það verður þó ekki beinlínis hlýtt nema yfir daginn þar sem sólar nýtur. Á sumrin gerist það stundum að þrýstikerfi þrífast lítt og þau sem lifa væflast stefnulítið um garða. Þá er oftast skárra að líta á háloftakortin þar sem flest er skýrara.
Við skulum líta á aðra mynd - sem ég held að hafi birst áður á hungurdiskum - en öðruvísi merkt.
Hún sýnir árstíðasveiflu flökts í loftþrýstingi frá degi til dags (í hPa). Athugið að ferillinn nær yfir eitt og hálft ár til að sveiflan sjáist öll vel. Flöktið er mjög í takt við árstíðasveiflu illviðra. Það er miklu minna á sumrin heldur en á vetrum. Lágmarki nær það snemma í ágúst - á þessari mynd nákvæmlega þann 10. Hámarkið er í janúar, þann 11. á þessari mynd.
Við megum taka eftir því að í kringum 1. júlí kemur lítið þrep niður á við í ferlinum. Eftir að farið hefur verið niður þrepið haldast gildin svipuð þar til annað ámóta þrep kemur um 20. ágúst og þá upp á við. Ég hef merkt tímabilið á milli þrepanna með rauðu striki á myndinni. Óvíst er um marktækni þessara litlu þrepa - en við getum vel ímyndað okkur að þarna sé hinn hreini kjarni sumarsins, tíminn þegar veturinn liggur í dvala. En - hann fer sumsé aftur að bylta sér um 20. ágúst - engin miskunn þar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.1.): 71
- Sl. sólarhring: 327
- Sl. viku: 2838
- Frá upphafi: 2427390
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 2541
- Gestir í dag: 51
- IP-tölur í dag: 51
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
http://www.wetterzentrale.de/pics/avnpanel1.html
Nú eru þessir stórhöfðingjar að spá kuldapolli fyrir vestan Grænland bjartri framtíð, til viðbótar við þann sem sest að milli Svalbarða og Novaja Zemlja. Ef þeir hafa rétt fyrir sér, kemur það til með að kæla okkur hér á landi?
Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 8.7.2011 kl. 10:05
Kuldapolli er spáð vestan Grænlands og gæti komið við sögu hér síðar, en sú saga sést ekki enn í tölvuspám.
Trausti Jónsson, 8.7.2011 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.