Nokkur júnímet (í flokknum sett á mánuđ)

Viđ rennum nú í gegnum nokkur júnímet sem varđa mánuđinn í heild og ekki er hćgt ađ tengja ákveđnum dögum. Fyrir flesta er ţetta ekki sérstaklega spennandi upptalning - en fastir lesendur hungurdiska hljóta ađ vera orđnir vanir misjöfnum viđurgjörningi. Hćgt er ađ rađa mánuđum í afreksrađir á lands- eđa landshlutavísu á misjafnan hátt og ţví er ekki haldiđ fram ađ sú röđun sem hér er haldiđ fram sé sú eina rétta (langt í frá). Viđ skulum ţví líta á ţetta sem leik - nćst verđa niđurstöđur e.t.v. ađrar.

Samkvćmt bókum hungurdiska er júní 1933 sá hlýjasti á landinu í heild. Hann var sérlega hlýr um landiđ norđaustanvert og er ţví sá hlýjasti ţar. Suđvestanlands er barátta tvísýn, nefna má júní í fyrra (2010) og síđan ćvafornan mánuđ, júní 1871, sem virđist hafa veriđ fádćma hlýr. Gott ef menn minntust ekki á veđurfarsbreytingar í ţví sambandi.  

Hćsti mánađarmeđalhiti í júní međ eldri reikniháttum er 1933, en ţá var hann 12,6 stig á Akureyri. Smásamrćming viđ yngri reikning ýtir međaltalinu niđur í 12,5 - en ţađ er samt ţađ hćsta sem vitađ er um á veđurstöđ.   

Hćsti međalhiti á sjálfvirkri stöđ í júní er 11,66 stig á Hjarđalandi í Biskupstungum í ofurgćđamánuđinum júní 2010. Međalhiti á Hraunsmúla í Stađarsveit (vegagerđarstöđ) var nákvćmlega hinn sami í sama júnímánuđi.

Kaldasti júnímánuđur sem viđ vitum um á landinu kom 1882 - sumarlausa áriđ á Norđurlandi, voriđ kom loks í október en stóđ ţá stutt. Ţetta er auđvitađ kaldasti mánuđurinn norđaustanlands, en viđ förum aftur til júní 1851 til ađ finna ţann kaldasta suđvestanlands (međ óvissu aldursins).

Lćgsti júnímeđalhiti í byggđ er 1,7 stig, í Grímsey 1882. Okkur finnst ţetta ótrúlegt, en međalhitinn varđ samt nćrri ţví eins lágur í Skoruvík á Langanesi í júní 1952, lauk mánuđinum međ 2,5 stig í pokanum (2,4 stig međ eldri reikniháttum).

En enn kaldara er á fjöllum og í júní 1998 var međalhitinn á Gagnheiđi ađeins -0,15 stig (já, neđan frostmarks).   

Hćsti mánađarmeđalloftţrýstingur er 1025,2 hPa, sú háa tala mćldist 1824. Viđ ákveđum ađ trúa ţví ţar til sannanir koma fram um annađ. Međallágţrýstimet júnímánađar er einnig fornt, frá 1868, 1001,2 hPa - vetrargildi eiginlega.

Heildarúrkomuhámarkiđ er úr Hveradölum (skíđaskálinn), 485,3 mm, í júní 1930, ţegar Alţingishátíđin var haldin á Ţingvöllum.

Júní 1949 er talinn sá snjóţyngsti á landinu. Snjóhula í byggđ var 15%.

Fyrir 1925 voru úrkomumćlingar stopular á landinu ţannig ađ mánađadómar ná um sinn ađeins aftur til ţess tíma.

Úrkomusamastur á landinu í heild var júní 1969, hann er einnig talinn úrkomusamastur á Suđurlandi, júní 2006 dćmist úrkomusamastur á Vesturlandi og júní 1972 úrkomusamastur norđanlands. Sumrin 1969 og 1972 eru í stórum hópi illrćmdra rigningasumra um landiđ sunnanvert og versnuđu eftir ţví sem á leiđ. Sumariđ 2006 varđ mun betra en byrjunin gaf til kynna.

Ţurrasti júní á landinu var 1991 - ţađ muna eldri veđurnörd vel - ekki rigndi ađ međaltali nema einu sinni í viku. Júní 1991 var einnig ţurrastur vestanlands og á Suđurlandi. Norđanlands telst júní 1982 ţurrastur (ekki mundi ég ţađ).

Ţađ hefur nokkrum sinnum gerst ađ engin úrkoma hefur mćlst á veđurstöđ allan júnímánuđ: Á Teigarhorni 1916, í Mjólkárvirkjun 1987 og á Hólum í Dýrafirđi 1991. Minnsta júníúrkoma í Reykjavík féll 1971, 2,1 mm og í júní 1916 mćldust ađeins 3 mm á Vífilsstöđum. Minnst júníúrkoma á Akureyri er 0,2 mm - 2007, ađeins nokkur ár síđan.

Ţulu lokiđ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 77
  • Sl. sólarhring: 110
  • Sl. viku: 1701
  • Frá upphafi: 2349661

Annađ

  • Innlit í dag: 71
  • Innlit sl. viku: 1542
  • Gestir í dag: 68
  • IP-tölur í dag: 65

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband